Freyr - 01.08.1998, Síða 21
Samanburður
á tveimur svínabúum
eftir Pétur Sigtryggsson,
svínaræktarráðunaut BÍ
Til að sýna fram á þær framfarir sem hafa orðið í ís-
lenskri svínarækt er hér á eftir borinn saman rekstur
tveggja svínabúa sem framleiða 1000 sláturgrisi á ári.
Notaðar eru áætlaðar tölur samkvæmt sláturskýrslum og
forðagæsluskýrslum og meðalaldur sláturgrisa úr af-
kvæmarannsóknum frá árunum 1983 og 1997.
Fallþungi sláturgrísa
Svínabú 1983: 1000 sláturgrísir x 54,6 kg fallþungi x
270 kr/kg = 14.742.000 kr. í framleiðslutekjur.
Svínabúl997: 1000 sláturgrísir x 65,7 kg fallþungi x 270
kr/kg = 17.739.000 kr. í framleiðslutekjur.
Mismunur á framleiðslutekjum: 2.997.000 kr.
Niðurstöður skýrsluhalds sýna að færustu og dugleg-
ustu svínabændumir framleiða nú sláturgrísi með rúm-
lega 70 kg fallþunga.
Meðalaldur sláturgrísa
Svínabú 1983: Meðalaldur sláturgrísa við slátrun samkv.
skýrsluhaldi 228 dagar.
Svínabú 1997: Meðalaldur sláturgrísa við slátrun samkv.
skýrsluhaldi 170 dagar.
Mismunur á meðalaldri sláturgrísa við slátrun: 58 dagar.
Ef fóðurkostnaður, vinna og fjármagnskostnaður er
áætlaður 100 kr. á dag á eldisskeiðinu þá er framleiðslu-
kostnaðurinn á svínabúi 1997 5800 kr. lægri á hvem slát-
urgrís, eða alls 5.800.000 kr. lægri en á svínabúi 1983.
Fjöldi nytjagrísa eftir hverja gyltu á ári
Svínabú 1983: 13,4 nytjagrísir eftir hverja gyltu á ári.
Svínabú 1997: 17,7 nytjagrísir eftir hverja gyltu á ári.
Eigandi svínabús 1983 þarf því 75 gyltur til að framleiða
1000 sláturgrísi á sama tíma og eigandi svínabús
1997 þarf 57 gyltur til að framleiða 1000 sláturgrísi.
Mismunur: 18 gyltur.
Niðurstöður skýrsluhalds sýna að fæmstu og dugleg-
ustu svínabændumir fá 20-24 nytjagrísi eftir hverja
gyltu á ári.
Byggingarkostnaður
Samkvæmt upplýsingum frá Bændasamtökum íslands
er áætlaður byggingarkostnaður yfir eina gyltu og af-
kvæmi hennar eftirfarandi:
a) Hús: 12-13 m2 á 34.040 kr/m2, eða 408.480 - 442.520
kr.
b) Haughús: 15 m3 á ca 5.000 kr/m3 eða 75.000 kr.
Aætlaður byggingarkostnaður yfir eina gyltu og af-
kvæmi hennar er samkvæmt þessum upplýsingum
483.480-517.520 kr.
Byggingarkostnaður svínabús 1983: 75 gylturx 517.520
kr. eða 38.814.000 kr.
Byggingarkostnaður svínabús 1997: 57 gyltur x 517.520
kr. eða 29.498.640 kr.
Mismunur: 9.315.360 kr.
Fóðurkostnaður
Svínabú 1983: 75 gyltur x 2,5 FEs /dag x 365 dagar x 32
kr/Fe eða 2.190.000 kr.
Svínabú 1997:57 gyltur x 2,5 FEs /dag x 365 dagar x 32
kr/Fe eða 1.664.400 kr.
Mismunur: 525.600 kr.
Launakostnaður
Svínabú 1983: 75 gyltur x 17,5 klst. á ári x 500 kr/klst.
eða 656.250 kr.
Svínabú 1997: 57 gyltur x 17,5 klst. á ári x 500 kr/klst.
eða 498.750 kr.
Mismunur: 157.500 kr.
Þaö er ekkert grín að vera svín og trúa á líf eftir jólin.
Freyr 10/98 - 21