Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1997, Page 24

Freyr - 01.01.1997, Page 24
„Til þess eru refarmr skornir Hugleiðing í tilefni af orðavali í fréttum Ríkisútvarpsins um fjárveit- ingar á fjárlögum um áramótin 1996/1997 til fækkunar refa Stundum hvarflar það að mönn- um að fjölmiðlar nútímans séu að verða ráðríkara afl í mannlífinu en góðu hófi gegnir. Eða hvenær og hvemig var þeim fengið vald til að móta viðhorf fólks og gang mála á þann hátt sem nú gerist? Og hver þekkir ekki viðleitni þeirra til að draga skoðanir í dilka, þar sem sumar teljast réttar og æskilegar en aðrar eru stimplaðar sem „fordóm- ar“. Það væri vissulega ómaksins vert að virða fyrir sér hvernig það ljóta orð er notað í seinni tíð til að móta viðhorf manna. Hver þorir að halda fram skoðunum eða verja við- horf sem fjölmiðlar hafa sameinast um að stimpla sem fordóma? Og hver rís til varnar ef fjölmiðlar vilja sverta eitthvert mannlegt athæfi með niðrandi orðavali? Tilefni slíkra hugrenninga er ný- legt dæmi um skoðanastjórnun og viðhorfsmótun fjölmiðla, sem vakti athygli manna sem hugleitt hafa það málefni sem til umræðu var. I leit sinni að sparnaðarmöguleikum hafði stjórnvöldum m.a. dottið í hug að ríkið hætti að standa straum af kostnaði við refaveiðar og grenja- vinnslu, sem það hefur lengi gert. Segja má að jarðvegur fyrir þá breytingu hafi verið undirbúinn á undanförnum árum með sjónarmið- um vinveittari íslenska villirefnum en ríkt hafa í landinu frá fornu fari. Þau nýju sjónarmið ganga út á það að þessi frumbyggi landsins, refur- inn, eigi sinn tilverurétt, hann sé eðlilegur hluti íslenskrar náttúru, hann valdi hverfandi skaða á búfé, vegna breyttra búnaðarhátta, reynsl- an sýni að við getum ekki útrýmt honum, þrátt fyrir aldalanga við- leitni o.s.frv. Sjálfgefið sé að hætta „ofsóknum" og „drápi", enda þar um gamlan, dýran og tilefnislausan ósið að ræða. Þeir sem ekki aðhyll- ast þessi sjónarmið og telja refa- Eftir Eystein G. Gíslason, Skáleyjum fækkun illa nauðsyn og óhjákvæmi- lega, sem fyrr, eru þá stundum litnir sem ruddaleg illmenni, haldin dráp- fýsn og fordómum. Skammt er að minnast geðshræringar sem greip þjóðina þegar maður nokkur hand- samaði ref og stytti honum aldur. Þeirri geðsveiflu voru gerð skil í ný- afstöðnu áramótaskaupi. En hvað sem því líður; í umfjöllun um þá fyrirætlun löggjafans, sem nefnd er hér að framan, varð fjölmiðlum tíð- rætt um dráp og drápsáhuga þeirra sem gjalda varhug við áformaðri breytingu. Ekki leyndi sér viðleitni til að fordæma slík sjónarmið. Enda mætti nú fyrr vera ef við hefð- um ekkert lært í málatilbúnaði af „grínpísum" og „síséppördum" á liðnum árum. Nú er þess að geta, sem margir vita, að frá örófi alda hafa lífverur jarðarinnar lifað hver á annarri, í ei- lífri hringrás, og er það víst um nátt- úrulögmál að ræða, sem mann- skepnan er seld undir eins og allar hinar. Það eru álög sem við getum ekki losað okkur undan, ennþá a.m.k. en vegna sk. vitsmuna okkar ber okkur ærin skylda til að ganga þar fram með fullri gát, og miklu meiri en við löngum höfum gert. Möguleikar okkar til að stuðla að jafnvægi og láta gott af okkur leiða í náttúrunnar ríki eru miklir, þrátt fyrir allt. Mörgu lífi er fargað Við íslendingar þurfum að aflífa aragrúa lífvera árlega af jurta- og dýraríki, eins og aðrar þjóðir, til að lifa í þessu landi. Hjá því verður því miður ekki komist. Sumir aflífa jurtir, búfénað og fisk okkur til lífs- bjargar. Aðrir halda í skefjum rán- dýrum, nagdýrum, skordýrum og sýklum, af illri nauðsyn. Enn aðrir eru haldnir einni af frumstæðustu áráttu mannsins og hafa ánægju af veiðum. I öllum tilfellum er þama um dráp að ræða en í mæltu máli notum við þó að jafnaði önnur orð þar um. Við sláum grasið og emm sláttumenn, ekki jurtadráparar. Við lógum eða slátrum búfé og emm í hæsta lagi slátrarar, ekki búfjár- dráparar. Við aflífum fisk í tug- milljónatali og stundum þar með fiskveiðar, frekar en þorska- eða loðnudráp. Hópur manna ber starfs- heitið meindýraeyðir, en engan hef ég heyrt titlaðan rottudrápara eða flugnamorðingja. Varla mundu læknar samþykkja starfsheitið sýkladrepari og þannig mætti áfram telja. Hingað til hefur það einnig tíðkast í fslensku máli að tala um refaveiðar og grenjavinnslu, frekar en refadráp. I gamla bændasam- félaginu var orðstír góðrar refa- skyttu oft mikill og útbreiddur, og þeir sem lengst náðu á því sviði urðu þjóðsagnahetjur í lifanda lífi. Enginn stimplaði þá drápara og ill- menni. Þeir voru einfaldlega að gegna nauðsynlegu hlutverki. En aðstæður og viðhorf breytast. Það sem áður var ill nauðsyn kann 20 FREYR -1. ‘97

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.