Freyr - 15.11.1994, Page 29
Frá aðalfundi
Landssambands kúabœnda
Guðbjörn Árnason, framkvœmdastjóri LK
Aðalfundur Landssambands kúabœnda var haldinn á
dag fundarins voru flutt tvö erindi um mjólkurmál.
Jón K. Baldursson mjólkurverk-
fræðingur og starfsmaður SAM
fjallaði um markaðsmál mjólkurvara
og Björn Amórsson hagfræðingur
BSRB um hagræðingu í mjólkur-
iðnaði og er erindið birt í þessu hefti
Freys. Síðari fundardaginn voru
einnig flutt tvö erindi, það fyrra
flutti Snorri Jónsson framkvæmd-
arstjóri Ferskra kjötvara hf. og fjall-
aði um markaðssetningu nautakjöts
hjá fyrirtæki hans, gæði þess og
fleira og að lokum flutti Guðjón
Þorkelsson deildarstjóri fæðudeildar
RALA erindi um gæðamál nauta-
kjötsframleiðslunnar sem einnig er
birt í þessu blaði.
Mörg mál vom rædd á aðalfund-
inum og verður hér gerð grein fyrir
helstu tillögunum sem samþykktar
vom.
Ályktun um greiðslu vegna
niðurfœrslu
Aðalfundur LK 1994 minnir á að
ekki hefur verið staðið við ákvæði
síðasta málsliðar gr. 1.5. í viðauka I
við samning Stéttarsambands bænda
og ríkissjórnar íslands um stjórnun
mjólkurframleiðslu dagsetta 16.
ágúst 1992, en þar segir:
„Þurfi að koma til niðurfærslu á
greiðslumarki haustið 1993 eða
síðar vegna endurkomu fullvirðis-
réttar, sem bundinn er í leigu hjá
Framleiðnisjóði, skal sú niðurfærsla
bætt á markaðsverði".
Fundurinn felur stjóm LK að
ganga hart eftir því að við þetta
ákvæði verði staðið að fullu.
Ályktun um málefni
mjólkuriðnaðarins
A aðalfundi LK 1991 var ályktað
um málefni mjólkuriðnaðarins og
bent á nauðsyn þess að hann búi sig
undir að takast á við harðnandi
rekstrarumhverfi og samkeppni við
innfluttar vömr og undirstrikaði
fundurinn ábyrgð hans og samtaka
mjólkurframleiðenda gagnvart hin-
um almenna bónda í því sambandi.
Nú, þrem ámm síðar, stöndum við
frammi fyrir gerðum samningum,
sem heimila innflutning landbún-
aðarvara og sem gera kröfur til
bænda og afurðastöðva um hag-
ræðingu og verðlækkanir.
A þessum tíma hefur ýmislegt
þokast til réttrar áttar. Samtök
afurðastöðva hafa verið endurskipu-
lögð og viss hagræðing hefur náðst.
Hins vegar eru enn ónotuð flest hin
stærri tækifæri til spamaðar í mjólk-
urvinnslu, sem hagræðingarskýrslur
undanfarinna ára hafa gefið vís-
bendingu um. Jafnframt verður æ
ljósara að tímaskeið hins vemdaða
og ömgga umhverfis mjólkurfram-
leiðslu og vinnslu heyrir brátt
sögunni til og við því verður að
bregðast.
Fundurinn telur að ekki hafi nægi-
lega verið unnið að hagræðingu af
hálfu afurðastöðvanna eða samtaka
þeirra. Því sé nauðsynlegt að almenn
samtök framleiðenda, þ.e. LK og
kúabændafélögin hvert á sínu svæði,
láti í auknum mæli til sín taka á
þessu sviði.
Brýnustu verkefnin eru þessi:
1. Leiða bændum fyrir sjónir
nauðsyn þess að mjólkuriðnaðurinn
verði skipulagður og rekinn með
heildarhagsmuni þeirra í fyrirrúmi.
2. LK tengist SAM með beinum
og formlegum hætti.
3. Skorið verði úr um eignarhald
á mjólkurstöðvum, sem eru undir
stjóm fyrirtækja í blönduðum
rekstri, og þeim komið í hendur
mjólkurframleiðenda einna.
Fundurinn felur stjóm LK að
vinna að framgangi þessarra atriða.
Flúðum í lok ágúst sl. Fyrri
Ályktun um sölusamtök
kjötframleiðenda
Aðalfundur LK 1994 skorar á
Kjötráð Framleiðsluráðs að beita sér
fyrir stofnun heildarsölusamtaka
allra kjötframleiðenda sem annist
dreifingu og sölu á öllu kjöti innan
lands og utan.
Greinargerð
Aðalfundur LK telur núverandi
ástand kjötsölumála óviðunandi, þar
sem sláturleyfishafar í blindri sam-
keppni um hylli smásöluaðila hafa
velt afleiðingum undirboða í aukn-
um mæli yfir á bændur.
Til að mæta þeim kröfum og þeirri
samkeppni sem bíður við næstu
vegamót hins alþjóðlega samfélags
er nauðsyn að kjötframleiðendur hér
á landi tileinki sér áralöng og öguð
vinnubrögð bænda í öðrum löndum.
Þeirri samkeppni geta íslenskir
bændur ekki mætt sundraðir.
Um töku veröskeröingar-
gjalds var einnig samþykkt
alyktun
Áðalfundur LK 1994 samþykkir
að veita stjóm LK heimild til að
nýta nýfengna heimild í lögum um
innheimtu allt að 5% verðskerð-
ingargjalds, ef þörf krefur, af naut-
gripakjöti öðru en UK flokkum,
vegna útflutnings á nautakjöti.
Jafnframt skorar fundurinn á Fram-
leiðnisjóð landbúnaðrins að leggja
til þessa útflunings sömu fjárhæð og
framleiðendur.
Samningamálin
Miklar umræður urðu á fundinum
um sameiningarmálin og stöðu LK
innan fyrirhugaðra nýrra heildasam-
taka bænda. Var eftirfarandi tillaga
samþykkt:
Frh. á bls. 831.
22*94 • FREYR 845