Mjölnir - 26.04.1950, Síða 4
Miðvikudagur 26. apríí 1950.
13. tölubJað.
13. árgangur.
iVidreisnin' og
bændurnir
Gengislækkunin er rothögg á þá tækniþróun í
► landbúnaðinum, sem hófst á valdatímum
nýsköpunarstjórnarinnar
„\IDIIEISN“ feændaflukkanna
íkalds og Framsóknar kemur
ekki síður hart niður á bænd-
mn en alþýðu bæjanma. Land
búnaðurinn útheimtir mikið
af erlendum rekstrarvörum
tilbúnum ábiu’ði, fóðurvörum,
vélmn, varahlutmn, ohum,
benzíni o.fl. Innflutningsverð
þessara vörutegunda liækkar
nú mn 74%. Flestar þeirra
hafa verið seldar með mjög
lítilli álagningu, svo verð-
hækkunin á þeim verður enn
tilfinnanlegri en ýmsar aðrar
verðhækkanir, sem gengis-
lækkunin leiðir af sér.
UNDAiNF. hefur allmikið af
landbún.vörum verið keypt
inn fyrir dollara. Þessar
vörur hækkuðu í verði um allt
að 44% vegna Marsliall-geng-
islækkunarinnar í fyrrahaust
og hækka nú enn mn allt að
74%. Nemur hækkunin á inn
flutningsverði þeirra síðan í
fyrra vegna „viðreisnarráð-
stafana“ því aUt að 150%!
ÞÁ HÆKKUN, sem verður á
rekstursvörum útgerðarinm-
ar vegna gengislækkunarinn-
ar, fær útgerðin bætta upp að
nokkru, máske öUu leyti, með
hækkuðu verði á afurðum á
erlendum markaði — ef mark
aðir fást fyrir þær. Landbún-
aðurinn fær enga slíka upp-
bót. Útflutningur á landbúnað
arafurðum er ekki teljandi,
og óhugsandi er að hann verði
aukinn til neinna mrnia í ná-
inni framtíð, nema með því
að lækka kaup bænda og búa
Uðs meira en orðið er, eða þá
með því að greiða stórkostl.
styrki af opinberu fé með
þeim landbúnaðarafurðum, er
seldar væru á erlendum mark
aði. Islenzkur landbúnaður er
sem sé lengra frá því að vera
samkeppnisfær á erlendum
markaði en flestar aðrar ís-
lenzkar atvinnugreinar Orsök
in er fyrst og fremst sú að
ha.nn er á eftir tæknilega og
skipulagslega.
Á VALDATlMA nýsköpunar-
stjómarinnar var liafizt
handa um margháttaða ný-
sköpun í landbúnaðinum, í
þeim tilgangi að koma hon-
mn á hærra stig tæknilega. —
auka ræktunina, létta störfin,
auka vinnuafköstiny bæta
skipulagið og gera þessa at-
vinnugrein hæfari en áður til
samkeppni á erlendum og inn
lendiun markaði Hefur þessi
nýsköpim borið mikhm og
lieillaríkan árangur.
Með igengislækkuninni, „Við-
reisn“ Frams. og íhaldsins er
bændum gert ómögulegt að
Iialda áfram miklum ræktun-
framkvæmdum, auka véla-
kost sinn og aðra tækni og
þar með framleiðsluaíköstin.
Flestir bændur neyðast til að
draga stórlega saman seglin.
Á STRlÐSÁRUNUM jókst sala
á landbúnaðarafurðum innan
lands geysimikið, vegna auk-
innar kaupgetu alþýðunnar í
bæjunum, og hefur lialdizt
nokkurnveginn óbreytt síðan.
