Freyr

Volume

Freyr - 01.02.2003, Page 12

Freyr - 01.02.2003, Page 12
Lón II i Kelduhverfi. (Ljósm. Jóhannes Sigurjónsson). ur, en lægst í 180 hreiður. En þetta hefur verið á uppleið og nú eru hér um 600 hreiður“. Einar hefur frá upphafi ein- göngu verið með fjárbú. „Síðustu hestamir vom felldir hér um það leyti sem ég fæddist. Hér vom kýr fram undir 1980, þetta 5-6 gripir. En nú er engin mjólkurfram- leiðsla, hvorki hér í Kelduhverfi né annars staðar í Norður-Þing- eyjarsýslu, nema þá rétt til heimil- isnota.” Ungir bændur I íjárbúinu í Lóni em nú um 310 kindur. Einar lenti í því að skera niður vegna riðuveiki 1999 og er að ijölga aftur eftir það. „Búið var stærst um 430 íjár, rétt fyrir 1980 en við höfum tvisvar skorið niður vegna riðu. Ég er enn að íjölga stofninun smátt og smátt eftir síðasta niðurskurð og stefni að því að vera með þetta 350-400 íjár sem er sú bústærð sem hentar best hér án þess að ráðast þurfí í verulegar fjárfestingar. Fjárbúum og fé hefur fækkað verulega í Kelduhverfi eins og víðast að sögn Einars. „Arið 1986 var skorið niður fé hér á 11 bæjum í sveitinni og annað eins annars staðar í Skjálfandahólfí, vegna riðuveiki og það var reyndar upp- hafíð að aðgerðum sem miðuðu að því að útrýma riðuveiki með skipulögðum hætti. Upp úr þessu fækkaði búum nokkuð því að ekki hófu allir búskap á ný. Nú em hér í sveitinni 14-15 bú sem hafa verulegar tekjur af sauðljárrækt. Hins vegar verður það að teljast jákvætt sé horft til framtíðar að meðalaldur bænda hér í Keldu- hverfi er ekki hár miðað við land- ið í heild. Það eru aðeins tveir bændur yfír sextugu og aðrir tveir yfir fímmtugu og hinir á aldrinum 30-50 ára”, segir Einar. Hann segir að það sé í mesta lagi einn bóndi í Kelduhverfi sem hefur eingöngu tekjur af sauðíjár- búskap, nánast allir vinni önnur störf meðffam búrekstrinum mis- mikið eftir aðstæðum hvers og eins.”Ég er t.d. með vinnu í lax- eldinu hjá Rifósi, þetta um 40 tíma á mánuði og Guðríður sam- býliskona mín er í 80% starfí hjá Norðurlandsskógum sem svæðis- stjóri í Þingeyjarsýslum. Hún ekur ljóra daga í viku til Húsavíkur þar sem hún er með skrifstofuað- stöðu. Við erum einnig svolítið í skógrækt og sér Guðríður að mestu um það. Þá hef ég dálítið verið í verktakavinna hjá Land- græðslunni við áburðardreifíngu | 8 - Freyr 1/2003

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.