Freyr - 15.11.1994, Side 43
RITFR6GNIR
Eiðfaxi International á ensku og þýsku
Eins og áður hefur verið getið í
Frey er farið að gefa tímaritið Eið-
faxa út á ensku og þýsku. Kom
fyrsta tölublað þeirrar útgáfu út fyrir
landsmótið í sumar er leið og var þá
dreift ókeypis.
Áformað er að gefa út fjögur
tölublöð á ári með þessu sniði
framvegis en 2. og 3. tölublað þessa
árs er komið út fyrir nokkru.
Eiðfaxi International, er svo heitir
nýja útgáfan, hefur hlotið miklar og
góðar viðtökur áhugafólks um ís-
lenska hestinn erlendis eins og vax-
andi fjöldi útlendra áskrifta ber vott
um.
Eiðfaxi International birtir úrval
og/eða útdrætti úr greinum íslenska
Eiðfaxa og annað efni. Vonir standa
til þess að fá erlent efni í nýja
blaðið. Útgefendur Eiðfaxa telja að
þessi erlenda útgáfa blaðsins geti
verið gagnleg fyrir ferðaþjónustuna
og ræktun íslenska hestsins, að sögn
Sigurðar Sigmundssonar, ritstjómar-
fulltrúa Eiðfaxa, auk þess sem Eið-
faxi International er ákaflega góður
auglýsingamiðill fyrir fslenska
hesta, vörur og þjónustu, en 17 lönd
eru nú í FEIF.
Þá hefur Eiðfaxi hf. gefið út heini-
ildarmyndband um landsmót hesta-
ntannafélaga á Gaddstaðaflötum sl.
sumar. Taldi Sigurður Sigurmunds-
son ævintýri líkast hvað samskipti
hérlendra og eriendra manna eru
orðin mikil vegna íslenska hestsins.
Eiðfaxi International mun enn frekar
stuðla að því.
J.J.D.
Rœktunarmaður ársins
Heiðursviðurkenning Búnaðarfélags íslands
Skipulagsskrá
1. gr.
Búnaðarfélag Islands veitir árlega þeim ræktunar-
manni sem bestum árangri hefur náð í hrossarækt á
sýningarárinu sérstaka heiðursviðurkenningu.
2. gr.
Heiðursviðurkenningin er slípaður steinn sem eftir-
farandi áletmn er klöppuð á:
Ræktunarmaður ársins (ártal)
(Nafn vinnanda)
Heiðursviðurkenning Búnaðarfélags Islands fyrir
árangur í hrossarækt.
Auk áletrunarinnar skulu merki Búnaðarfélags Islands
og hrossaræktarinnar vera klöppuð á steininn.
3. gr.
Við ákvörðun á vinnanda viðurkenningarinnar skal
telja saman, samkvæmt stigatöflu, heildarárangur hrossa
á sýningarárinu sem fædd eru hverjum ræktanda fyrir
sig. Heimilt er að telja saman árangur frá hverju búi
fyrir sig.
Stig skulu gefin samkvæmt eftirfarandi staðli. Við
útreikninginn skal sú regla gilda að endursýningar
hrossa telja ekki til stiga nema um framför sé að ræða,
s.s. hækkun afkvæntasýndra hrossa í verðlaunastigi.
Stóðhestar m.
afkvæmum; ... heiðursv. 12 stig
1. v. 10 stig
2. v. 4 stig
Hryssur m.
afkvæmum; ... heiðursv. 8 stig
l.v. 4 stig
6 v.
o.e. 5 v. 4 v.
Einstaklingar eink; hærrien8,15 8 st. lOst. 12 st.
Stóðh./hryssur ... 8,00- 8,14 4 st. 6 st. 8 st.
7,75 - 7,99 2 st. 3 st. 4 st.
4. gr.
Heiðursviðurkenninguna skal afhenda í lok sýningar-
ársins í hófi sem samtök hestafólks halda.
22*94 - FREYR 859