Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1997, Qupperneq 23

Freyr - 01.01.1997, Qupperneq 23
Varahlutir úr grísastíunni Aþað að vera svínalifur? Að þessu sinni er það ekki þjónninn sem spyr, heldur læknirinn. Læknar sem stunda líffæraflutninga skortir líffæri og eru í líffæraleit. Það geng- ur ekki að bíða eftir að nógu margir deyi í umferðaslysum. Biðin eftir líf- færum myndi styttast ef unnt væri að sækja þau út í svínahús. Hér er einkum um að ræða nýru, lifur og lungu, en einnig sjálft tákn- ið fyrir lífið, hjartað. Á máli sér- fræðinga er flutningur á líffærum milli dýrategunda nefndur xeno- transplantation og það er erfðatækni sem gerir kleift að stunda hana. Mannslíkaminn mundi samstundis hafna “venjulegu” líffæri úr grís, ef því yrði komið fyrir í honum. Onæmiskerfið sæi um það. Við því er til ráð. Inn í frjóvgaða eggfrumu úr svíni er bætt genum úr manns- litningum sem ónæmiskerfi manna kannast við og samþykkir. Grísinn með nýju genunum lítur út ná- kvæmlega eins og aðrir grísir, en allar frumur hans veifa ”manns”- fána. Þetta er líkast fölsku flaggi, sem fær mannslíkamann til að trúa því að nýju líffærið sé kunnuglegt. Vísindamenn beita einnig fleiri ráðum til að blekkja líkama manna. Sérfræðingar í erfðatækni í Bret- landi eru sannfærðir um að öll vandamál í þessu sambandi megi leysa. Grísir með mennsk gen eru í ræktun til að gera tilraunir með þá. Tekist hefur að láta apa lifa allt upp í tvo mánuði með hjarta úr grís. Þessar tilraunir hafa vakið gífurlega athygli. Bæði vísindamenn í læknis- fræði, lyfjaiðnaðurinn, opinberir aðilar og almenningur fylgist með þróuninni. Ef það tekst að leysa öll þau vandamál sem þrátt fyrir allt eru enn óleyst, vakna margar nýjar spumingar, bæði læknisfræðilegar og siðferðilegar. Veirufræðingar eru afar tor- tryggnir. Ut frá þekkingu þeirra á því hvemig smitefni aðlagast um- Hvað þarf maðurinn að fá mörg líffœri úr svíni áður en hann hættir að nota kenni- tölu ogfœr œttbókar- númer? hverfi sínu vita þeir að nýir sjúk- dómar geta orðið til þegar sýkillinn kemst í nýtt “umhverfi”. Fólk með líffæri úr öðrum tegundum er kjör- inn vettvangur fyrir myndun nýrra sjúkdómsvalda. Þar sem fólkið er háð lyfjum sem halda ónæmiskerf- inu niðri. Spánskaveikin árið 1918 var eins konar svínainflúensa sem lagðist á fólk. Eyðni og Ebóla veik- in eiga e.t.v. rætur að rekja til sjúk- dóma meðal apa. Jafnvel þótt þess sé ítarlega gætt að nota grísi sem eru lausir við hvers kyns þekkta sjúkdóma er ekki unnt að vera ömggur. Og ef það kemur fram ný veirutegund, veiru- fræðingar segja ekki hvort heldur þegar, getur veiran dreifst meðal fólks áður en hún uppgötvast. Þar með er líffæraflutningur ekki lengur spuming um hvaða áhættu líffæra- þeginn vill taka, heldur er um sam- félagslegt heilsuvandamál að ræða. Vill fólk fá líffæri úr öðmm dýra- tegundum? Sumir svara því játandi umyrðalaust, uppruninn skiptir engu mál ef unnt er að lengja lífið með því. Aðrir neita því jafn ein- dregið. Er notkun líffæra úr grísum skref á leið til ódauðleikans? Hvað sem því líður opnar það nýja möguleika og kemur huganum á flug. Hve mörg líffæri úr svínum þurfum við að fá áður en við hættum að nota kennitölu og fömm að nota ættbók- amúmer? En að öllu gamni slepptu, mikil- vægast í þessu sambandi er e.t.v. hin kunna umræða um skiptingu fjármunanna. Ef líffæraflutningur úr dýrum í menn yrði framkvæman- legur lengdust biðlistar þeirra sem vildu fá ný líffæri. Afrekslæknisað- gerðir, sem eru dýrar, em oftast í þágu þeirra sem hafa efni á þeim, en ekki ætíð þeirra sem þarfnast þeirra mest. Á þjóðfélagið að gefa þeim meiri forgang en t.d. bæklunarlækn- ingum? Hvemig á að verja fjármun- um sem veitt er til heilbrigðismála þannig að sem flestir lifi við sem besta heilsu? Þegar Chris Bamard framkvæmdi fyrsta hjartaflutninginn á manni, þá geri hann það bara. Engin siðfræði- nefnd fjallað um málið, engir opin- berir aðilar könnuðu afleiðingar þess eða settu skilyrði. Vegna þess hve aðgerðin tókst vel vora umræð- umar um þessa nýju möguleika að nokkra leyti kæfðar í fæðingu. Það er erfitt að stöðva “framþróunina” og “framfarimar” þó að þær séu umdeildar. Núorðið telja hins vegar flestir að nógu langt sé gengið í þessari þró- un. Gerð hefur verið skoðanakönn- un í Englandi um líffæraflutning úr grísum. I svömm margra kom fram að það álit að við væmm að gleyma því að leyfa fólki að deyja í friði þegar tími þess er kominn. Þetta er e.t.v. hin heilbirgða lífs- skoðun mannsins á götunni þegar læknasjarmöramir verða of ákafir og risarnir meðal lyfjafyrirtæka fjárfesta stómm í von um að komast í feitt. (Norsk Landbruk nr. 26/’96, úr grein eftir Karen Johanne Balsrud) 1. ‘97-FREYR19

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.