Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.2001, Side 20

Freyr - 01.03.2001, Side 20
RÁÐUNAUTAFUNDUR 2001 Tækni Inngangur A síðastliðnum áratug hafa átt sér stað umtalsverðar breytingar á að- ferðum við jarðvinnslu hér á landi. Astæðurnar fyrir því má meðal annars rekja til að veruleg aukning hefur orðið í kornrœkt, en hún kall- ar á agaðri vinnubrögð við jarð- vinnsluna og frágang á sáðbeði og hún hefur ennfremur vakið menn til umhugsunar um ýmsa aðra mikil- væga þætti jarðyrkjunnar. Þá hafa dráttarvélarnar stækkað að miklum mun og flestar nýrri gerðir dráttarvéla eru með aldrif og stærri aflvélar sem gefur allt aðra og betri möguleika á að beita vinnutækjun- um og auka afköstin. Einnig hafa komið til sögunnar nýjar gerðir af jarðvinnslutœkjum sem veita aukið svigrúm til að velja þau tæki sem henta hinum ólíku jarðvegsgerðum sem tekin eru til frum- og endur- ræktunar. í kjölfar þessarar þróunar hafa verið haldin tveggja daga jarðrœktarnámskeið í öllum bún- aðarsamböndum, alls um 27 nám- skeið. Þá má einnig ætla að auknar kröfur um heygœði, einkum við mjólkurframleiðsluna, hafa hvatt menn til aukinnar endurræktunar. Eftirfarandi umfjöllun er ætlað að veita nokkuð yfirlit yfir nýjungar á sviði tækjabúnaðar sem álitlegast er að nota við okkar aðstæður hvað snertir vinnslueiginleika og helstu tæknilegar útfærslur. við jarðvinnslu Grétar Einarsson, Rannsókna- stofnun landbúnaðarins, bútæknideild verði fyrir hendi, (Þorsteinn Guð- mundsson 1994). Það leiðir til að losun næringarefna úr jarðveginum og upptaka gengur hraðar fyrir sig, efnasamsetning plantnanna verður hagstæðari og uppskeran meiri. Oft er samtímis unnið markvisst að því að eyða þeim gróðri sem fyrir er til að skapa nytjaplöntunum sem best svigrúm. Samhliða þessu hafa nrenn oft fleiri markmið í huga eins og að blanda í jarðveginn húsdýra- áburði eða öðrum efnum og einnig að slétta yfirborð jarðvegsins til að umferð um hann við uppskeru- vinnu verði átakaminni. Undirbúningur jarðvinnslu Markmið jarðvinnslu Rétt þykir hér í upphafi að rifja upp að tilgangur jarðvinnslunnar getur verið af ýmsum toga, en í flestum tilvikum er verið að leitast við að vinna jarðveginn þannig að það falli sem best að þörfum nytja- plantnanna. Með því er átt við að jarðvegsbyggingin verði hagstæð, en það er forsenda fyrir því að nægilegt loft, raki og jarðvegslíf Vönduð jarðvinnsla verður oft til lítils ef nauðsynlegum undirbúningi er ekki sinnt. A mýraijarðvegi verð- ur framræslan að vera í góðu lagi og sjá þarf til þess að sýrustigið sé innan heppilegra marka. Ef vafi leikur á því er nauðsyn- legt að taka jarðvegssýni og kalka í samræmi við það. T i 1 - raunir sýna að e n g i n n einn þáttur hefur jafn afgerandi áhrif á ár- angur ræktunar-innar og sýru- stigið og þá þarf að kalka eftir þörfum. Tækni við skurða- hreinsun hefur lítið breyst á undan- fömum ámm, en þó hafa nýlega ver- ið gerðar tilraunir með að moka með skurðgröfu beint í dreifara sem dreifir uppgreftrinum beint inn á spildumar (Grétar Einarsson og Eir- íkur Blöndal 1999). Þær athuganir bentu ekki til að uppmoksturinn hefði neikvæð áhrif á efnasamsetn- ingu jarðvegsins og afköstin em al- veg viðunandi. Með því móti má spara verulegan kostnað við ýtu- vinnu, svo framarlega sem ekki þarf að kýfa spildumar. Nú er á döfinni að reyna skurðahreinsun með öflugu kasthjóli á beltagröfu, en vonast er til að unnt sé að auka afköstin veruleg og ná niður kostnaði. Tækni við grjótnám hefur lítið verið sinnt af rannsóknaraðilum hérlendis, en það er eitt af þeim verkefnum, sem þyrfti að gera kannanir á, því að víða á landinu er grjót í ræktunarlöndum verulegt vandamál. A markaði erlendis em margs konar verkfæri á boðstólum, allt frá einföldum dráttarvélakvíslum upp í vélar sem skila grjótinu upp í flutningatæki. Einnig eru framleiddar grjót- mulningsvélar sem eru tengdar Plógur með siillanlega strengjabreidd og útslátt- arfjöðrum. 20 - pR€VR 2/2001

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.