Freyr - 01.03.2003, Blaðsíða 37
Möguleikar til heimasölu
AFURÐA Á FERÐAÞJÓNUSTUBÝLUM
Búnaðarþing 2003 beinir því til
Landbúnaðarráðherra að skipuð
verði nefnd til að athuga hvernig
ferðaþjónustubændur geti selt eig-
in afurðir til gesta sinna og skapað
sér þannig sérstöðu á markaðin-
um. Búnaðarþing 2003 leggur til
að í nefndinni sitji fulltrúar frá Fé-
lagi ferðaþjónustubænda, Um-
hverfisstofnun og embætti yfir-
dýralæknis. Nefiidinni verði falið
að gera tillögur að nauðsynlegum
reglugerðarbreytingum vegna
málsins. Eðlilegt er að reglur sem
heimila slík viðskipti séu í sam-
ræmi við það sem gerist í ná-
grannalöndum okkar.
Samþykkt með þorra atkvæða
gegn 1
Kjaranefnd
Fjárhagsstaða bænda
Búnaðarþing 2003 lýsir áhyggj-
um af fjárhagsstöðu margra
bænda. Raunhæfasta aðgerð til að
bæta úr bágri fjárhagsstöðu, at-
vinnuleysi og atgervisflótta er að
standa vörð um störfin í dreifbýl-
inu, bæði til sjávar og sveita, og
minnir þingið á nauðsyn þess að
standa við þá stefnu ríkisstjómar-
innar að ný störf sem verða til á
vegum ríkisins verði staðsett í
dreifbýli.
Búnaðarþing 2003 ítrekar álykt-
un búnaðarþings 2002 um
byggðamál.
Þingið leggur áherslu á eftir-
taldar bráðaaðgerðir:
1. Verulega hækkun dreifbýlis-
styrkja, þannig að fjárhagslegt
jafnrétti til náms verði tryggt.
2. Hækkun bamabóta og að dreg-
ið verði að mun úr tekjuteng-
ingu þeirra en hjá einstæðu for-
eldri reiknast skerðing af tekju-
stofni umfram kr. 58.705 á
mánuði og hjónum og sambúð-
arfólki af samanlögðum tekju-
stofni umfram kr. 117.410 á
mánuði. Barnabætur verði
greiddar til 18 ára aldurs.
3. Varðstöðu um niðurgreiðslu-
kerfi á upphitunarkostnaði og
það verði notað til enn fiekari
jöfnunar.
4. Greitt verði úr fjárhagsvanda
heilbrigðisþjónustunnar í dreif-
býlinu.
Samþykkt samhljóða
Eftirlitskostnaður
I LANDBÚNAÐI
Erindi Landssamtaka sauðfjár-
bænda
Búnaðarþing 2003 beinir því til
stjómvalda, að við ákvörðun
gjaldtöku opinberra stofnana fýrir
ýmislegt eftirlit með landbúnaða-
starfsemi, verði ávallt leitað um-
sagnar Bændasamtaka íslands um
viðkomandi gjaldskrá og rök-
stuðning fyrir henni.
Vísað til stjórnar.
Tekjur af fuglaveiðum
Búnaðarþing 2003 samþykkir
að beina því til BÍ að hagsmuna-
gæsla samtakanna fyrir bændur
sem landeigendur tryggi hags-
muni þeirra bænda sem hafa tekj-
ur af fúglaveiðum, m.a. með að-
komu að væntanlegum reglugerð-
um umhverfisráðherra þar að lút-
andi.
Greinargerð:
Margir bændur stuðla sjálfir
veiðar á sínum lögbýlum eða af-
réttum. Þá er einnig algengt að
menn leigi þessi réttindi til ann-
arra. Nauðsynlegt er að samtök
bænda veiji hagsmuni þessa hóps.
Samþykkt samhljóða
Raforkuverð til
LANDBÚNAÐAR
Búnaðarþing 2003 beinir því til
stjómar BÍ að skipa nú þegar
starfshóp til að vinna með RA-
RIK, og gæta hagsmuna bænda,
vegna breytinga á marktaxta sem
óhjákvæmilega verða á næstu
mánuðum.
Einnig að tryggja það að kostn-
aður notenda við dreifingu á raf-
magni í sveitum landsins aukist
ekki frá því sem nú er vegna þeir-
ra breytinga sem verið er að gera
á raforkulögum, í frumvarpi sem
nú liggur fyrir alþingi, þar sem
dreifikerfið og jöfnun dreifingar-
kostnaðar er skilið eftir í óvissu.
Samþykkt samhljóða
Umhverfis- og jarðræktar-
nefnd
Hreinsun á fjörum landsins
Búnaðarþing 2003 skorar á
Umhverfisráðuneytið að útvega
fjármagn og koma skipulagi á
hreinsun á fjörum landsins í sam-
vinnu við Sjávarútvegsráðuneytið
og Samband íslenskra sveitarfé-
laga
Greinargerð:
Rusl á fjömm er víða vandamál,
en hreinsun erfið og kostnaðar-
söm. Þó bændur séu í mörgum til-
fellum vörslumenn lands og gæti
þess að fúllri alúð, er fráleitt að
ætlast til að þeir annist hreinsun á
Qömm kringum landið nema gegn
greiðslu. Þörf á hreinsun stafar af
mengun sjávar og því er réttast að
hið opinbera beri kostnað af því
hreinsunarstarfi. Samkvæmt laga-
frumvarpi er gert ráð fyrir þeirri
túlkun að megnun á fjörum lands-
ins verði skilgreind með mengun
hafsins.
Eðlilegast er að bændur og aðr-
ir umráðamenn hafi umsjón með
hreinsun á fjörum sínum, enda er
nýtilegur reki hlunnindi þeirra og
telst ekki með msli á fjörum.
Freyr 2/2003 - 37 |