Mjölnir


Mjölnir - 08.03.1950, Side 1

Mjölnir - 08.03.1950, Side 1
9. tölublað. Miðvikudagur 8. marz 1950 13. árgangur. Hvað þýðir hin fyrirhugaða gengis- feilsf aíturíiaidsins ? Ef krónan verðnr felld um 42,6%, eins og íhaldið íeggur nú til, og Framsóknarflokk- urinn virðist vera samþykkur, verða af- leiðingarnar meðal annars þessar: Jón Ejartansson ráðinn bæjarstj. Sósíalistafélag Siglufjarðar, Framsóknarflokkurina og Sjálf- stæðisflokkurinn gera málefnasamning um stjórn Siglufjarðar- kaupstaðar næstu f jögur ár og ráða Jón Kjartansson bæjarstjóra. — Alþýðuflokknum var boðin aðiíd að samkomuiaginu en hann neitaði. Á fundi í bæjarstjórn Siglu- f jarðar þann 3. þ. m. var Jón Kjartansson ráðinn bæjarstjóri með 6 atkvæðum, Sigurjón Sæ-» mundsson hlaut 3 atkv. Það voru sósíalistarnir þrír, sjálfstæðismennirnir tveir og framsóknarmaðurinn, er stóðu að ráðningu Jóns Kjartansson- ar, en alþýðuflokksmenn, sem kusu Sigurjón Sæmundsson. — Áður en samkomulag’' var gert um ráðningu Jóns Kjartansson- ar höfðu þeir þnír flokkar, sem að ráðningu hans stóðu, gert með sér málefnasamning um stjórn bæjarins yfirstandandi kjörtímabil. Það er engin laummg að sósíalistar eru ekki allskostar ánægðir með þennan málefna- samning, en þegar þrír flokkar, með mismunandi sjónarmið fara að semja er þess tæplega að vænta að hver og einn fái sitt allt fram. Það voru fyrst og fremst at- vinnumálin sem á milli bar um. Sósíalistar vildu láta það vera fortakslaust að allt sem hægt væri skyldi gert til að fá einn hinna nýju togara til bæjarins og það væri bæjarútgerðin sem ræki hann. Þá vildu sósíalistar að ákveðið væri að íbærinn keypti tvo góða fiskibáta til Ibæjarins, fengust ekki að þeim kaupendur, sem vildu reka þá héðan, ræki bærinn bátana. Þetta gátu -hvorki sjálfstæðis né framsóknarmenn fallist á. Ákvæðin um þessi útgerðarmál í málefnasamningnum eru þvá mjög á annan veg en sósíalistar töldu æskilegast. Allar greinar samningsins um viðreisn fjár- hags bæjarins var um fullt sam- komulag, og verði samningnum, hvað það snertir, framfylgt, sem ekki skal dregið í efa, þá er ger- samlega horfið frá Gunnars Vagnssonar-stefnunni með öllu hennar fyrirhyggjuleysi ög full ástæða til að vona, að f járhagur bæjarins komist í sæmilegt horf áður en langt um líður Með mál- efnasamningi þeim, sem nú hef- ur verið gerður, er samið um eitt mál, sem lengi hefur verið á döfinni. En það er um lóð undir samkomuhús verkalýðs- félaganna. 1 tvö ár hefur bæjar- stjórn þvælt þessu máh fram og aftur, oft hafa setið á bæjar- stjórnarfundum 5 og 6 ibæjar-# fulltrúar, sem jafnframt eru meðlimir Þrótar og jþó -hefur engin jákvæð 1-----fengizt. — Aðeins sósíalistarnir þriír hafa fylgt málinu fram en hinir flokk arnir allir þvælst fyrir. Er það meira en 1 meðallagi vesælmann- leg og sviksamleg framkoma af Alþýðuf-1. í þessu máli, eins og raunar svo mörgum öðrum mál- um varðandi veraklýðsfélögin. Nú er um samið, að verkalýðs- félögunum skuli í té látin lóð á góðum stað í bænum, -og er það verkalýðsfélaganna að reka á eftir að frá þessu verði gengið nú endanlega hið fyrs-ta. Það er vel þess vert að at- huga hvað við hefði tekið, hefði ekkert samkomulag náðst um bæjarstjóra. Þá hefði orðið að stofna til nýrra kosninga, en tíminn, sem til þess hefði farið hefði sennilega orðið ibæjarfélag inu of -langur og að öll-um Mkind um ekki verið hægt að umflýja bæjargjaldþrot. Þá er og hins