Freyr - 01.03.1999, Side 29
Mynd 1. Sópvinda og skurðarborð. Sópvindu er hœgt að stilla upp og
niður, fram og aftur, og auk þess snúningshraðann. Ferilhraði sóp-
vindunnar á að vera örlítið meiri en ökuhraðinn þannig að sópvindan
leggi stráin mjúklega inn á skurðarborðið með öxin á undan. Kambarnir
eiga að snerta stráin rétt neðan við öxin (efri mynd). Algeng mistök við
þreskingu er að sópvinda er höfð of neðarlega og látin snúast of hratt
(neðri mynd). Það getur valdið miklu korntapi
borðin er að ef verið er að skera
mjög strástutt þá getur uppskeran
safnast fyrir á borðinu framan við
færisnigilinn og ýmist stíflað vélina
eða farið í haugum inn í þreski-
verkið sem veldur afleitri þreskingu
með tilheyrandi korntapi. Til að
mæta þessu er gott að geta stillt
stöðu sópvindunnar fram og aftur
innan úr ökumannshúsi. Flestar
þreskivélar sem nú eru á markaði
hafa lengd skurðarborðs á bilinu
50-60 cm.
Hæð skurðarborðs yfir jörðu er
hægt að stilla innan úr ökumanns-
húsi, og á sumum vélum er sjálfvirk
hæðarstilling. Meiðar eru undir
borðinu til að verja botninn, hindra
að skurðbúnaður gangi of nálægt
jörðu (6-12 cm) og hindra að stein-
ar og jarðvegur safnist framan við
borðið og fari inn á borðið.
Léttibúnaður er til að minnka álag á
meiða borðsins og til að það fljóti
betur yfír ójöfnur ef slegið er mjög
nærri jörðu eins og þarf að gera
þegar akurinn er í legu. Léttibún-
aðurinn á að taka það mikinn þunga
af skurðarborðinu að hægt sé að
lyfta því með hendinni með því að
taka í stráskilju borðsins. Það má
þó ekki vera svo létt að það fari að
sveiflast upp og niður þegar ekið er
á ójöfnu landi.
Skurðbúnaður
Til skurðbúnaðar teljast; greiðu-
fingur, ljár, axlyftur og drifbúnaður
ljásins. Ljárinn gengur venjulega
um 500 tvöföld slög (fram og til
baka) á mínútu (8,33 á slög á sek-
úndu), sem þýðir að ef bil á milli
fingra er 76 mm er ferilhraði ljásins
að meðaltali um 1,2-1,3 m/s. Al-
gengt er að eggjar ljáblaða séu
riflaðar en slík blöð endast lengur
og "halda" betur stráinu meðan sko-
rið er. Fingur eiga að vera nægi-
lega oddlivassir til að það safnist
ekki á þá, og þeir eiga að vera í
beinni línu til að lágmarka álag á
skurðbúnaðinn. Hægt er að rétta þá
með því að beygja þá til.
Axlyftur eru hjálparbúnaður
framan á fingur sem er ætlað að
fara undir plöntur sem liggja og
lyfta þeim upp fyrir ljáinn þannig
að sópvinda nái að ýta þeim inn á
skurðarborðið. Nýjar vélar eru
venjulega afgreiddar með eina
axlyftu á hvert "fet" vinnslubreidd-
ar (4. til 5. hvem fingur), en við
erfiðar aðstæður getur þurft að nota
fleiri axlyftur (2. til 3. hvern
fingur). Með axlyftum og rétt
stilltri sópvindu á að vera hægt að
skera liggjandi akur án þess að
korntap verði verulegt. Fyrir kem-
ur að axlyfturnar taki upp jarðveg
og steina en með réttri notkun á þó
ekki að vera hætta á því og þess
vegna í lagi að hafa þær alltaf á vél-
inni. Ekki er ráðlagt að hafa ax-
lyftu nær enda en á þriðja eða
fjórða fingri, annars er hætta á að
uppskeran safnist þar fyrir.
Sópvinda
Hlutverk sópvindu er að stýra
uppskerunni mjúklega inn á skurð-
arborðið, oftast þannig að öxin komi
FREYR 2/99 - 29