Freyr

Volume

Freyr - 01.03.2001, Page 36

Freyr - 01.03.2001, Page 36
Húsbruni á Hvanneyri - Mjólkurskólinn á hrakhólum Rjómapóstar að Hvítárvöllum: Guðmundur Tómasson seinna bóndi í Tandraseli, Ásmundur Jónsson, seinna í Borgarnesi, Árni Hjálms- son frá Hofsstöðum (líklega sá sem situr) og Ólafur Ólafsson frá Melkoti (Myndadeild Þjms.). Aðfaranótt 6. október 1903 kom upp eldur í kjallara íbúðarhúss Búnaðarskólans á Hvanneyri. Húsið varð brátt alelda. Vindur stóð á hús Mjólkurskól- ans og læstu logarnir sig í hann. Fór svo að bæði húsin brunnu til grunna og varð tjónið mikið. Kennsla var þá nýhafin í Mjólkurskól- anum. I skyndingu var ákveðið að flytja kennsluna til Reykja- víkur, en áhöldum Mjólkurskólans var flestum bjargað. Hús- næði við hæfi fékkst í kjallara hússins við Að- alstræti númer 18. Þar hófst bókleg kennsla 19. október en mjalta- æfingamar fóru fram í fjósi sr. Þórhalls Bjam- arsonar, formanns Bún- aðarfélags Islands, í Laufási. Veturinn, sem í hönd fór, urðu miklar umræður um framtíð Mjólk- urskólans. Grönfeldt virðist ekki ekki hafa verið með öllu sáttur við vem Mjólkurskólans á Hvanneyri. Á stjórnarfundi Búnaðarfélagsins sumarið 1903 var lagt fram erindi frá honum þar sem hann segir sig úr þjónustu við Búnaðarfélagið “...nema því aðeins að skólinn verði fluttur frá Hvanneyri...” Stakk Grönfeldt upp á Knerri (í Breiðuvík) eða annarri góðri jörð. Ekki er vitað hvað lá að baki þess- um hugmyndum Grönfeldt en ein- hverjir hnökrar höfðu gert vart við sig í sambúð skólanna tveggja. Bruni skólahúsanna greip hins veg- ar inn í framvindu þeirrar umræðu. Eftir hann vildi Grönfeldt halda kennslunni áfram í Reykjavík og efla skólann einnig sem húsmæðra- skóla. A tímabili voru samningar langt komnir um að setja Mjólkur- skólann niður hjá Eggert bónda Briem í Viðey, er þar rak stórt kúabú. Niðurstaða umræðnanna varð hins vegar sú, að Búnaðarfélag Is- lands keypti svonefnt Barónshús á Hvítárvöllum af Ólafi Davíðssyni, bónda þar, til þess að halda áfram starfi Mjólkurskólans. Var þá skammt um liðið frá búskap bar- ónsins, sem brotið hafði upp á ýms- um nýjungum í búskap, m.a. starf- rækslu rjóntabús. Á Hvítárvöllum bjó Grönfeldt um Mjólkurskólann sumarið 1904, og hófst skólastarf- ið formlega þann 1. október. Það réð miklu um val Hvítárvalla sem skólaseturs að bændur voru til- búnir að stofna rjómabú í tengslum við Mjólkurskólann, nágrannar í Það var ekki fyrr en Mjólkurskólinn kom að Hvítárvöllum sem starf hans tók að mót- ast. Starfstíminn á Hvanneyri varð of knappur til þess og veturinn í Reykjavík var eins konar björgun- arstarf. Sigurður ráðunautur Sig- urðsson var ánægður með hvemig skólastarfið fór af stað, og kvað kennsluna svo góða, „sem framast má vænta, þegar litið er á allar ástœður, stuttan undirbúningstíma, ónóg húsakynni, fjárskort og fleira“ eins og segir í grein hans um kennsluna frá sumrinu 1901. Að vissu marki virðist Grönfeldt lengst af hafa verið leitandi um skólastarfið. Á það bæði við um áherslur í kennslunni sem og lengd námstímans, auk þess sem hann sneri sér í nokkrum mæli að öðrum störfum samhliða því að stjóma Mjólkurskólanum. Svo virðist, að með ámnum hafi kennslan í Mjólk- urskólanum hneigst í átt til al- Andakíl og Bæjarsveit en einnig nokkrir norðan Hvítár. Inn- leggjendur urðu marg- ir, t.d. voru þeir 35 árið 1910. Um hríð höfðu þeir með sér naut- griparæktarfélag. Rjómabúið á Hvítár- völlum starfaði einnig að vetrinum, en það var fátítt um rjómabú á þessum árum. Komu þar til þarfir Mjólkur- skólans. Virðist sam- býli atvinnureksturs bændanna og mjólkur- kennslan hafa gefist vel. Hvítárvellir voru forn miðpunktur um- svifa þar í sveitum sem styrktist enn með til- komu hinnar nýju starfsemi. 3. Starf og leikur í Mjólkur- skólanum 36 - F(3€VR 2/2001

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.