að gæta, að tæplega var hægt að vænta þess að sósíalistar íengju hreinan meirihluta í bæjarstjórn við nýjar kosningar, en það var sú eina breyting í bæajrstjórn- inni, sem verulega s-kipti máli. Þetta verður að hafa í huga, þegar -dæmt er um þessi ýál. Maður sá, sem nú e-r ráðinn í hið erviða og vanþakkláta bæj arstjórastarf, hefur gegnt starf inu síðan nokkru eftir að Gunn- ar Vagnsson flosnaði upp úr -því. Þennan tíma virðist Jón Kjart- ansson hafa lagt sig fram um að standa 'i stöðunni og þó ekki sé fenginn löng reynsla af hon- um, blandast þó engum, sem til þekkja, -hugur um að hann hefur tekið störfin fyrirhyggju- samari tök-um og af meiri dugn- aði en sá sem á undan honum var. Lofar þetta strax góðu, þó ofsnemmt sé nú að fullyrða nokkuð um hvernig honum muni takast. Þáttur Alþýðuflokksins í þess um samningaumieitunum undan farið, er saga út af fyrir sig, og með heldur litlum „glansi.“ — Fyrst tekur Alþýðuflokkur- inn tilboði sósíalista um viðræð- ur, -um fjögra flokka samstarf. Meðan á þeim viðræðum stóð, byrjar -hann svo með undirferli og baktjaldamakki að reyna að koma saman meirihluta gegn sósíalistum. Þetta athæfi þótti Sjálfstæðism. og Framsóknarfl. heldur luþbalegt og neituðu, — enda heldur klunnalega að öll-u farið. — Alþýðuflokknum var sama um bæjarfélagið, og sú staðreynd, að það er fyrst og fremst Alþýðufl., sem ber á- byrgð á hvernig fjárhag Siglu- fjarðarbæjar er komið, var heldur ekkert atriði. Það var hatrið til Sósíalistafl. sem stjórn ast var af. Alþýðufl. leit svo á, að ef hann gæti komið saman meirihluta gegn Sósíalistafl., myndi hann einn í andstöðu einangrast. Og til að koma þess-u fram, er svo beitt „japönskum“ aðferðum; — samningum um fjögra flokka samstarf ekki slitið, en bak við tj-öldin reynt að semja við Sjálfst.fl. og Fram sókn. Minnir þetta mjög á samn ingagerðir Japana, meðan þeir undirbjuggu árás s'ína á Pearl Harbour. Hitt er svo annað mál, aA sniðugheit Alþýðufl. í þessum laumusamningum vor-u mikið minni en illkvittnin í garð sósíal ista, eins og raun ber vitni. — Eftir að samkomulag er -orðið með þremur flokkunum um mál efnasamning og ráðningu Jóns Kjartanssonar, var Alþýðufl. boðin aðild að samkomulaginu, en hann skrifaði dólgslegt bréf til baka og neitaði og fór -í fýlu, en eitthvað mun hafa síast inn í söfnuðinn, að ekki sé nú hlutur flokksins eða öllu heldur for- ingja hans, sem beztur í öllu þessu máli, má þó ef til vill svo fara, að þetta komi betur í Ijós síðar. Málefnasamningur flokkanna er birtur hér á eftir orðréttur, og geta lesendur þá sjálfir dæmt um hann betur heldur en ef aðeins er sagt frá innihaldi hans. Undirritaðir fulltrúar Framsóknarflokksins, Sósíalistafél. Siglu- fjarðar og Sjálfst.fl. í bæjarstjórn Siglufjarðar gera svofelldan BÆJARMALASAMNING 1. FJÁRMÁL: A. Fjárliagsáætlanir bæjar- og hafnarsjóðs og rafveitu verði samdar með sérstakri varúð og án tekjuhalla, ef unnt er. Þess verði gætt, að álagning útsvara sé miðuð við greiðslu getu almennings. Áfallnar, mnsamdar skuldir séu allar teknar á f járli.