Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.2001, Qupperneq 6

Freyr - 01.03.2001, Qupperneq 6
Búið er að banna hænsnahald í búrum í Sviss. Hér eru lífrænt vottaðar, frísk- legar, hænur sem hliðarbúgrein á fjölskyldubúi Köbi Treichler við Baar. Varp- kassar og sjálfvirk fóðrun eru til vinstri og hægra megin eru op út í gerði þaðan sem leiðin er greið út á afgirtar túnspildur. Meðalvarp á hænu er 270 egg á ári. Skemmst er frá því að segja að til mannspekinga í Dornach er gott að koma og byggingastíll mannvirkja þeirra er mjög athyglisverður. I Gotheanum stofnuninni er miðstöð hins alþjóðlega samfélags mann- spekinga og þar með hinnar lífefldu hreyfingar. Stofnunin hefur náin tengsl við „Demeter“ stofnunina sem annast vottun og markaðssetn- ingu afurða. Auk þess að skoða staðinn gafst kostur á að hlýða á yf- irlitserindi um lífefldan landbúnað og varð ég ýmiss vísari. Vísinda- starfsemi stofnunarinnar byggist mest á athugunum á búum þar sem lífefldur búskapur er stundaður og einnig er lögð áhersla á verklegt nám á bæjunum. Á árlegum ráð- stefnum koma bændur og vísinda- menn saman í Gotheanum. Rudolf Steiner á sér vissulega dygga fylg- ismenn og konur um allan heim en þó fjölgar bændum í þessum geira lítið sem ekkert, hvorki í Sviss ná annars staðar. Aftur á móti er ljóst að „Demeter" vottaðar vörur hafa mjög sterka markaðsstöðu. Á með- al erinda sem flutt voru á áður- nefndri ráðstefnu í Basel voru nokkur sem kynntu niðurstöður athugana á lífefldum búum í Sviss og víðar. Lífræna miðstöðin í Frick Eftir ráðstefnuna í Basei og heimsóknina í Gotheanum í Dron- ach var haldið í tveggja daga kynn- isferð um landið. Hún hófst með heimsókn á Rannsóknarmiðstöð lífræns landbúnaðar (FiBL) í Frick, liðlega klukkustundar akstur í aust- ur frá Basel (www.fibl.ch). Hún var stofnuð árið 1974 og er elsta og stærsta lífræna rannsóknarmiðstöð- in í heiminum. Um er að ræða sjálfseignarstofnun sem áhugasam- ir bændur, vísindamenn og stjóm- málamenn stofnuðu vegna tregðu hefðbundinna rannsóknarstofnana á að takast á við rannsóknir á möguleikum lífræns búskapar. Þar á stað er blómlegt um að lítast, vel upp byggt og snyrtilegt og á mið- stöðinni er fjölþættur búrekstur sem myndar grundvöll rannsóknar- og þróunarstarfs í þágu lífræns bú- skapar í Sviss, auk verkefna erlend- is. Áhersla er lögð á jarðrækt, þar með gras- og belgjurtarækt, garð- yrkju og vínrækt, nautgriparækt, bæði til mjólkur- og kjötfram- leiðslu, alifuglarækt og svínarækt. Við miðstöðina starfa nú um 80 vísinda- og tæknimenn við rann- sóknir, leiðbeiningar og náms- skeiðahald fyrir bændur og búalið sem eru að aðlaga búskapinn eða hafa fengið vottun. Reyndar annað- ist miðstöðin einnig eftirlit og vott- un til 1999 en þá tóku tvær sjálf- stæðar stofnanir við því hlutverki, „Bio Suisse“ og „Demeter", sem áður var vikið að. Þessar vottunar- aðilar láta þó miðstöðinni í té margvíslegar upplýsingar um bú- rekstur á einstökum jörðum, svo sem vegna hag- og markaðsrann- sókna. Um árabil höfðu IFOAM- Hér sést hænsnahúsið að utan en það rúmar 2000 hænur. Fyrst fara hænurnar út í gerði undir þaki og þaðan út á tún þar sem þær komast í grængresi á sumrin. Þær virðast þó ekki fara langt frá húsi. Lífræn egg nema nú rúmlega 5% af eggjaframleiðslunni í Sviss. (Ljósm. höfundur). 6 - FrGVR 2/2001

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.