Mjölnir


Mjölnir - 11.01.1950, Síða 1

Mjölnir - 11.01.1950, Síða 1
Miðvikudagur 11. janúar 1950. 2. tölublað. argangur. Bæjaimáiðst@toi Sósíalistafélagsins á Siglufirði fyrir kjöríímaiii íiMM Sósíalistar telja, að liöfuðverkefni bæjarstjórnar Sigluf jarðar næsta kjör tímabil verði að uppræta þá óreiðu og það öngþveiti, sem nú ríkir í f jár- málum bæjarins og koma þeim á öruggan grundvöll, og að efla atvinnu- lífið í bænum. 1. Fjármál bæjarins: Sósíalistafélagið á Siglufirði tel- ur, að fyrsta verkefni bæjarstjórn- arinnar á kjörtímabilinu 1950-’54 verði að reisa við f járhag bæjarins úr því öngþveiti, sem hann er nú í. Fjárhagsáætlanir verði afgreiddar án tekjuhalla. Kappkostað verði um að undirbúa þær vel og framfylgja hinum ýrnsu liðum þeirra. Unnið verði að því að fá útsvarslöggjöf- inni breytt í það horf, að allur at- vinnurekstur í bænum verði út- svarsskyldur og að aukinn verði sem mest atvinnurekstur, sem gefi bæjarfélaginu tekjur og tryggi at- vinnu bæjarbúa. Útgjöldum bæjar- ins verði stillt í hóf og kappkostað um að fara sem gætilegast með £é bæjarins. Forðast skal að íþyngja mönnum með útsvarsálögum, en lögð áherzla á að innheimta álögð útsvör sem bezt. 2. Atvinnumál: Næsta stórverkefni, sem liggur fyrir bæjarstjórn, er að byggja upp innri höfnina og reisa þar nauð- synleg mannvirki. Lögð verði rík áherzla á að f á hentugt dýpkunar- tæki. Dráttarbrautin verði fullgerð og tekin í notkun fyrir vorið. Rík áherzla verði lögð á að bæta skil- yrði til móttöku fiskjar, söltunar og hraðfrystingar, og athugaðir möguleikar fyrir fiskþurrkun, er raforka verður fyrir hendi, ,og til aukinnar þorskútgerðar. Kappkostað verði um að fá síðari vélasamstæðuna í rafstöðina við Skéiðsfoss á tilsettum tíma. Þar sem full nýting stöðvarinnar er eini möguleikinn til þess að virkj- unin geti borið sig fjárhagslega, — Einnig verði kappkostað um að endurbæta innanbæjarkerfið örugglega, m.a. með því að leggja raftaugarnar í jörðu. Fylgt verði fast eftir umsókn bæjarstjórnarinnar um einn hinna 10 togara, sem ríkisstjórnin er að láta smíða í Bretlandi. Unnið verði að því á kjörtímabilinu að f á til bæ j- arins a.m.k. 10 góða og hentuga þorskveiðibáta. Fyrsta skrefið í þá átt verði, að bærinn kaupi tvo góða báta og selji þá hér í bænum, ef kaupendur f ást, ,en reki þá ella sjálf ur. Unnið verði af alefli að því, að reist verði hér lýsisherzluverk- smiðja, tunnuverksmiðja og niður- suðuverksmiðja auk annars iðn- aðar, sem hagkvæmur þætti. Vinna ber að aukinni gatnagerð eftir því sem fjárhagur bæjarins leyf ir. Bærinn stuðli að því að reist- ir verði verkamannabústaðir með allt að 30 íbúðum og greiði fyrir því með útvegun lóða og á annan hátt, sem nauðsynlegt þykir. 3. Menntamál: Með tilliti til þess að gagnfræðaskólinn býr við ger- samlega ónothæf húsnæði og barna skólinn við ófullnægjandi húsnæði, verði kappkostað um að reisa svo fljótt sem aðstæður leyfa hús yfir báða skólana. Bókasafn bæjarins skal bætt eftir föngum. 4. Heilbrigðismál: Reist verði nýtt sjúkrahús og lögð áherzla á að fá til þess úr rikissjóði sama styrk og veittur er til fjórðungssjúkra- húsa. Athugaðir verði möguleikar á því að taka gamla s júkrahúsið f yrir elliheimili. 5. Hitaveita:- Kappkostað verði um, að bærinn fái eignarrétt á jarð- hitasvæðinu í Skútudal og síðan framkv. þar jarðboranir og rann- sóknir með nýtingu fyrir augum. 6. íþróttamál: Sundlaugin verði gerð nothæf fyrir vorið og hún f ull- gerð innan tveggja ára. Unnið verði að því, í samráði við íþróttafélög bæjarins, að koma upp íþróttasvæði á hentugum stað. 7. Mjólkurbú bæjarins: Stuðlað verði að meiri ræktunarframkv og fullkominni tækninotkun á mjólk- urbúi bæjarins með það fyrir aug- um, að reksturinn verði eins hag- kvæmur og náttúruskilyrði leyfa. J Hörmulegt sjóslys | • » Mótorbáíurinn Helgi frá Vestmannaeyjum ferst á Faxaskeri. — 10 menn drukkna. Mótorbáturinm Helgi frá Vestniannaeyjum var s.l. laugardag á ferð frá Reykjavík til Vestmannaeyja, sjóveður var hið versta, austan rok og brim. Eitir iiádegi yar báturinn í vari við Eyjaraar, en íagöi svo á stað tii haínar og fór Iiina venjulegu bátaleið, svo kaiíað Faxasund. Skömmu eftir iduxkan þrjú mn daginn var Heigi kominn í sundiö við Faxasker og fékk þar á sig stórsjó. Virðíst svo sem véiin hafi stöðvast, því rétt á eitir rak hann upp á Skerið og brotnaði svo að segja samstundis. Um þeita leyti fór veður enn versnandi og gerði fárviðri. Björgunartilraunir voru gerðar, en sökum veðurofsans varð við eklíert ráðið. Eoks á mánu- dag tókst að brjótast á björgunarbáti út í skerið, fundust þar tvö lík. Á Helga voru 10 menn, þ.