Mjölnir - 11.01.1950, Page 1
Miðvikudagur 11. janúar 1950.
2. tölublað.
argangur.
Bæjaimáiðst@toi
Sósíalistafélagsins á Siglufirði fyrir kjöríímaiii íiMM
Sósíalistar telja, að liöfuðverkefni bæjarstjórnar Sigluf jarðar næsta kjör
tímabil verði að uppræta þá óreiðu og það öngþveiti, sem nú ríkir í f jár-
málum bæjarins og koma þeim á öruggan grundvöll, og að efla atvinnu-
lífið í bænum.
1. Fjármál bæjarins:
Sósíalistafélagið á Siglufirði tel-
ur, að fyrsta verkefni bæjarstjórn-
arinnar á kjörtímabilinu 1950-’54
verði að reisa við f járhag bæjarins
úr því öngþveiti, sem hann er nú í.
Fjárhagsáætlanir verði afgreiddar
án tekjuhalla. Kappkostað verði um
að undirbúa þær vel og framfylgja
hinum ýrnsu liðum þeirra. Unnið
verði að því að fá útsvarslöggjöf-
inni breytt í það horf, að allur at-
vinnurekstur í bænum verði út-
svarsskyldur og að aukinn verði
sem mest atvinnurekstur, sem gefi
bæjarfélaginu tekjur og tryggi at-
vinnu bæjarbúa. Útgjöldum bæjar-
ins verði stillt í hóf og kappkostað
um að fara sem gætilegast með £é
bæjarins. Forðast skal að íþyngja
mönnum með útsvarsálögum, en
lögð áherzla á að innheimta álögð
útsvör sem bezt.
2. Atvinnumál:
Næsta stórverkefni, sem liggur
fyrir bæjarstjórn, er að byggja upp
innri höfnina og reisa þar nauð-
synleg mannvirki. Lögð verði rík
áherzla á að f á hentugt dýpkunar-
tæki. Dráttarbrautin verði fullgerð
og tekin í notkun fyrir vorið. Rík
áherzla verði lögð á að bæta skil-
yrði til móttöku fiskjar, söltunar
og hraðfrystingar, og athugaðir
möguleikar fyrir fiskþurrkun, er
raforka verður fyrir hendi, ,og til
aukinnar þorskútgerðar.
Kappkostað verði um að fá síðari
vélasamstæðuna í rafstöðina við
Skéiðsfoss á tilsettum tíma. Þar
sem full nýting stöðvarinnar er
eini möguleikinn til þess að virkj-
unin geti borið sig fjárhagslega,
— Einnig verði kappkostað um
að endurbæta innanbæjarkerfið
örugglega, m.a. með því að leggja
raftaugarnar í jörðu.
Fylgt verði fast eftir umsókn
bæjarstjórnarinnar um einn hinna
10 togara, sem ríkisstjórnin er að
láta smíða í Bretlandi. Unnið verði
að því á kjörtímabilinu að f á til bæ j-
arins a.m.k. 10 góða og hentuga
þorskveiðibáta. Fyrsta skrefið í þá
átt verði, að bærinn kaupi tvo góða
báta og selji þá hér í bænum, ef
kaupendur f ást, ,en reki þá ella sjálf
ur. Unnið verði af alefli að því, að
reist verði hér lýsisherzluverk-
smiðja, tunnuverksmiðja og niður-
suðuverksmiðja auk annars iðn-
aðar, sem hagkvæmur þætti.
Vinna ber að aukinni gatnagerð
eftir því sem fjárhagur bæjarins
leyf ir. Bærinn stuðli að því að reist-
ir verði verkamannabústaðir með
allt að 30 íbúðum og greiði fyrir því
með útvegun lóða og á annan hátt,
sem nauðsynlegt þykir.
