Freyr - 01.02.2003, Page 23
Bakki í Öxnadal. Góð samsvörun í heildarmynd. í baksýn Hraundrangar. (Ljósm. Gunnar M. Jónasson).
inum og að nægilegt svigrúm sé
fyrir hvers kyns flutninga með til-
heyrandi tækjabúnaði. Mikilvægt
er einnig að taka tillit til veður-
farsþátta, snjóalaga og að aðaldyr
húsanna snúi undan ríkjandi vind-
áttum. Ennffemur að skipuleggja
allan trjágróður þannig að hann
falli að heildarútlitinu, myndi
skjól en dragi þó ekki að sér
óæskileg snjóalög.
Staðarval
BÚREKSTRARBYGGINGA
Staðarval einstakra bygginga
getur verið ærið vandasamt og taka
þarf tillit til margra þátta. Hér verð-
ur aðeins fjallað um nokkra hag-
nýta þætti en ekki tæmandi upp-
talningu. Mikilvægt er að átta sig á
hvers konar húsgrunnur er fyrir
hendi og hvemig undirbyggingu
hússins verður hagað og að nánasta
umhverfi vaðist ekki upp við um-
ferð búpenings og véla. Halli
landsins hefur einnig mikið að
segja, þannig að ekki safnist vatn
að byggingunni, einkum í leysing-
um. Veðurfarsþættir, eins og ríkj-
andi vindáttir, geta haft áhrif bæði
varðandi aðgengi og einnig þætti
er tengjast loftræstingu bygging-
anna. Aðgengið tengist mörgum
þáttum og má þar nefna vélaum-
ferð og alla flutninga til og ffá
byggingunum, ekki síst þá sem em
bundnir þungaflutningum á
ákveðnum tímum, eins og mjólk-
ur- og fóðurflutningar. Þá verður
að taka tillit til fjarlægðar ffá íbúð-
arhúsi og tengsl við bithaga. Einn-
ig getur gætt lyktarmengunar ffá
gripahúsum. Margt fleira mætti
tína til í þessu sambandi en til frek-
ari fróðleiks skal bent á ágætar
upplýsingar sem er að finna á upp-
lýsingavef Byggingaþjónustu
Bændasamtaka Islands.
Skipulagsmál
Ekki verður skilið svo við fram-
angreinda umljöllun að fara ekki
nokkmm orðum um skipulagsmál
enda snerta þau nánast allar bygg-
ingaframkvæmdir. Skipulag skipt-
ist í fjóra megin þætti.
Landsskipulag
Dæmi um slíkt skipulag er
skipulag miðhálendisins. Þar er
skipulagt óháð mörkum sveitarfé-
laga og lögsagnarumdæma. Er þá
sveitarfélögunum gert skylt að
haga byggingarframkvæmdum,
vegagerð, námuvinnslu og orku-
flutningslínum í samræmi við
þessa skipulagsáætlun svo að
dæmi sé tekið. Þessi skipulags-
nefnd vinnur undir stjóm Skipu-
lags rikisins og er skipuð 12 full-
trúum af umhverfísráðherra til
fjögurra ára. Kostnaður við þetta
skipulag greiðist úr ríkissjóði.
Freyr 1/2003 - 19 |