Gengislækkunin og atvinnu-
leysið, þessi tvö helztu „við-
reisnaraf rek“ affnrhaldsflokk
anna rýra svo Itaupgetu bæja
alþýðunnar, að ney^la hennar
á hinum dýru landbúnaðaraf-
urðum hlýtur að minnka veru
lega. Afleiðingin verður vax-
andi söluerfiðleikar land-
búnaðarins, sém aftur mim
leiða til samdráttar í fram-
leiðslunni, vaxandi fátæktar
í sveitunum og aukinna niður
greiðslna með þeim liluta
framleiðslunnar, sem seldur
verður til útlanda.
FYRSTU VBOBRÖGÐ bænda
við gengislækkuninni voru
af turkallanir í stórum stíl á
pöntumnn á tílbúmun áburði
o. fl. erlendum vörum. Næsta
skrefið eru bændafundir þeir
sem haldnir liafa verið undan
farið og enn er verið að halda
víða um land, þar sem bænd-
ur setja fram þá kröfu, að
þeir fái þetta ár reksturvörur
við þv| verði, sem gilti fyrir
gengislækkunina. Hefur for-
maður Stéttasambands bænda
m. a. beitt sér fyrir slíkri
samþykkt.
Heyrzt liafa úr hópi bænda
raddir um að heimta beri
verðhækkanir á afurðum
þeirra, til að mæta gengis-
lækkuninni. Má telja víst, að
slíltar kröfur verði bomar
fram aJf samtökum þeirra á
næstunni, og væri síður en
svo óeðlilegt. Verðhækkanir
á landbúnaðarafurðum, eins
og nú standa sakir, mundu
þó aðeins verða til þess að
auka sölutregðuna innan-
lands og eiga því tæpast rétt
á sér nema að imdangenginni
kauphækkun hjá launastétt-
uniun í bæjunum..............
EF TEL VILL er það ofmælt, er
liaft er eftir bónda einum á
Suðvesturlandi, að gengis-
lækkunin, þessi allrameinabót
íhaldsins og Framsóknar,
muni leggja landbúnaðinn í
rúst. En hún er að minnsta
kosti allharður snoppungur,
sá harðasti, sem bændastétt-
inni hefur verið réttur um
langt árabil.
Yfirgnæfandi meirihluti sveita-
flokksins
Athygli sósáallista og annarra
verkalýðssinna, sem :kynna vilja
sér ástand þjóðfélagsmála og
þróun auðvaldsþjóðfélagsins, er
hér með vakin á því, að Sósíal-
istaflokkurinn hefur komið á
fót bréfaskóla, þar sem veitt er
bréfleg fræðsla um ýmis höfuð-
einkenni auðvaldsþjóðfélagsins,
áhrif þeirra á efnahagslíf al-
mennings og þjóðarheildarinnar,
og úrræði, tililögur og leiðir
sósíalista hér á landi og erlend-
is varðandi hin kapitalisku þjóð
félagsvandamál.
Fyrsti námsflakkurinn nefn-
ist: Kreppur auðvaldsskipulags-
ins og eru í honum 8 bréf með
eftirfarandi efni:
1. Stutt sögulegt yfirlit iyfir
kreppur auðvaldsins, þar
með hina aJmennu Ikreppu
þess.
2. Um breytingar á skipan
þjóðfélagsins.
3. Kreppur í auðvaldsþjóðfé-
lagi og orsakir Jæirra.
4. Leið sósíalismans. Yfirlit
yfir þróun í hinum sósíal-
istisku rxkjum.
5. Kreppan, sem nú er í upp-
siglingu og horfumar í sam-
bandi við hana.
6. Áhrif kreppunnar á Islandi.
7. Urræði og kenningar ís-
lenzku borgarastéttarinnar.
8. Urræði og tillögur Sósíalista
flokksins.
Þátttaka í þessum bréfanám-
skeiðum er öllum heimil. Náms-
gjaldið er aðeins kr. 30,00 og
iþarf að greiðast fyrirfram.
Skólastjóri er Haukur Helga-
son, hagfræðingur.
Utanáskriftin er: Bréfaskóli
Sósíalistaflakksins, Þórgötu 1,
Reykjaviík.