3. Menntamál: Með tilliti til þess
að gagnfræðaskólinn býr við ger-
samlega ónothæf húsnæði og barna
skólinn við ófullnægjandi húsnæði,
verði kappkostað um að reisa svo
fljótt sem aðstæður leyfa hús yfir
báða skólana. Bókasafn bæjarins
skal bætt eftir föngum.
4. Heilbrigðismál: Reist verði
nýtt sjúkrahús og lögð áherzla á að
fá til þess úr rikissjóði sama styrk
og veittur er til fjórðungssjúkra-
húsa. Athugaðir verði möguleikar á
því að taka gamla s júkrahúsið f yrir
elliheimili.
5. Hitaveita:- Kappkostað verði
um, að bærinn fái eignarrétt á jarð-
hitasvæðinu í Skútudal og síðan
framkv. þar jarðboranir og rann-
sóknir með nýtingu fyrir augum.
6. íþróttamál: Sundlaugin verði
gerð nothæf fyrir vorið og hún f ull-
gerð innan tveggja ára. Unnið verði
að því, í samráði við íþróttafélög
bæjarins, að koma upp íþróttasvæði
á hentugum stað.
7. Mjólkurbú bæjarins: Stuðlað
verði að meiri ræktunarframkv og
fullkominni tækninotkun á mjólk-
urbúi bæjarins með það fyrir aug-
um, að reksturinn verði eins hag-
kvæmur og náttúruskilyrði leyfa.
J Hörmulegt sjóslys |
• »
Mótorbáíurinn Helgi frá Vestmannaeyjum ferst
á Faxaskeri. — 10 menn drukkna.
Mótorbáturinm Helgi frá Vestniannaeyjum var s.l. laugardag
á ferð frá Reykjavík til Vestmannaeyja, sjóveður var hið versta,
austan rok og brim. Eitir iiádegi yar báturinn í vari við Eyjaraar,
en íagöi svo á stað tii haínar og fór Iiina venjulegu bátaleið, svo
kaiíað Faxasund. Skömmu eftir iduxkan þrjú mn daginn var
Heigi kominn í sundiö við Faxasker og fékk þar á sig stórsjó.
Virðíst svo sem véiin hafi stöðvast, því rétt á eitir rak hann upp
á Skerið og brotnaði svo að segja samstundis. Um þeita leyti fór
veður enn versnandi og gerði fárviðri. Björgunartilraunir voru
gerðar, en sökum veðurofsans varð við eklíert ráðið. Eoks á mánu-
dag tókst að brjótast á björgunarbáti út í skerið, fundust þar tvö
lík.
Á Helga voru 10 menn, þ.á.m. tveir Siglfirðingar, þeir Arnþór
Jóliannisson og Gísli Jónasson, sjö menn voru frá Vestmannaeyj-
um en einn frá Ölafsfirði.
Öll þjóðin er liarmi lostin útaf þessmn sorglega atburði, og
þá ekki sízt Siglfirðingar, sem sjá hér á bak tveim góðum drengj-
um, dugnaðar og atorkumönnum, sem mikill skaði er að missa.
Mjölnir vottar aðstandendum hinna látnu sjómanna
samúð sína og hluttekningu í sorg.þeirra.
