Freyr - 01.03.2003, Qupperneq 36
framleiðenda freistast lánadrottn-
ar til að yfirtaka og endurljár-
magna framleiðslueiningar.
Framboð helst því óbreytt og
framleiðsla áfram seld undir
kostnaðarverði.
Samkeppnisstaða ræðst því um
of af eiginfjárstöðu “framleið-
enda” og fjölskyldubúin eiga tak-
markaða möguleika í samkeppni
við fjársterkar lánastofnanir.
Samþykkt samhljóða
Staða og horfur á
KJÖTMARKAÐI, LIÐUR 2
Búnaðarþing 2003 leggur áher-
slu á að sláturhúsanefnd landbún-
aðarráðherra hraði störfum og
skili tillögum sem fyrst. Þingið
telur að leggja beri áherslu á að
afla fjánnagns til hagræðingar í
rekstri sláturhúsa meðal annars
til úreldingar eldri húsa. Jafn-
hliða þessu verður að koma til
jöfnun á flutningskostnaði slátur-
gripa sem eykst með fækkun
húsa.
Samþykkt samhljóóa
Markads- og sölustarf
FYRIR ÍSLENSKAR LANDBÚNAÐAR-
VÖRUR ERLENDIS
Búnaðarþing 2003 felur stjórn
Bændasamtaka íslands að vinna
að því ásamt öllum hagsmunaaðil-
um í íslenskri kjötframleiðslu að
stofha sameiginlegt fyrirtæki sem
hefði það að markmiði að sjá um
sölu kjöts og annarra landbúnað-
arvara á erlendum mörkuðum og
beri ábyrgð á gæðum og af-
greiðslu vörunnar.
Greinargerð:
Markaðs- og sölustarf á ís-
lenskum kjötvörum erlendis sem
er í höndum margra aðila í dag,
veldur í mörgum tilfellum sam-
keppni sem leiðir til verðlækkun-
ar. Einnig tryggir eitt sölufélag
meira öryggi á réttri afgreiðslu
vörunnar.
Samþykkt samhljóða
Reglur um snyrtingu
DILKASKROKKA
Erindi búnaðarþingsfulltrúa á
Suðuriandi
Búnaðarþing 2003 beinir því til
sláturleyfishafa, landbúnaðarráðu-
neytis, Landssamtaka sauðfjár-
bænda, Markaðsráðs kindakjöts
og annarra hlutaðeigandi aðila að
leita lausna til að koma í veg fyrir
að ónýtanlegir skrokkhlutar og
vinnsluefni sé selt með verðmæt-
ari hlutum dilkakjöts eins og gert
hefur verið með sölu á heilum og
hálfum skrokkum. Reglur um
snyrtingu dilkaskrokka fyrir inn-
vigtun verði endurskoðaðar í ljósi
þessa og eftirfylgni tryggð.
Greinargerð:
Ymsar ástæður eru fyrir minnk-
andi markaðshlutdeild dilkakjöts.
Eitt atriði sem vel er þekkt er að
neytandi sem verður fyrir von-
brigðum með vöru sem hann
kaupir er ekki líklegur til að kaupa
hana aftur. Lengst af hefur tölu-
verður hluti af dilkakjötsfram-
leiðslunni verið seldur niðursag-
aður í heilum og hálfum skrokk-
um, á tiltölulega lágu verði miðað
við verð á einstökum skrokkhlut-
um. Það er hins vegar enginn vafi
á að sú framsetning sem tíðkast
hefur á þessari vöru fellur hinum
almenna neytanda í dag ekki í
geð, og hefur raunar stórspillt fyr-
ir ímynd lambakjötsins. Akveðnir
skrokkhlutar sem eru að meira eða
minna leyti látnir fylgja með
skrokknum eru ekki söluvara, þ.e.
hæklar, banakringla, bógkirtlar,
kloffita, hryggæð og fita innan úr
náraböndum. í ljósi þessa þarf að
endurskoða reglur um snyrtingu
dilkakjöts fyrir innvigtun og tryg-
gja eftirfylgni. Slög og bringu-
kollar eru vinnsluvara sem hinn
almenni neytandi hefur litla
möguleika eða áhuga á að nýta og
þarf markaðssetningin að taka
mið af því. Það getur ekki talist
góð markaðssetning að selja sam-
an í poka svo ólík hráefni sem úr-
gang, vinnsluefhi og veislufæði.
Vísað til stjórnar
Smitsjúkdómar í búfé
Búnaðarþing 2003 beinir því til
Yfirdýralæknisembættis að til sé
víðtæk heildaráætlun um hvemig
skuli bregðast við, ef upp kemur
grunur um smitsjúkdóma í búfé
eða ef alvarlegur smitsjúkdómur
er staðfestur. Til viðbótar við við-
bragðsáætlun yfirdýralæknis um
smitsjúkdóma er nauðsynlegt að
til sé áætlun um aðgerðarhóp
heima í héraði til að halda utan
um alla þætti málsins á staðnum
og til stuðnings við þá bændur
sem í óhöppum lenda. Aðgerða-
hópurinn yrði skipaður fulltrúum
frá heilbrigðiseftirliti, héraðsdýra-
lækni, leiðbeiningaþjónustu, af-
urðastöðvum og landbúnaðar-
nefnd eða sveitarstjóm viðkom-
andi sveitarfélags.
Með slíku skipulagi er hægt
með litlum fyrirvara að kalla sam-
an faghóp sem samhæfir aðgerðir.
Endurskoða þarf reglugerðir
byggðar á dýrasjúkdómalögum nr.
25 frá 1993 með það að markmiði
að reglur um niðurskurð og bóta-
skyldu taki til allra smitsjúkdóma
sem upp kunna að koma í íslensku
búfé. Tryggja þarf betur rétt til
bóta hjá þeim bændum sem verða
fyrir tjóni af þessum sökum á bú-
stofni og afurðum.
Jafnframt þarf að rýmka reglur
unr flutning lífdýra af ósýktum
svæðum inn á þau svæði þar sem
flutningur lífdýra er bannaður inn-
an svæðis.
Samþykkt samhljóða
136 - Freyr 2/2003