Freyr - 01.03.1999, Qupperneq 23
við fræ af afbrigðinu Filippa og er
verð samkvæmt gildandi verðskrá
Mjólkurfélags Reykjavíkur í apríl
1998.
* Álag (100%) er reiknað á
virkan vinnutíma sem ætlað er
vegna þess tíma sem tekur að
tengja og stilla vélar og vegna
ferða.
Kornskurður
og þresking
Segja má að verkun korns hefjist
með kornskurðinum. Hérlendis er
algengast að kornbændur sái í til-
tölulega fáa hektara lands sem ekki
standa undir fjárfestingu í þreski-
vél. Algengast er þvf að þreskivélar
séu keyptar í hlutafélagi eða þres-
king sé keypt af verktaka. Könnuð
var verðlagning slíkrar þjónustu í
maí 1998 og reyndist hún vera á
bilinu 3.500-4.300 kr/klst. í þessari
skýrslu er reiknað með að meðal-
kostnaður vegna þreskingar sé
4.000 kr/ha. Miðað við korn-
skurðarvél með vinnslubreiddina
2,7 metrar tekur um 2,0 klst. að slá
og þreskja korn af einum hektara.
Votverkun
Algengast er að bændur votverki
kornið, enda hefur það verið talin
ódýr verkunaraðferð. Hún hefur
hins vegar þann galla að gæði
kornsins geta verið mismunandi og
að meiri hætta er á skemmdum ef
verkun er slök og ef mýs ná að naga
göt á umbúðir. Dæmi eru um tölu-
verðar skemmdir af þessum sökum
hjá bændum. Með hliðsjón af þeirri
reynslu var ákveðið að taka tillit til
rýrnunar sem algengt er að fylgi
þessari verkunaraðferð og eru afföll
vegna þessa áætluð 5% að rneðal-
tali. Miðað er við verkun í stór-
sekkjum sem fóðraðir eru að innan
með plasti. Endingartími sekkjanna
er áætlaður 3 ár, en plastið verður
að endurnýja árlega. Vélavinna er
2. tafla. Kostnaður við votverkun
Verð kr/ein. Einingar Samt. kr/ha Samt. kr/kg
Plastpokar 443 5,8 2.569 0,73
Stórsekkir 1.900 5,8/3 3.673 1,05
Vinnulaun 568 2,0 1.136 0,32
Vélavinna 1.159 - 1.159 0,33
Afföll (5%) 2.541 - 2.541 0,73
Völsun 4.725 - 4.725 1,35
Samtals 15.803 4,51
3. tafla. Heildarkostnaður á korni tilbúnu til gjafar
Votverkun (stórsekkir) Þurrkun (aðkeypt)
kr/ha kr/kg kr/ha kr/kg
Jarðvinnsla og sáning 37.452 10,70 37.452 10,70
Kornskurður og þresking 8.000 2,29 8.000 2,29
Verkunarkostnaður 11.079 3,17 26.250 7,50
Völsun 4.725 1,35 5.390 1,54
Geymslukostnaður 319 0,09 319 0,09
Samtals 61.575 17,60 77.411 22,12
reiknuð sem hlutdeild í dráttarvéla-
kostnaði meðalkúabús í búreikn-
ingum, þ.e. breytilegur kostnaður
og olía. Miðað er við að kornið sé
valsað fyrir einn dag í senn, orku-
notkun á valsi sé um 8 kWh/t og að
valsinn afkasti um 500 kg/klst.
Kornþurrkun
Mismunandi aðferðir eru notaðar
til þess að þurrka kornið. Sumir
bændur hafa aðstöðu til að þurrka
kornið sjálfir á meðan aðrir kaupa
verksmiðjuþurrkun fyrir uppskeru
sína. Kostnaður við að koma upp
búnaði til þurrkunar og rekstrar-
kostnaður þess búnaðar getur verið
mjög mismunandi eftir aðstæðum
og ræður miklu aðgengi að hag-
kvæmri orku. Einnig er mikilvægt
að hentugt húsnæði sé fyrir hendi ef
súgþurrka á komið heima. Áður en
út í slíka fjárfestingu er ráðist
verður að reikna út hvort arðsemi
he nnar er hærri en sá kostnaður
sem til fellur ef þurrkun væri keypt
af verktaka. Ákvörðun skýrslu-
höfunda var að reikna ekki út sér-
staklega kostnað við að koma upp
þurrkunarbúnaði, vegna þess
hversu aðstæður eru mismunandi á
búunum hvað varðar aðstöðu og
orkuverð. Algengt er að korn-
bændur sem keyptu þurrkun
sumarið 1997 hafi greitt 5 krónur
fyrir hvert þurrkað kg af korni og er
þá flutningur til og frá þurrkunar-
stað ekki meðtalinn.
Heildarkostnaður á
korni tilbúnu til gjafar
í 3. töflu er sýnd samantekt
útreikninga fyrir heildarkostnað og
kostnaðarskiptingu á korni sem til-
búið er til gjafar. Miðað er við
meðalkostnað, en í kaflanum um
hagkvæmnimörk hér á eftir er gerð
grein fyrir helstu forsendum sem
breytilegar eru milli einstakra rækt-
enda eða tímabila.
*• Kostnaður við votverkun mið-
ast við súrsun í 600 kg stórsekkjum.
* Kostnaður við þurrkun miðast
við að hún sé keypt af verktaka og
FREYR 2/99 - 23