Þetta er mjög hentugt fyrir
'álhugasamt fólk, sem vill kynna
sér orsakir þess þjóðmálaöng-
þveitis, sem ísl .þjóðin og raun-
ar þjóðir hins vestræna kapital-
iska heims era komnar í. Og
ibréfaskólinn bendir á leiðina frá
þessu öngþveiti.
alþýðunnar hefur allt fram á
þennan dag lilitt póhtískri
forustu ,viðreisnarflokkanina‘
ílialdsins og Framsóknar. —
Hin atvinnulega þróun í sveit
unum hefur gengjð grátlega
seint undir póhtískri forustu
þeirra. Th Jiess að skriður
kæmist á þá þróun þyrfti sá
stjómmálaflokkur, sem mest
hefur verið rægður við alþýðu
sveitanna, Sósíalistaflokkm*-
inn, að komast í ríldsstjóm
og fá aðstöðu til nokkurra á-
hrifa á málefni hennar. Nú
hefur nýsköpunin í sveitun-
um verið stöðvuð, a.m.k. í bhi.
„Bændaflokkarnir,“ íhaldið
og Framsókn, hafa brugðið
fæti fyrir hana.
Væri nú ekki ráðlegt fyrir al-
þýðu sveitanna að endur-
skoða afstöðu sína tíl þessara
floklca og atliuga um leið, í
góðu tómi, hvað Jæir hafa
haft fram að færa inn mál-
efnl hennar?
Góðar bækur
Eg er nýlega ibúinn að fá
þrjár nýjustu félagsbækur Máls
og menningar; tvær síðustu
bækumar 1949 og fyrstu ibók
ársins 1950.
Síðustu bækur 1949 eru þriðja
ibindið af Endurminningum Mart
in Andersen Nexö, og síðara
bindið af Lífsþorsta, sögunni
laf málaranum fræga, Vincent
Van Gogh, eftir Irving Stone.
Báðar eru þessar bæ'kur einkar
hugljúfar til lesturs og hollar
hverjum manni. Hér verður ekki
um neinn ritdóm að ræða um
bækur þessar, heldur er ætlun
þessara lína, að vekja athygli
‘bókavina, sem enn hafa ekki
gerzt meðlimir Máls og menning,
ar, á þeim og þá um leið á þeim
kostakjörum, sem Mál og menn
ing býður.
Fyrsta bó'k 1950 er Hugsjónir
og hindurvitni, eftir bandarísk-
an prófessor, Barrow Dunham.
Bók þessi er fróðleg og lyftir á
skýran hátt blæjum af hinum
ýmsu hindurvitnum, sém notuð
eru á margvósiegan hátt, til að
hindra stéttir og jafnvel þjóðir
ó sókn til betra og bjartara lífs.
Holt væri því fólki, sem komið
hefur auga á ógöngur þær, sem
þjóðskipulag auðvaldsins er kom
ið í, en vill samt ekki viður-
kenha að það sé komið á leiðar-
enda, að skeið þess sé á enda
runnið, — holt væri því fólki
að lesa þessa bók og kynnast
því hvernig ýmis hindurvitni
valda því, að það hefur ekki
komið auga á ástandið eins og
það er, en aðeins hluta af þvi,
sem sé ógöngumar, en ékki leið
arlokin. Allir aðrir hafa auðvit-
að gott af að lesa þessa bófc til
fróðleiks.
Hvað kosta þessar bækur?
Já, hva,ð kostar að vera í Máli
og menningu og hvað eru félags
ibæfcumar margar á ári ? —
Árgjaldið er núna kr. 50,00 og
'félagsbækumar em þrjár, og
auk 'þess Tímarit M. o. m., en
það eru þrjú hefti á ári, sem til
samans eru á við eina meðalbók
að stærð ,en fjölbreyttari að
efni. Bækumar er hæ-gt að fá,
hvort menn vilja heldur í bandi
eða óbundnar.
Það er því augljóst, að miðað
við bókaverð almennt, em það
kostakjör, sem menn njóta hjá
Máli og menningu, og þar að
auki fá félagsmenn afslátt á
öðrum bókum, sem gefnar em
út á vegum félagsins.
