Freyr - 01.09.1995, Blaðsíða 14
Frá Fjárrœktarbúinu á Hesti
1993 - 1994
Stefán Sch. Thorsteinsson, Sigvaldi Jónsson og
Ingi Garðar Sigurðsson, Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Haustið 1993 var sett á vetur 501 œr, tvœvetur og eldri, 126 lambgimbrar, 11
lambhrútar og 23 hrútar fullorðnir. Fyrir áramót fórust 4 œr og 2 lambgimbrar og
frá áramótum til sauðburðar 4 œr en enginn gemlingur.
Af tvævetur og eldri ám voru 73
notaðar í sérstakar tilraunir, sem
miða að því að láta þær bera utan
hefðbundins sauðburðar. Þrjátíu
þessara áa eru í tilraun, þar sem
rannsaka á hagkvæmni þess að láta
þær bera þrisvar á tveimur árum.
Þeim var haldið undir hrúta í ágúst
og báru þær í janúar en til þeirra áa,
sem ekki héldu var hleypt til á
venjulegum fengitíma. 43 ær voru
notaðar í aðra tilraun sem var á
vegum dr. Jóns heitins Eldon á
tilraunstöðinni á Keldum, þar sem
rannsaka á notkun lyfsins Regulin
til þess að færa fram (flýta)
fengitíma fjárins. Þær ær byrjuðu að
bera í marslok. Þessar ær eru ekki
teknar með í eftirfarandi uppgjör og
nær það því til 425 áa, þar sem hinar
falla ekki að hinni hefðbundnu leið
í meðferð og slátrun fjárins.
Tafla 1 sýnir meðalþunga og
meðalþyngdarbreytingar 425 áa,
sem lifandi voru við maívigtun í
byrjun sauðburðar. Þegar lömb voru
tekin undan ám 20. september, vógu
ærnar 67,0 kg til jafnaðar, sem er
1,6 kg meiri þungi en árið áður.
Ærnar voru nú í betri holdum en
oftast áður er þær komu af fjalli.
Meðalholdastig þeirra var 3,71 stig
(holdastigaskali spannar tölugildi
frá 0 lægst til 5 hæst), sem er 0,23
stigum hærra en haustið áður.
Haustmeðferð ánna var hagað á
sama hátt og undanfarin haust. Am
á annan vetur, sem gengu með
lömbum, var beitt á há, en aðrar ær
vom í úthaga til 18. október en þá
var farið að gefa öllum ánum út
rúllubundið hey (fyrningar) og því
haldið áfram til hýsingar. Vegna
snjóa og hrakviðra í nóvember voru
allar ær búsins teknar á gjöf á húsi
um miðjan nóvember, sem er
nokkuð fyrr en venja hefur verið til
á undanfömum árum, enda er
haustþynging þeirra nú til des-
embervigtunar með meira móti, eða
5,1 kg til jafnaðar. Féð var flutt í
nýju fjárhúsin 15. desember og var
með því hætt að hafa fé í Máva-
hlíðarhúsunum, til mikillar hagræð-
ingar fyrir rekstur búsins.
I desember og til fengitímaloka
má heita að æmar hafi staðið í stað
í þunga en bættu þó við hold sín sem
svarar 0,22 stigum, sem er nokkru
minni holdaaukning en á sama tíma
sl. vetur. Frá fengitímalokum til
marsvigtunar þyngdust þær um 6,7
kg og bættu jafnframt við hold sín
0,23 stigum og frá marsvigtun til
mánaðamóta apríl - maí þyngdust
þær um 5,8 kg, en hins vegar
slöknuðu þær lítillega í holdafari
(-0.10 stig) á þessum tíma, sem er
ámóta aflegging og undanfarna
vetur síðustu sex vikurnar fyrir
burð. Þetta sýnir, að þrátt fyrir
ágæta fóðrun er fóðurþörfinni til
fósturmyndunar tæplega fullnægt til
hins ýtrasta á þessum tíma og verða
ærnar því að taka af forða sínum til
að fullnægja henni.
Meðalþungi ánna við maívigtun
var 84,2 kg, sem er 0,5 kg meiri
Tafla 1. Þungí og þyngdarbreytingar ánna, kg
Þungi, kg.
Þyngdarbreytingar, kg
Aldur Tala 20/9- 18/10- 1/12 6/1- 17/2- 23/3- 20/9-
Ærá: áa 20/9 18/10 1/12 6/1 17/2 23/3 28/4 18/10 1/12 6/1 17/2 23/3 28/4 28/4
8 .......... 7 69,3 69,6 73,0 72,7 76,7 78,3 85,7 0,3 3,4 -0,3 4,0 1,6 7,4 16,4
7 ......... 15 71,8 72,0 75,4 75,8 80,2 81,1 87,0 0,2 3,4 0,4 4,4 0,9 5,9 15,2
6 ......... 32 68,1 70,3 75,0 74,9 78,2 80,1 85,4 2,2 4,7 -0,1 3,3 1,9 5,3 17,3
5 ......... 73 70,1 70,7 75,6 75,0 78,1 80,3 86,2 0,6 4,9 -0,6 3,1 2,2 5,9 16,1
4 ......... 82 69,4 70,6 74,8 75,0 78,8 81,5 86,6 1,2 4,2 0,2 3,8 2,7 5,1 17,2
3 ......... 89 66.2 68,5 72,8 72,7 76,4 79,0 85,4 2,3 4,3 -0,1 3,7 2,6 6,4 19,2
2 ........ 127 63,1 64,5 66,5 65,6 71,0 74,3 80,0 1,4 2,0 -0,9 5,4 3,3 5,7 16,9
Meðaltal 425 67,0 68,4 72,1 71,7 75,8 78,4 84,2 1,4 3,7 -0,4 4,1 2,6 5,8 17,2
366 FREYR - 9. '95