Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1997, Síða 42

Freyr - 01.01.1997, Síða 42
Er búið að bolusetja við garnaveiki ? Eftir Sigurð Sigurðarson dýralækni Ennþá veldur garnaveiki tals- verðu tjóni á íslandi og hún breiðist enn út í sauðfé og nautgrip- um á vissum svæðum. Öll jórturdýr eru í hættu. Það er óviðunandi að hvorki skuli hafa tekist að stöðva útbreiðslu veikinnar né útrýma henni af Islandi. Það er hægt og að því þarf að stefna. Á Vestfjörðum virðist hafa tekist að útrýma veik- inni með samstilltu átaki. Bólusetn- ingu hefur nú verið hætt þar. Á sum- um svæðum vantar aðeins herslu- muninn. Nokkur héruð hafa aldrei fengið veikina. Þar er ekki bólusett. Hvemig á að fara að til að uppræta veikina? Eftirtalin atriði skipta miklu máli: 1. Rannsaka skal alla grunsamlega gripi, svo að veikin finnist, hvar sem hún er til staðar, hvort held- ur sem er í sauðfé, nautgripum eða geitum. - Gamasýni þarf að skoða úr öllum fullorðnum jórturdýrum, sem slátrað er (einnig heimaslátmðu) og ekki síður úr öllum vanhalda- gripum. - Blóðsýni þarf að taka úr nautgrip- um og e.t.v. saursýni til sýklaleit- ar. 2. Bólusetja skal öll ásetningslömb fyrir áramót en þó er betra að það sé gert snemma hausts, einkum á garnaveikibæjum. Lömbin fá mótefni í móðurmjólkinni. Þau endast fram í ágúst/sept. Full vöm fæst fyrst 3-4 vikum eftir bólusetningu. Ekki má gleymast að bólusetja síðheimt lömb. 3. Aðskiljið frá hausti, á túni og húsi, ásetningslömb og fullorðið fé (vegna smitbera). 4. Gefið aðeins hey/vatn, sem er ómengað af taði úr smituðu fé (Ath. smituð beitilönd) 5. Gangið hreinlega um húsin. Gætið að því að vatn óhreinkist ekki í drykkjarílátum 6. Varist kaup eða hýsingu á ókunn- ugu fé, sem kynni að vera smitað. 7. Varist kaup á heyi af sýktu svæði, einnig túnþökur, vélar, tæki o.fl. Sveitarstjórn er ábyrg fyrir bólusetningunni. Eftirlitsmaður (héraðsdýralæknir), skal fylgjast með því að bólusetningin sé fram- kvæmd, aðstoða og leiðbeina. Senda skal yfirdýralækni skýrslu um bólusetninguna sem fyrst, eftir að lokið er. Áhrif bólusetningarinnar til vamar eru þeim mun betri sem fyrr er bólusett að haustinu. Ef seint er bólusett, er hætt við að sum lömbin verði smitberar um árabil og skapi hættu fyrir annað sauðfé og naut- gripi bæði heima og heiman. Á einstaka svæðum má fara að at- huga hvort óhætt sé að gera svipaða tilraun og á Vestfjörðum með að hætta bólusetningu. Það verður aðeins gert með samstilltu átaki í samvinnu við heimamenn. Allt þarf að hafa verið í lagi og nokkur ár verða að hafa liðið frá síðasta gama- veikitilfelli á viðkomandi svæði. Gamaveiki barst til landsins með karakúlfé, sem kom 1933. Með því bárust einnig veimsjúkdómar, sem hefur nú verið útrýmt (Votamæði, þurramæði og visna). Veikinni veldur sýkill af berkla- flokki. Hann er lífseigur og lifir í taði og óhreinindum frá sýktum og smituðum gripum(l - 1 1/2 ár) og berst með smituðum gripum og öllu sem óhreinkast, heyi, tækjum, hlífð- arfötum, einkum skófatnaði o.fl.. Hreinlæti er því höfuðdyggð í allri umgengni við smitað fé. Þar sem bólusett er, verða blóðpróf ekki að gagni til að leita að smituðu sauðfé. Stundum er hægt að finna smitbera með því að leita að sýklunum í saur. 38 FREYR -1.‘97

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.