Elektron - 01.11.1921, Qupperneq 18
48
ÉLEKTRON.
Umburðarbréf
frá landssimastjðranum.
9/« nr. 21. Sæsíminn til útlanda
slitnaði í dag milli íslands og Fær-
eyja. Að svo miklu leyti sem unt er,
verða símskeyti til útlanda send um
Bergenradio og verður því að senda
þau til Reykjavikur fyrst um sinn.
22/c, nr. 22. Sæsíminn til úllanda
er aftur kominn í lag.
22/6, nr. 23. Meðaltími íslands verð-
ur færður aftur um eina klukkustund
í kvöld, 22. þ. m., og ber yður sam-
kvæmt því að seinka klukkunni um
eina klukkustund, klukkutíma eftir
að þjónustulími stöðvarinnar er út-
runninn.
22/s, nr. 24. Frá og með deginum
i dag, 22. þ. m., verður þjónustutími
Þingvalla eins og ákveðið er fyrir 1.
íl. B. stöðvar.
V?, nr. 25. Frá deginum i dag, 1.
júlí, verður landssímastöðin á Siglu-
firði 1. fl. A.
°/7, nr. 26. Frá og með deginuro á
morgun, 10. júlí, og fyrst um sinn,
hækka gjöld yrir símskeyti til út-
landa. Til bráðabirgða eru bjer talin
gjöld til flestra landa Norðurálfunnar
og helstu fylkja í Norður-Ameríku og
táknar fyrri talan gjald fyrir hvert
orð, en hin síðari stofngjald af hverju
simskeyti, alt talið í aurum: Dan-
mörk 45/45, Færeyjar 25/10, Belgía
55/65, Austurríki 70/65, England 45/45,
Finnland 75/55, Frakkland 60/40,Ítalía
70/05, Holland 60/20, Noregur 55/45,
Pólland 70/65, Portúgal 75/00, Rúss-
land (via Libau) 105/10, Spánn 70/05,
Svíþjóð 70/65, Ungverjaland 80/30,
Þýzkaland 65/20, Illinois 230/00, Mani-
toba 260/00, Massachusetts 200/00,
New York 200/00 og Pennsylvania
220/00. Gjald til útlanda minst 105
aurar fyrir hvert símskeyli. Gjald fyr-
ir TM til útlanda 50 aurar fyrir al-
menn skeyti og 1 króna fyrir hrað-
skeyti. Frá sama tíma hækka strand-
ar- og skipagjöld fyrir loftskeyti lil
íslenskra og erlendra skipa, send um
islenskar eða erlendar strandarstöðv-
ar, þannig að 1 franki jafngildir 105
aurum, og fellur ákvæði í umburð-
arbrjefi nr. 8, dags. 19. apríl þ. á.,
um útreikning strandar- og skipa-
gjalda jafnframt úr gildi. Útreiknað
gjald, sem ekki endar á 0 eða 5,
lœkkist niður í næstu tölu deilanlega
með 5.
9/7, nr. 27. Tilkynnið öllum 3. fi.
stöðvum í umdæmi yðar eftirfarandi:
Frá og með deginum á morgun, 10.
júlí, og fyrst um sinn hækka gjöld
fyrir símskeyti til útlanda, þar til
stöðinni verður send ný gjaldaskrá
lætur gæslustöðin í té allar upplýs-
ingar viðvíkjandi hækkun gjaldanna
og útreikning þeirra.
28/t. nr. 28. 1. ágúst næstkomandi
verður stöðin á Borðeyri lögð niður
sem ein af aðalgæslustöðvum lands-
símans og umdæminu (reikningsskil,
eftirlit o. þ. h.) skift í fernt. Stöðin
á Blönduósi verður lögð undir Akur-
eyri, stöðvarnar milli Búðardals og
Sands, að báðum meðtöldum, und-
ir Stykkishólm, Fornihvammur og
Sveinatunga undir Reykjavík, en aðr-
ar stöðvar umdæmisins heyra undir
Borðeyri eins og hingað til. Afgreiðslu
símskeyta skal þó fyrst um sinn hag-
að eins og að undanförnu.
3/s, nr. 29. Á morgun, 4. ágúst,
verður hráðabirgða-loftskeytastöð opn-
uð á Árnesi í Trékyllisvík, merki TFF,
gæslustöð Reykjavík. Þjónustutimi
eins og ákveðið er fyrir 2. fl. stöðv-
ar. Viðskifti við Árnes geta aðeins farið
fram með símskeytum, og er gjaldið
venjulegt símskeytagjald innanlands.
Prentsmiðjan Gutenberg.