Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.2003, Qupperneq 13

Freyr - 01.02.2003, Qupperneq 13
Einar og Guðríður í fjárhúsunum. (Ljósm. Jóhannes Sigurjónsson). og gripið í bókhald og framtals- gerð hjá sveitungum mínum. Og auðvitað í alls konar félagsmála- stússi fyrir bændur, er núna í stjóm Búnaðrfélags Keldhverf- inga, Búnaðarsambands Norður- Þingeyinga og fulltrúi á Búnaðar- þingi”. Laxeldið tryggir STÖÐUGLEIKA Fólki hefur fækkað í Keldu- hverfí eins og víðast hvar í sveit- um landsins. „Ég held að hér hafi íbúar verið flestir þetta 250-60 manns í kringum 1960. Núna em 102 íbúar á skrá í Kelduhverfi. Hins vegar hefur ríkt hér nokkur stöðugleiki undanfarin áratug og íbúatalan haldist í kringum 100. Og þau hús sem verið hafa til sölu hafa selst, bæði kemur fólk og flytur hingað og sækir vinnu á Húsavík og svo em aðrir sem hafa verið að kaupa þetta sem sumar- bústaði og að sjálfsögðu er það betra að húsin séu þannig nýtt, þó ekki sé nema hluta úr árinn, en að þau standi auð.” Einar segir það engum vafa undirorpið að fiskeldið í Lónun- um og í Öxarfirði hafi átt sinn stóra þátt í að tryggja þó þennan stöðugleika. „Það er hægt að fullyrða að sumar ijölskyldur væru ekki hér ef fiskeldið hefði ekki komið til. Það em íjölskyldur sem vinna nær eingöngu við þetta og svo margir sem vinna í hlutastörfum, bæði hér í Kelduhverfi og Öxar- firði. Þetta er mikill styrkur þegar rólegur tími er í sauðfjárbúskapn- um yfir veturinn. Og þegar bænd- umir þurfa að sinna sínum búum meira yfir sumarið, þá kemur hér fólk, m.a. námsfólk, og fær sum- arvinnu. Laun sauðíjárbænda em lika með þeim hætti að nær allir þurfa eitthvað með búskapnum til að lifa af og því er það gríðarlega mikilvægt að hafa aðgang að ann- arri vinnu í samfélagi eins og þessu.” Einar, þú tókstþátt íþví á sínum tíma ásamt fleiri ungum heima- mönnum að endurreisa fiskeldið og stofna Rifós á sínum tima þeg- ar Isno fór í gjaldþrot. Er fyrir- tœkið enn að mestu í eigu heima- manna? „Ég held ég megi segja að Keld- hverfingar og fólk þeim tengt eigi 80-90% í fyrirtækinu. Á þessum tíma, þegar Isno fer á hausinn, þá var farið í það að safna því sem þurfti til að geta rekið þetta án þess að þurfa að taka lán að neinu ráði. Fjármögnun gekk miklu bet- ur en maður þorði að vona í byrj- un, svo að maður tali nú ekki um reksturinn sem gekk vonum fram- ar, eða allt fram að áfallinu árið 2001 þegarmikill hluti eldislaxins drapst vegna eitrunar. En við höf- um verið að byggja þetta upp aft- ur og gengið ágætlega”. Fyrirtækið Isno hóf laxeldi í Lónunum árið 1980. „Þeir byggðu þetta vel upp en eldið var alltaf svolítið bras og gekk á ýmsu Og endaði svo með einum stórum skelli, gjaldþroti upp á einar kr. 700 milljónir. Við keyptum fyrir- tækið svo fyrir um kr. 20 milljón- ir og höfum stundum fengið að heyra það að við höfum fengið þetta gefins. Og ef menn líta yfir mannvirki og búnað sem hér er þá er það vissulega rétt að 20 millj- ónir eru enginn peningur. En á það ber að líta að almenn svartsýni ríkti í fiskeldi á þessum árum og fáir sem vildu kaupa. Og stað- reyndin er bara sú að það bauð enginn betur en við á þessum tíma. Þetta er búið að vera mikið æf- intýri og lærdómsríkt fyrir sveita- strák eins og mig sem hefur aldrei kynnst neinu nema búskap sem er að velta svona kr. 5 milljónum á ári, að koma að stjómun á fyrir- tæki sem er að velta á annað hundrað milljónum kr. á ári“. Einar kveðst vera nokkuð bjart- sýnn á framtíð fiskeldis í Lónun- um. „ Hins vegar er þróunin í fisk- eldi á íslandi kannski ekki mjög spennandi núna. Staðan er orðin Freyr 1/2003 - 9 |

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.