GREINARGERB með bæjarmálastefnuskrá
Sósíalistafélagsins á Siglufirðl
Fyrst í stað hlýtur aðalverk-
efni bæjarstjórnarinnar að
verða yiðreisnarstarf. Sam-
stjóm kratanna, íháldsins og
Framsóknarflokksins á Sigilu-
f jarðarkaupstað undanfarið, -—
undir fomstu Gunnars Vagns-
sonar, hefur verið með slikum
endemum, að siíks eru ekki
dæmi annarsstaðar. Eftir þessa
happasnauðu samstjórn hinna
þriggja flo'kka er svo komið, að
Sigluf jarðanbær er í vanskilum
við allar peningastofnanir og
flesta, sem hann hefur haft við-
skipti viðv Það hefur verið
ibmðlað með fé bæjarins f full-
•komnu ábyrgðarleysi, útsvör og
önnur bæjargjöld verið illa inn-
heimt. Stórefnuðum mönnum
hefur liðist að greiða ekki út-
svör sín en aftur á móti gengið
hart að verkamönnum. 1 stuttu
máii sagt: Svo illa er nú komið,
að takist ekki að fá strax 1200
til 1500 þúsund króna lán, verð-
ur trauðla komist hjá bæjar-
gjaldþroti. En þó lánið fáist, og
ibæjargjaldþroti verði forðað í
bili, þá tekur það langan tíma,
með sparneytinni og ráðdeildar-
samri stjóm að koma fjárhag
bæjarins í viðunandi horf, með-
an það viðreisnarstarf stendm-,
verður ekki hægt að ráðast í
neinar framkvæmdir að ráði. —
Það er brýn nauðsyn, að undir-
búa betur fjárhagsáætlanir en
gert hefur verið midanfarið og
ieggja niður þann sið, sem tek-
inn var upp í tið G. Vagnssonar
að fara ekkert eftir fjárhags-
áætlun í fjármálastjórn bæjar-
ins.
Það verður naumast um
deilt, að það er höfnin, sem er
fjöregg Siglulfjarðar fjárhags-
lega. Þess vegna verður upp-
bygging innri hafnarinnar að
ganga fyrir öllu öðm þegar til
eihhverra framkvæmda kemur,
en skilyrði til þess að hægt sé
að byggja upp innri höfnina er
að höfnin eignist sjáilf hentugt
dýpkunartæki. Auðvelt mun að
fá slák tæki keypt eriendis, og
það þolir enga bið að hefjast
handa um það mál. Strax verð-
ur ^að ganga endanlega frá
skipulagi innri hafnarinnar og
gera þar ráð fyrir aðstöðu til
stóraukinnar þorskútgerðar, —
viðleguplássi fyrir fiskibáta, —
söltunarhúsi og hraðfrystihúsi.
Þá er sjálfsagt að láta fara
fram ítarlega rannsókn á hvort
tiltækilegt þætti að koma upp
fiskþurrkunarhúsi, þegar stækk
un rafveitunnar væri lokið og
raforka væri fyrir hendi.
Starfræksla slííks fyrirtækis
útheimtir mikla vinnu, og það
myndi einmitt verða á þeim
itlíma árs, sem atvinna er hér
minnst. 1 eins miklum siglinga-
og útgerðarbæ og Siglufirði, er
það ekki vanzalaustaðhafaenga
dráttarbraut. Nú er bygging
litlu dráttarbrautarinnar norðan
hafnarbryggjunnar að verða
lokið, þessa dráttarbraut verð-
ur að notast við næstu árin, en
það þarf stráx að taka ákvörð-
un um rekstur hennar og undir-
búa hann. Er þá hægt, ef strax
er að þessu gengið að hefja
óhindraða starfrækslu dráttar-
hrautarinnar fullgerðrar fyrir
vorið. Það hafa verið fest kaup
á síðari vélasamstæðunni tii
Skeiðsfossorkuversins og málið
er nokkuð undirbúið, en eins og
flest annað hjá þeim bæjar-
stjórnarmeirihluta, sem stóð að
ráðningu G. Vagnssonar, er mál-
ið þá hvorki heilt né hálft. Ber
brýna nauðsyn til að táka það
öðrum og . fastari tökum, enda
er stækkun rafveitunnar eina
•leiðin til að hún geti borið sig,
um leið er það skilyrði íyrir
auknum iðnrekstri í bænum. En
um leið og stækkunín er fram-
kvæmd, þarf einnig að hugsa
fyrir endurbótum á raftauga-
Ikerfi bæjarins, sem nú er í hinu
mesta vandræða ástandi.
Það stefnuskráratriði sósíal-
ista, við þessar kosningar, að
bærinn kaupi einn hinna nýju
togara og tvo góða fiskibáta, er
(Framhald á 4. síðu)