Freyr - 01.03.2003, Blaðsíða 31
Flutningskostnaður
Búnaðarþing 2003 ítrekar álykt-
un varðandi flutningskostnað,
sem fram kemur í samgöngukafla
byggðamálaályktunar síðasta
búnaðarþings, svohljóðandi:
„Lækka verður flutningskostn-
að á milli Reykjavikursvæðis og
landsbyggðar þannig að verð vöru
og þjónustu og möguleikar fram-
leiðslufyrirtækja verði sambæri-
legir um land allt. Ríkissjóður noti
ekki þennan kostnað sem tekju-
stofn svo sem í formi virðisauka-
skatts.“
Samþykkt samhljóða
Reglur um persónuvernd
Búnaðarþing 2003 telur eðlilegt
að í samvinnu við Persónuvemd
verði settar skýrar reglur um söfn-
un, vörslu, notkun og birtingu
þeirra upplýsinga sem safnað er
hjá Bændasamtökum Islands,
búnaðarsamböndunum og tengd-
um aðilum, ef þær upplýsingar
tengjast persónum eða lögbýlum.
Samþykkt samhljóða
Endurskoðun á lagaumhverfí
landbúnaðarins
1. Erindi Landssambands kúa-
bænda
Búnaðarþing 2003 telur nauð-
synlegt að hraðað verði endur-
skoðun á lagaumhverfí landbún-
aðarins, m.a. vegna þeirra breyt-
inga sem eru að verða á eignar-
haldi og rekstrarformi í búgrein-
inni, þar sem það er í auknum
mæli að færast í hendur lögaðila.
2. Erindi Búnaðarsamtaka Vest-
urlands
Búnaðarþing 2003 samþykkir
að BÍ verði falið að gera úttekt á
því hvemig laga- og reglugerða-
setning síðasta áratuginn hefur
skert atvinnufrelsi bænda á lögbýl-
um og valdið þeim kostnaðarauka.
Greinargerð:
Girðingarlög, lög um umhverf-
ismat, skipulags- og byggingarlög
og tilheyrandi reglugerðir eru
dæmi um aðgerðir stjórnvalda
sem valdið hafa bændum kostnað-
arauka. Athuga þarf hvort að með
lagasetningu seinni ára sé verið að
skerða atvinnuffelsi bænda um of.
Visað til stjórnar
Skilgreining safnvega
Búnaðarþing 2003 samþykkir
að fela stjóm BI að beita sér fyrir
breytingu á 8. gr. vegalaga (nr.
45/1994) varðandi skilgreiningu
safnvega. Samkvæmt núverandi
vegalögum teljast m. a. til safn-
vega „vegir að öllum býlum sem
búseta er á og ekki em tengd með
stofnvegi eða tengivegi."
Lagt er til að setningin verði
svohljóðandi: „Vegir að öllum
býlum þar sem búseta er og/eða
atvinnustarfsemi fer fram og ekki
eru tengd með stofnvegi eða
tengivegi.“
Greinargerð:
í reynd er það þannig að til em
jarðir, sem ekki er fost búseta á,
en þar er þó stundaður heils árs
búrekstur. í þessum tilvikum hef-
ur fólki hentað betur að hafa bú-
setu sína annars staðar.
Upplýst er að nú er að hefjast
endurskoðun vegalaga. Mikilvægt
er að þetta erindi fái umQöllun við
þá endurskoðun.
Samþykkt samhljóða
Félagsmálanefnd
Breytingar á samþykktum BÍ
2. gr.
í upptalningu á aðildarsamtök-
um BÍ falli Landssamband kart-
öflubænda niður.
Samþykkt samhljóða
3. gr.
Aðild að Bændasamtökum Is-
lands geta átt þeir einstaklingar og
lögaðilar sem þess óska og stunda
búrekstur í atvinnuskyni eða
vegna eigin nota enda séu þeir að-
ilar að þeim félögum og félaga-
samtökum sem talin em í 2. grein.
Aðild einstaklinga skal óháð því
hvort þeir stunda búrekstur í eigin
nafni eða annama.
Bændum, sem hætt hafa búskap
vegna aldurs eða heilsubrests,
skal heimil áframhaldandi þátt-
taka í viðkomandi félagi með full-
um félagsréttindum, hafí þeir
áfram búsetu á hlutaðeigandi fé-
lagssvæði.
Undir búrekstur fellur hvers
konar búfjámækt, jarðrækt, skóg-
rækt, garðrækt og ylrækt. Einnig
eftirfarandi starfsemi, fari hún
fram á lögbýlum: Eldi og veiðar
vatnafíska, nýting hlunninda,
framleiðsla og þjónusta.
Samþykkt samhljóða
10. gr.
Upptalning á kjörnum full-
trúum breytist þannig:
Landssamband Kartöflubænda
falli niður, en Samband garð-
yrkjubænda 3 fulltrúa.
Samþykkt samhljóða
Búnaðarsamband Suðurlands 7
fulltrúa.
Afgreitt með nafnakalli
Aðalsteinn Jónsson sagði já
Ari Teitsson sagði já
Amar Bjami Eiríksson sagði já
Agúst Sigurðsson sagði já
Ásta Ólafsdóttir sagði já
Baldvin Kr. Baldvinsson sagði já
Bjami Ásgeirsson sagði nei
Bjami Stefánsson sagði já
Eggert Pálsson sagði já
Egill Sigurðsson sagði já
Einar Ófeigur Bjömsson sagði já
Georg Jón Jónsson sat hjá
Freyr 2/2003 - 31 |