á.m. tveir Siglfirðingar, þeir Arnþór Jóliannisson og Gísli Jónasson, sjö menn voru frá Vestmannaeyj- um en einn frá Ölafsfirði. Öll þjóðin er liarmi lostin útaf þessmn sorglega atburði, og þá ekki sízt Siglfirðingar, sem sjá hér á bak tveim góðum drengj- um, dugnaðar og atorkumönnum, sem mikill skaði er að missa. Mjölnir vottar aðstandendum hinna látnu sjómanna samúð sína og hluttekningu í sorg.þeirra. GREINARGERB með bæjarmálastefnuskrá Sósíalistafélagsins á Siglufirðl Fyrst í stað hlýtur aðalverk- efni bæjarstjórnarinnar að verða yiðreisnarstarf. Sam- stjóm kratanna, íháldsins og Framsóknarflokksins á Sigilu- f jarðarkaupstað undanfarið, -— undir fomstu Gunnars Vagns- sonar, hefur verið með slikum endemum, að siíks eru ekki dæmi annarsstaðar. Eftir þessa happasnauðu samstjórn hinna þriggja flo'kka er svo komið, að Sigluf jarðanbær er í vanskilum við allar peningastofnanir og flesta, sem hann hefur haft við- skipti viðv Það hefur verið ibmðlað með fé bæjarins f full- •komnu ábyrgðarleysi, útsvör og önnur bæjargjöld verið illa inn- heimt. Stórefnuðum mönnum hefur liðist að greiða ekki út- svör sín en aftur á móti gengið hart að verkamönnum. 1 stuttu máii sagt: Svo illa er nú komið, að takist ekki að fá strax 1200 til 1500 þúsund króna lán, verð- ur trauðla komist hjá bæjar- gjaldþroti. En þó lánið fáist, og ibæjargjaldþroti verði forðað í bili, þá tekur það langan tíma, með sparneytinni og ráðdeildar- samri stjóm að koma fjárhag bæjarins í viðunandi horf, með- an það viðreisnarstarf stendm-, verður ekki hægt að ráðast í neinar framkvæmdir að ráði. — Það er brýn nauðsyn, að undir- búa betur fjárhagsáætlanir en gert hefur verið midanfarið og ieggja niður þann sið, sem tek- inn var upp í tið G. Vagnssonar að fara ekkert eftir fjárhags- áætlun í fjármálastjórn bæjar- ins. Það verður naumast um deilt, að það er höfnin, sem er fjöregg Siglulfjarðar fjárhags- lega. Þess vegna verður upp- bygging innri hafnarinnar að ganga fyrir öllu öðm þegar til eihhverra framkvæmda kemur, en skilyrði til þess að hægt sé að byggja upp innri höfnina er að höfnin eignist sjáilf hentugt dýpkunartæki. Auðvelt mun að fá slák tæki keypt eriendis, og það þolir enga bið að hefjast handa um það mál. Strax verð- ur ^að ganga endanlega frá skipulagi innri hafnarinnar og gera þar ráð fyrir aðstöðu til stóraukinnar þorskútgerðar, — viðleguplássi fyrir fiskibáta, — söltunarhúsi og hraðfrystihúsi. Þá er sjálfsagt að láta fara fram ítarlega rannsókn á hvort tiltækilegt þætti að koma upp fiskþurrkunarhúsi, þegar stækk un rafveitunnar væri lokið og raforka væri fyrir hendi. Starfræksla slííks fyrirtækis útheimtir mikla vinnu, og það myndi einmitt verða á þeim itlíma árs, sem atvinna er hér minnst. 1 eins miklum siglinga- og útgerðarbæ og Siglufirði, er það ekki vanzalaustaðhafaenga dráttarbraut. Nú er bygging litlu dráttarbrautarinnar norðan hafnarbryggjunnar að verða lokið, þessa dráttarbraut verð- ur að notast við næstu árin, en það þarf stráx að taka ákvörð- un um rekstur hennar og undir- búa hann. Er þá hægt, ef strax er að þessu gengið að hefja óhindraða starfrækslu dráttar- hrautarinnar fullgerðrar fyrir vorið. Það hafa verið fest kaup á síðari vélasamstæðunni tii Skeiðsfossorkuversins og málið er nokkuð undirbúið, en eins og flest annað hjá þeim bæjar- stjórnarmeirihluta, sem stóð að ráðningu G. Vagnssonar, er mál- ið þá hvorki heilt né hálft. Ber brýna nauðsyn til að táka það öðrum og . fastari tökum, enda er stækkun rafveitunnar eina •leiðin til að hún geti borið sig, um leið er það skilyrði íyrir auknum iðnrekstri í bænum. En um leið og stækkunín er fram- kvæmd, þarf einnig að hugsa fyrir endurbótum á raftauga- Ikerfi bæjarins, sem nú er í hinu mesta vandræða ástandi. Það stefnuskráratriði sósíal- ista, við þessar kosningar, að bærinn kaupi einn hinna nýju togara og tvo góða fiskibáta, er (Framhald á 4. síðu)

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.