Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1997, Síða 19

Freyr - 01.01.1997, Síða 19
ennþá. Til að eyða maurum úr gripahúsum, hlöðum og umhverfi þeirra þarf að nota efni til viðbótar venjulegri sótthreinsun. Maurar virðast geta lifað á túnum yfir vetur- inn og borist aftur í hlöður með nýju heyi. Þeir fjölga sér ekki en geta þó lifað í heyi í loftþéttum umbúðum. Minni hætta er því á að riðuveiki komi aftur ef nýjum fjárstofni er gefið rúlluhey í votabandi eingöngu en ekki þurrhey. Fylgja skal fyrir- sögn héraðsdýralæknis um allt varðandi framkvæmd á förgun fjár- ins, sótthreinsun, frágang o.fl. Einkenni riðu: Ótti, fælni, titr- ingur, tannagnístur, sjóntruflun, kláði, álappalegt göngulag, brokk, deyfð, lömun, krampaköst og vanþrif. Riðukindur snarast um ef fengist er við þær, eyrun lafa og þær láta vel við klóri (kjamsa). Fjáreigendur eiga að láta rannsaka grunsamlegar kindur hve- nær sem er og strax. Slík rannsókn er þeim kostnaðarlaus. Tilkynna skal dýralækni eða lögreglu tafar- laust um hverja grunsamlega kind. Þetta á við alla, ekki bara við eig- endur eða heimilisfólk á viðkom- andi bæ. Rúningsmenn eru oft fyrst- ir til að frnna veikina. Best er að þeir noti klippur og hlífðarföt frá viðkomandi bæ. Annars þurfa þeir að sótthreinsa útbúnaðinn milli bæja á riðusvæðum. Arangur er þessi: Riðutilfellum hefur stórfækkað, útbreiðsla hefur stöðvast, veikin hefur ekki borist í nautgripi eins og á Bretlandseyjum og víðar og íslenskir neytendur virðast sáttir við það sem gert hefur verið, gagnstætt því sem orðið hef- ur víða í Evrópu. Riða fannst síðast á nýju svæði fyrir rúmum 8 árum og vonir styrkjast með hverju ári að tekist hafi að uppræta veikina úr nokkrum vamarhólfum, sem áður vom sýkt. Riðafannst þó á 8 bœjum alls árið 1996. Þar af vom 5 bæir á Norðurlandi og 3 á Austfjörðum í 5 vamarhólfum samtals. Arangurinn sem náðst hefur er fyrst og fremst að þakka þegnskap, ósérhlífni og samviskusemi bænda og annarra fjáreigenda. Sama var viðhorf sveitafólks, þegar barist var við Karakúlsjúkdómana fyrir hálfri öld og stuðlaði að því að vel tókst til. Það gæti orðið afdrifankt fyrir sölu á kindakjöti innanlands og útflutn- ingur yrði erfiðari eða legðist niður, ef riðuveiki breiddist út að nýju. Sú hætta vofir yfir að nautgripir gætu smitast. Enn er löng barátta fram- undan. Heilasýni verða tekin úr fullorðnu vanhaldafé og sláturfé (heimaslátmn líka) víða um land. Skoða verður fé í réttum og húsum og skrá vanhöld. Nýjan fjárstofn skal merkja Hvorki má láta til lífs né kaupa fé nema frá ósýktum svæðum. Þetta skulu einnig aðrir virða, sem búa á svæðum þar sem riðuveiki hefur fundist, ekki bara þeir, sem riðan hefur fundist hjá. Slíkt bann við verslun með fé innan riðusvæða ætti að gilda ótiltekinn tíma eða þar til hættan er liðin hjá. Kynbætur fást með því að láta sæða bestu æmar og/eða kaupa lambhrúta frá ósýkt- um hólfum. Aldrei ætti að hafa ketti og hunda í fjárhúsum eða hlöðum. Útrýma skal músum. Hægt er með blóðrannsókn (DNA) að finna mót- stöðumikla einstaklinga, t.d. hrúta, og nýta það við val á ásetningsfé. Ekki má hafa nautgripi í sömu hús- um og sauðfé. Sala á nautgripum frá riðubæjum til lífs er óheimil án leyfis, einnig sala á nautgripum milli varnarhólfa. Danir stofna matvælaráðuneyti Um síðustu áramót varð breyting á skipan ráðuneyta í Danmörku á þann veg að stofnað var Matvæla-, landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðuneyd í stað Landbúnaðar- og Sjávarútvegsráðuneytis áður. Stofnun hins nýja ráðuneytis fór fram í góðri sátt allra hlutaðeigandi aðila. Hið nýja ráðuneyti hefur það verkefni að gæta hagsmuna bæði landbúnaðar, sjávarútvegs, matvælaiðnaðarins og neytenda og eru tals- menn þessara hópa jákvæðir gagnvart því að ágreiningsmál sem upp konta verði betur leyst innan eins ráðuneyds heldur en milli ráðuneyta. Fá dærni ef nokkurt er um að í öðrum löndum finnist þessi samsetning á málaflokkum í einu ráðuneyti. Matvælaframleiðsla og útflutningur matvæla er stærri þáttur í jijóðarbúskap Dana en í flestum löndum og fær ráðuneydð m.a. það verkefni að hafa opinbera stjórn á öllu eftirlid með matvælum á öllum sdgum framleiðslu og viðskipta. Ráðherra hins nýja ráðuneytis er Henrik Dam Kristensen. (Landsbladet nr. l/'97). Tóbaksbændur í Evrópu anda léttar Tóbaksbændur og starfsmenn í tóbaksiðnaði í sunnanverðri Evrópu, alls um 200 þúsund manns, geta nú andað léttara eftir að embættis- mannaráð ESB ákvað að breyta styrkjum bandalagsins sem tóbaksiðn- aðurinn nýtur, í stað þess að leggja þá niður, eins og kröfur voru uppi unt. Styrkir til tóbaksframleiðslu og tóbaksiðnaðar nema um 115 milljörð- urn króna á ári í ESB og hafa |ieir verið gagnrýndir harðlega á þeim for- sendum að reykingar séu heilsuspillandi. Talsmenn ESB benda hins vegar á að nú þegar séu 77% af tóbaki, sem neytt sé í ESB, flutt inn. Afnám styrkjakerfisins leiði eingöngu til þess að 100% tóbaks, sem neytt sé yrði innflutt og 200 þúsund manns í Evr- ópusambandinu bætist við í hópi atvinnuleysingja. (Landsbladet nr. l/'97). 1. ‘97-FREYR15

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.