Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1995, Blaðsíða 30

Freyr - 01.01.1995, Blaðsíða 30
upphæðirnar. Lán tekin hjá Lífeyrissjóði bænda tilheyra í sumum tilfellum ekki búrekstrinum, held- ur skattframtali og færist þá þar, en ekki á landbún- aðarframtal. Vextir af þeim lánum, sem hafa verið tekin út á íbúðarhús, færast á skattframtal. Vísitölu- hækkun þessara lána má ekki færa eftir sömu reglu og hér er lýst, heldur má einungis færa greiddar vísitöluhækkanir, sjá leiðbeiningar RSK. Vaxtaaukalán Best er að fara eftir kvittunum þó að gjaldagi sé ekki um áramót. Á kvittunum eru sýndir vextir og verðbótaþáttur vaxta undir einum lið, „vextir“, og sú upphæð færist til gjalda. Vísitölulán Á kvittunum frá bankanum koma fram vextir og verðbætur. Leggja þarf saman vexti og verðbætur og hvort tveggja færist til gjalda. Áður en lengra er haldið er rétt að geta þess að færsla skulda og vaxta á landbúnaðarframtal annars vegar og persónu- framtal hins vegar getur haft töluverða þýðingu skattalega séð og meðhöndlun er ekki alveg eins. Lán sem tekin eru til íbúðarhúsabygginga færast öll á skattframtal en lán sem tekin eru vegna bú- rekstrar, færast á landbúnaðarframtal og vextir og lántökukostnaður sömuleiðis. Lán vegna bíla- kaupa, húsgagnakaupa eða annarra persónulegra nota, færast á skattframtal. Vísitöluhækkun lána, þ.e. sú upphæð, sem lánin hafa hækkað um á árinu, færast til gjalda á landbúnaðarframtali, en sé vísi- tölulán á skattframtali, færast þar til gjalda aðeins vextir og greidd vísitölulækkun. Á þessu er mikill munur. Ef skuldir eru miklar, getur það orkað tvímælis hvort lánið sé tekið vegna búrekstrar eða einkaneyslu, en það verða menn að meta. Þegar búið er að færa inn skuldir og um leið vexti og verðbætur á bls. 4 á landbúnaðarframtali, er vaxta- dálkurinn lagður saman og upphæðin sett í reitinn: 7.1, vextir og verðbætur af skuldum vegna bú- rekstrar á bls. 3. Aðrir liðir skýra sig sjálfir að miklu leyti. Efnahagsyfirlit (sjá mynd 2) Eignir 31/12 1993. Fyrst skal byrja á því að færa inn á dálkinn lengst til hægri „31/12 1993“ af gamla framtalinu á það nýja. 1 dæminu, sem hér fylgir, eru veltufjármunir 1.927.289 kr. og þeir færast einnig neðst á síðuna eins og ör sýnir. Sama er að segja um skuldir, að þær færast einnig neðst á síðuna. Mismunur á veltufjármunum og skuldum myndar „Stofn til verðbreytingarfærslu", í þessu dæmi 6.384.915 kr. Þar sem skuldir eru hærri en veltufjármunir reiknast tekjufærsla. Tekjufærslan er 1,84% af þessari upphæð eða 117.482 kr. Tekju- færslan færist síðan á á bls. 5 með öðrum niður- stöðum af landbúnaðarframtalinu. Ef veltufjármun- ir væru hærri en skuldir, myndaðist gjaldfærsla, en ekki tekjufærsla. Eignir 31/12 1994 Veltufjármunir eru í þessu dæmi 1.922.198 kr„ sjá mynd. Þeir myndast af birgðum, helmingi mats- verðs bústofns, inneign í kaupfélagi v/bús, inneign í banka og útistandandi skuldum. Það rekstrarfjár- magn, sem bundið er í búrekstrinum, á að mynda veltufjármuni og er litið svo á að það fé sé óverð- tryggt og myndi, að frádregnum skuldum, „stofn til verðbreytingafærslu“ eins og áður hefur verið skýrt frá. Það skiptir því töluverðu máli að veltufjármun- ir séu ekki vantaldir. Vaxtatekjur af innistæðum færast til tekna á bls. 2. Um áramótin eru afurðir fyrir desembermánuð í sumum tilfellum færðar á reikning ársins 1995 og í þeim tilfellum þarf að færa þá upphæð sem viðskiptakröfu. Ógreiddar af- urðir um áramót, sem taldar eru til tekna á afurða- miða, skal færa sem viðskiptakröfu í lið 1.4. Fastafjármunir Þar færast allar fasteignir (útihús, land og rækt- un), sem búrekstrinum tilheyra á fasteignamats- verði 1/12 1994 en ekki bókfærðu verði samkvæmt fyrningarskýrslu. Búvélar færast hins vegar á bók- færðu verði samkvæmt fyrningarskýrslu. Helming- ur af matsverði bústofns færist undir fastafjármuni en hinn helmingurinn undir veltufjármuni eins og áður er lýst. Skuldir Áður hefur verið vikið að færslu vaxta og vaxtabóta. Skuldir færast eins og kvittanir segja til um, þ.e.a.s. „Eftirstöðvar eftir síðustu greiðslu". Rétt er að benda á að færa ógreiddan virðisauka- skatt sem skuld um áramót. Innistæða sem mynduð hefur verið til að standa straum af þessari greiðslu 1. mars skal setja í veltufjármuni. B. Uppgjör hreinna tekna af búrekstri, bls. 5. Árlega birtir ríkisskattstjóri viðmiðunarreglur til ákvörðunar á endurgjaldi bænda, maka þeirra og barna. Þær eru birtar í lok þessarar greinar. Eins og fram kemur í leiðbeiningum ríkisskattstjóra á bls. 9 skulu bændur að jafnaði færa á landbúnaðar- og skattframtal þau reiknuðu laun, sem staðgreiðsla á árinu 1994 hefur verið miðuð við. í hjálögðu dæmi, sjá mynd 3, er hagnaður af búrekstrinum að upp- hæð 102.508 kr„ eftir að hvort hjónanna hefur reikn- að sér í laun, 700.000 kr„ og bömum 360.000 kr. 26 FREYR - 1.’95

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.