Freyr - 01.03.2003, Page 29
Alyktanir búnaðarkings
Hér á eftir fylgja ályktan-
ir búnaðarþings 2003
að undanskilinni fjár-
hagsáætlun
Allsherjarnefnd
Alþjóðasamningar (WTO)
OG AFSTADA TIL ESB
a) Ályktun um alþjóðasamninga
Búnaðarþing 2003 lýsir miklum
áhyggjum vegna þróunar um-
ræðna um nýjan samning Al-
þjóða viðskiptastofnunarinnar
um viðskipti með búvörur.
Nái fyrirliggjandi drög að til-
lögum frá Stuart Harbinson,
sem leiðir viðræðumar innan
WTO, fram að ganga mun það
hafa í för með sér miklar breyt-
ingar og erfiðleika í flestum
greinum íslensks landbúnaðar.
Þingið lýsir stuðningi við af-
stöðu stjómvalda til tillagnanna
og hvetur þau til að fylgja af-
stöðu sinni fast eftir í komandi
viðræðum og leita allra leiða til
að gera íslenskum landbúnaði
kleift að þróast á eigin forsend-
um.
b) Ályktun um Evrópumál
Búnaðarþing 2003 áréttar álykt-
un Búnaðarþings 2001 um aðild
að Evrópusambandinu þar sem
fram kemur að þingið telur að
aðild að sambandinu komi ekki
til greina, heldur beri að tryggja
hagsmuni Islands með öðmm
hætti.
Ekkert hefur komið ffam sem
gefur til kynna að aðild að Evr-
ópusambandinu væri þjóðinni
eða landbúnaðinum hagstæðari
en gert var ráð fyrir þar.
Þvert á móti hefur ákvörðun um
stækkun sambandsins til austurs
dregið úr möguleikum þess til
að viðhalda núverandi stuðningi
við landbúnaðinn og leitt í ljós
að nýjar aðildarþjóðir fá á fyrstu
ámm aðildar mun minni stuðn-
ing við landbúnað sinn en þær
þjóðir sem fyrir vom í sam-
bandinu.
Ekkert hefúr heldur komið ffam
í aðildarviðræðum við ný ríki
sem bendir til að varanlegar
undanþágur fáist frá fiskveiði-
stefnu Evrópusambandsins sem
raunar virðist forsenda fyrir að-
ild íslands.
c) Búnaðarþing 2003 felur stjóm
BI að koma á fót alþjóðaskrif-
stofu um málefni landbúnaðar-
ins í húsakynnum samtakanna.
Hlutverk skrifstofunnar verður
að fylgjast með því sem er að
gerast á vettvangi alþjóða-
samninga, milliríkjasamninga
og fjölþjóðlegra samninga sem
snerta hagsmuni íslensks land-
búnaðar.
Greinargerð:
Umhverfi íslensks landbúnaðar
hefur breyst vemlega síðasta ára-
tug. Einn þátt þeirra breytinga má
rekja til þess að Island hefur með
þátttöku í alþjóðlegum og fjöl-
þjóðlegum samningum, svo og
með milliríkjasamningum, sam-
þykkt tilteknar leikreglur sem
áhrif hafa á rekstrarforsendur
landbúnaðarins. Því er brýn nauð-
syn að stofna til „alþjóðaskrif-
stofu“ landbúnaðarins.
I auknum mæli hafa þessir
samningar, sem Island á aðild að,
áhrif á afkomu þeirra sem stunda
landbúnað. Það er mjög mikil-
vægt að Bændasamtök íslands
fylgist vel með því sem þama er
að gerast og skapi sér stöðu sem
ráðgefandi aðili stjómvalda í um-
ræddum samningum. í umræðum
um WTO og framkvæmd á EES-
samningi er nú þegar nauðsynlegt
að BI hafi á að skipa fagfólki á því
sviði. Landbúnaðurinn þarf að
eiga starfsfólk sem getur komið
fram sem sérfræðingar í málefn-
um landbúnaðarins gagnvart um-
ræddum samningum.
Það er reynsla nágranna okkar,
bænda í Svíþjóð og Finnlandi, að
aðeins þeir, sem hafa kynnt sér
hvað felst í ESB-aðild, eigi mögu-
leika í nýju umhverfi.
Bændasamtök íslands hafna að-
ild að EB en geta ekki látið hjá
líða að taka þátt í umræðu um
hana. Það alvarlegasta sem gæti
hent íslenskan landbúnað er að
gera ekkert og hafa ekkert til mál-
ana að leggja af þekkingu.
Samþykkt samhljóða
Þjóðlendumál og réttur
SJÁVARJARÐA
a) Búnaðarþing 2003 ályktar eft-
irfarandi um þjóðlendumál:
* Búnaðarþing mótmælir því
harðlega að fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkisstjómar Is-
lands skuli hafa áfrýjað úr-
skurði Óbyggðanefndar í Ár-
nessýslu til dómstóla. Ekki
verður annað séð en stefnt sé
að stórfelldri eignaupptöku á
landi sem er í einkaeign. Bún-
aðarþing mótmælir því harð-
lega og minnir á ákvæði í 72.
gr. Stjómarskrár Islands um
eignarrétt.
* Við ákvörðun þjóðlendumarka
verði tekið fullt tillit til þing-
lýsts eignarréttar. Jafnframt er
þess krafist að allar þinglýs-
ingar á vegum fjármálaráð-
herra, sem fara í bága við eldri
þinglýsingar, verði þegar í stað
Freyr 2/2003 - 29 |