áætlun (Framhald á 4. síðu). © Allar erlendar vörur hækka í verði um 74,3%. — S. 1. ár voru fluttar inn vörur fyrir ca. 300 millj. kr. Samsvarandi vörumagn myndi eftlr gengislækkunúna kosta um 523 milljónir kr. — Þetta svarar til 1700 kr. skatts á hvert mannsbarn í Iandinu, eða 8500 króna skatts á hverja 5 manna fjölskyldu. © Erlendar vörur, sem áður þurfti að vinna fyrir í átta stundir, 'kosta 14 stunda vinnu. Dollaravörur, sem kostuðu átta stunda vinnu fyrir gengisfellinguna í haust, kosta 20 stimda vinnu, © Gullsgengi krónunnar kemst niður í 13j4 eyri, eða ca. einn áttimda af upphaflegu gengi hennar. @ Fastaskuldir ríkisins erlendis hækka úr ca. 70 millj. kr. í ca. 122 milij. kr. Lausaskuldir hækka samsvarandi. @ ^ogararnir, sem verið er að smiða 1 Bretlandi, liækka í verði úr tæpum 5 milljónum kr. í ca. 8 miilj. kr. © Erlendur kostnaður við hina fyrirhuguðu Sogsvirkjim hækkar úr 48 niillj. kr. upp í ca. 83 millj. kr. © Vélasamstæðan í Skeiðsfoss, sem búið er að panta, en eftir er að greiða að mestu leyti, hækkar úr ca. 800 þús. kr. upp í ca. 1400 þús. kr. © Hæringur liækkar í verði um ca. 16 millj. kr. Ujpphaf- lega kostaði Iiann 2,3 millj. dollara, eða um 15 millj. kr. Við gengislækkunina í haust hækkaði harnn upp í 2114 milljón. Nú kemst hann upp í 37^4 milljón, eða ca. 15 millj. kr. meira en SR’46 kostaði. © Földu f jársjóðirnir heiidsalanna og annarra braskara erlendis, sem talið er að hafi numið liundruðiun millj. króna fyrir gengislælckunina í liaust, hækka nú að verðmæti Um 74,3%. Ný verðbólguskriða rennur af stað. Auk erlendu varanna hækka innlendar iðnaðarvörur úr erlendum hráefnmn stór- lega. Síðar koma svo óbeinar hækkanir vegna hækkunar á rekstrarvörum, svo sem benzíni, olíum, varalilutiun o.s.frv. T. d. er talið, að fiskverð muni liækka um þriðjung, til jafns við það sem það hækkar á erlendum markaði. Kostnaður við húsabyggingar hækkar að miklum mun, vegna hækkunar á erlendu byggingarefni, sementi, timbri, miðstöðvarefni, raflagnaefni, þakplötum, klæðningarpl. o.fl. PENNASTRIKIÐ Fæstir munu hafa búist við góð-u af' -bjargráðum ríkisstjórn- arinnar. Að minnsta kosti var flestum ljóst, að enn á ný mundi verða ráðist á kjör laun- þeganna í landinu, enda vitan- legt; að gengislækkun krónunn- ar mundi alltaf koma harðast niður á verkamönnum og öðr- um láglaunamönnum. Fáir munu þó hafa gert ráð fyrir, að bjargráðafrumvarpið mundi verða svo einhliða árás á launastéttirnar, sem nú er komið í ljós, án þess, að nokkur tilraun væri gerð til að taka féðýþaðan sem nógu var af að taka, hjá verzluninni og öðrum þeim, sem áttu stóreignir, og án þess einu sinni væri nokkur raunveruleg trygging fyrir því, að „bjargráðin“ bjargi sjávar- útveginum og öðrum fram- leiðsluatvinnuvegum. — Frum- va,rp þetta er alveg, einhliða árás á launastéttirnar, og sú svikamylla, sem stöðugt á að halda áfram að mala auðmönn- unum meiri auð og alþýðu æ sárari örbirgð og skort. Jafnvel þótt gripið hefði verið til þess óyndisúrræðis að lækka gengi krómmnar, hefði þó verið hægt að g.era þær hMð- arráðstafanir, sem eitthvað hefðu dregið úr þeim þunga, sem þetta leggur á launþeganna og jafnframt að leggja að ein- hverju leyti byrðar á þá, sem eitthvað gátu borið. Það er ekki rúm til þess að færa hér þau rök að þessu máli en vísast til umræðu hagfræðinga þeirra, ér töluðu á stúdentaf-undinum, er útvarpað var s.l. sunnudag, þar sem þeir Haukur Helgason, Jónas Haralz, Klemenz Tryggva son og Gylfi Þ. Gíslason héldu hver öðrum betri ræður gegn frumvarpinu. En hér mun gerð tilraun til að skýra hversvegna frumvarpið er einmitt einhliða árás á launþegana. Islenzku borgaraflokkarnir eru einka- fyrirtæki íslenzka auðvaldsins. (Framhald á 4. síðu).

x

Mjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.