Mál og menning hefur jafnan
kappkostað um að gefa út góð-
ar og gagnlegar bækur, og tel ég
að íslenzkir bókamenn og ís-
lenzk alþýða standi í óbættri
þakkarskuld við félagið; þakkar
skuld, sem bezt verður goldin
á J>ann hátt að sem flestir ger-
ist félagsmenn og notfæri sér
um leið hin góðu kjör, sem félag
ið býður. E
Fermingarbörn 1950
sunnudaginn 30. apríl.
DRENGIR:
Bergsveinn Sigurðsson,
Suðurgötu 51 1
Brynjar Ó. Einarsson, Grundg. 9
Eiður H. Indriðason, Túng. 34
Einar G. Adólfsson, Aðalg. 15
Eiríkur Ólafsson, Hlíðarveg 16
Friðrik H. Eggertsson, Hv.br. 62
Friðrik P. Gunnlaugsson,
Túngötu 43.
Guðlaugur H. Henriksen,
Aðalgötu 2.
Gunnar Þ. Sveinbjömsson,
Aðalgötu 23.
Hallgrímur G. Færseth,
Norðurgötu 12B
Haraldur F. ÞoiValdsson,
Grundargötu 22
Harry Petersen, Suðurgötu 47.
Ilaukur Jónasson, Hv.eyr.br. 64
Héðinn Jónsson, Norðurgötu 13
Heiðar R. Ástvaldsson, 1
Grundargötu 11.
Hilmar L. B. Antonsson,
Lækjargötu 16B
Hjalti S. Guðmundsson,
Hlíðarveg 35.
Hörður Bjarnason, Grund.g,. 18
Jóbannes Helgason, Bakka.
Pétru’ Pétursson, Túngötu 37.
Reynir Þorgr'imsson, Túngötu 1
Sigurður B. H. Jóhannesson,
Hiíðarveg 33.
Sigurður S. Þorláksson, Háv. 10
Sveinn Sveinsson, Suðurg. 49.
Sverrir Eolbeinsson, Hv.br. 60.
Sæmundur Emiisson, Túng. 31B
Þórður Sigurðsson, Norðurg. 13
STÚLEUR:
Agnes Egilsdóttir, Suðurg. 15.
Anna S. Karlsdóttir, Aðalg. 23.
Auður Björnsdóttir, Hafnarg. 6.
Ástríður Jóhannsdóttir, 1
Vetrarbnaut 10
Elfa Hólm, Hvanneyrarbraut 17
Erla Óskarsdóttir, Hv.br. 25.
iGeirlaug Egilsdóttir, Aðalg. 11
Gréta Jóhannsdóttir, Lækjarg. 9
Guðbjörg A. Jóhannsdóttir,
Eyrargötu 20.
Guðbjörg O. Friðriksdóttir,
Bakka.
Guðný Á. Hilmarsdóttir,
Eyrargötu 28.
Halla Kr. Sigurðardóttir Dalabæ
HJelga Pálmadótir, Hvanneyri.
Hjördás Vilhjáknsdóttir,
Suðurgötu 54.
Hrafnhildur L. Oddsdóttir,
Hvanneyrarbraut 51.
Indíana Sigrún Ólafsdóttir,
Norðurgötu 5.
Inga St. Ingvarsdóttir, Hólav. 10
Ingibjörg M. Kristjánsdóttir,
iRáðhústorgi 1.
Kolbrún Eggertsdóttir, Suðg. 43
Snjólaug J. Hallgrímsdóttir,
Hólavegi 14.
Sonja Guðlaugsdóttir, Hvbr. 29
Svava Aðalsteinsdóttir,
Laugarvegi 5.
Þórunn Fr. Þorgeirsdóttir,
Eyrargötu 15.
KAUPUM
Vi og V2 flöskur
hæsta verði
FÉLAGSBAKARÍBE)