Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1997, Page 20

Freyr - 01.01.1997, Page 20
Ræktun jarðarberja Ræktun garðjarðarberja á sér alllanga sögu á íslandi. Með nýjum afbrigðum og nýrri ræktunartækni hefur ræktunin smám saman orðið auðveldari Garðjaröarber á íslandi Garðjarðarber eru önnur tegund en smávöxnu, villtu íslensku jarðarber- in. Garðjarðarber urðu til fyrir 200- 250 árum, þegar tveimur amerísk- um jarðarberjategundum var æxlað saman í Frakklandi. Það er ekki vit- að hvenær fyrst var reynt að rækta garðjarðarber á Islandi. Einar Helgason skrifar í Hvannir árið 1926: „Það er alveg á takmörk- unum að hin útlendu jarðarber geti þrifist hér á landi, og þau ná ekki þroska á bersvæði fyrr en svo seint á sumri að uppskeran verður sára lítil.“ A öðrum áratug aldarinnar virðist lítið vera ræktað af garðjarð- arberjum á Islandi. Árið 1941 skrifaði Martínus Sim- son, ljósmyndari á ísafirði, grein í Garðyrkjuritið og segist hafa ræktað jarðarber þar vestra um tíu ára skeið, með góðum árangri. Hann notaði afbrigðið Deutsch evem og fékk um 200 g af berjum af plöntu, sem verður að teljast mjög góð upp- skera, vegna þess að hann notaði ekki gróðurhlífar. Hins vegar lagði Simson áherslu á að skýla plöntun- um vel. I klausu frá ritstjóra Garð- yrkjuritsins, sem fylgir greininni, segir að ræktun jarðarberja sé stöð- ugt að aukast á Islandi. Unnsteinn Olafsson (1939) lagði áherslu á að nota sólreiti, ylreiti eða gróðurhús til að rækta garðjarðar- Eftir Magnús Óskarsson frá Hvanneyri ber. Hann stakk upp á því að rækta berin á hillum í gróðurhúsum, að- ferð sem á seinni árum hefur rutt sér til rúms. Sturla Friðriksson (1952) sagði: „Árið 1947 voru fluttar til landsins all margar tegundir af jarðarberja- jurtum á vegum Atvinnudeildar Há- Jarðarber íblóma í tilraun á Hvanneyri. (Ljósm. M.Ó.) 16 FREYR-1. ‘97

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.