Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1997, Qupperneq 15

Freyr - 01.01.1997, Qupperneq 15
vegna þessarar þróunar. Svolitlar sveiflur eru merkjanlegar á þessu tímabili og er þar um að ræða áhrif frá einu eða fleiri nautum sem eiga margar dætur viðkomandi ár og hafa verið hlutfallslega sterk eða veik í þessum eiginleikum. Þannig er til dæmis toppur í próteinpró- sentu en svolítil lægð í prótein- magni í kúaárgangi 1990 tilkomin vegna Rauðs 82025. Til að glöggva sig enn frekar á þessum breytingum sem orðið hafa samkvæmt myndum 1 til 5 má reikna aðhvarf meðalkynbótagildis á fæðingarár og fá þannig árlega erfðaframför. Þessu er lýst í töflu 1. I töflu 1 kemur fram að breyting- amar em aðeins mismiklar eftir því hvaða mjólkurskeið á í hlut en eins og marga rekur minni til þá er litið á fyrstu þrjú mjólkurskeiðin sem sinn hvem eiginleikann í kynbóta- matinu. En hvað merkja þessar tölur í töflu 1 eiginlega? Samkvæmt töfl- unni er árleg erfðaframför í mjólk- urmagni á fyrsta mjólkurskeiði 16 kíló eða miðað við 4000 kílóa með- alnyt, um 0,4% framfarir á ári. Þetta þýðir með öðmm orðum að þær kýr sem fæddar em 1993 mjólka að meðaltali 16 kílóum meira á fyrsta mjólkurskeiði en kýr fæddar 1992 gera á fyrsta mjólkurskeiði, vegna erfðamunar. Þetta virðist kannski ekki mikið svona við fyrstu sýn en rétt er að hafa í huga og undirstrika að þessi munur er tilkominn vegna mismunar í arfgerð kúnna fæddra sitthvort árið og sá munur er varan- legur. Að munurinn sé varanlegur gerir það að verkum að árlegar erfðaframfarir eru samleggjandi þannig að munur milli kúa sem fæddar em 1980 og 1993 er 16 kg/ári x 14 ár eða 224 kg. Kýmar sem fæddar era 1993 mjólka þannig að meðaltali 224 kg meira en kýr fæddar 1980 vegna erfðamunar. Þetta má leggja út á þann veg að þrátt fyrir það að tvær kýr, önnur fædd 1980 og hin 1993, hljóti sömu meðferð og fóðmn, beri á sama tíma árs og á sama aldri þ.e. allar aðstæð- ur séu eins, þá er milli þeirra munur í mjólkurafköstum upp á 224 kg. Erfðaframfarir í kúastofninum Magn próleins Facðingarár Mynd 3. Próteinmagn I —1. mj.skeið mj.skció —a— 3. mj.skcift Erfðaframfarir í kúastofninum Kituprósvnta Mynd 4. Fituprósenta. Kynbótastarfið verður að sjálf- sögðu að líta á sem hagsmunamál heildarinnar og þrátt fyrir að 16 kg/ ári virðist lítið þá dregur það sig saman þegar litið er til stofnsins í heild. Hér hef ég tekið mjólkur- magn sem dæmi en próteinmagnið skiptir auðvitað meira máli í dag en 1. ‘97 - FREYR11

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.