Mjölnir


Mjölnir - 21.06.1950, Blaðsíða 3

Mjölnir - 21.06.1950, Blaðsíða 3
MJOLNIB s M. 1. R. stolnað á Sfélufirði Tílgangur félagsins er að koma á og Jialda uppi menningarlegu isamstarfi milli íslands og Ráð- stjórnarríkjanna, veita fræðslu um menningu, þjóðféíagshætti og vísindi í Ráðstjórnarríkj- um, og kynna þar íslenzka menningu. TILKYNIMING um uppbótagreiðslur til ellilífeyrisþega og öryrkja fyrir bótatúnabilið 1. júlí 1949 til 30. júní 1950. Tryggingaráð hefur ákveðið að neyta heimildar þeirrar, er síðasta Alþingi veitti þvi, tii iþess að greiða uppbætur á ellilífeyri, örorkulífeyri, örorkustyrk og maJkabætur Ifyrir bótatlímabilið frá 1. júií 1949 til 30. júní 1950. Uppbætur þessar nema 10% af framangreindum bótagreiðslum, og hefur Tryggingastofnun ríkis- ins lagt fyrir umboðsmenn sína að greiða uppbætur þessar í einu lagi fyrir nefnt tímabil, um leið og júnigreiðsla fer fram, þ. e. lokagreiðsla fyrir yfirstandandi bótaár. Uppbæturnar greiðast bótaþegum á venjulegan hátt, eða þeim, sem hefur löglegt umboð til að taka á móti bótunum. Hafi bótaþegi látizt á tímabilinu, greiðast uppbætur til eftirlilfandi maka. Um igreiðslu vísitöluuppbótar samkvæmt iögum um gengis- s’kráningu o. fl. verðui’ tilkynnt síðar. Reykjavik, 7. júní 1950. TRYGCEVGASTOFNUN RÍKISINS Tilkynning nr. 18/1.950 frá verðlagsstjóra Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefur ákveðið að fella úr gildi verðlagsákvæði á sælgæti, bæði að því er snertir heildsölu- og smásöluverð. Reykjavík, 5. júni 1950. VERÐLAGSSTJÓRENN ing nr. 19/1950 frá verðlagsstjóra Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs liefur ákveðið hámarksverð á bremidu og möluðu kaffi frá innlendiun kaffi- brennslum: Heildsöluverð án söluskatts ........ kr. 24,66 Heildsöluverð með söluskatti ....... — 25,42 Smásöluverð án söluskatts í smásölu... — 27,42 Smásöluverð með söluskatti lí smásölu. — 28,00 Sé kaffi selt ópakkað, skal það vera kr. 0,40 ódýrara hvert kg. lteykjavík, 6. júní 1950 VERÐLAG SSTJÓREVN Stofnfundur félagsins „Menn- ingartengsi ísiands og Ráð- stjórnarríkjanna“ á Siglufiroi, var haldinn í Alþýðuhúsinu 13. .júní s.i. Fundarstjóri var Eberg Elefsen; flutti hann fyrst stutt ávarp um tilgang hins væntan- lega félags. Síðan flutti Þórodd- ur Guðmundsson ræðu. Þá las fundarstjóri upp uppkast að lögum fyrir félagið, og var það samþykkt með samhljóða at- Ikvæðium. Því næst fór fram s-tjórnar- ikosning, og fór hún þannig: Forseti var kjörinn Jón Hj. Gunniaugsson læknir, varaifor- seti frú Guðbjörg Sæmunds- dóttir, gjaldkeri frú Sigurpála Jóhannsdóttir, ritari Hlöðver Sigurðsson skóiastjóri og vara- ritari Guðmundur Einarsson vélsmiður. Varamenn í stjórn voru kjör- in Pétur Guðmundsson og frú Valgerður Jóhannesdóttir, end- urskoðendur Einar M. Alberfcs- son og Helgi Kristjánsson, og 'til vara Óskar Garibaldason. Árgjald til félagsins var ákveðið kr. 10,00. Að fundinum ioknum var Óður Síberíu RÚSSNESK KVIKMYND 7 Nýlega var sýnd hér kvik- myndin Óður Síberíu. Er það gulifalleg rússnesk mynd, sem gerist að mestu leyti í Síberiu, hinu víðáttumikla og auðugia landi, sem ráðstjórnarþjóöirn- ar eru óðum að breyta í akra, iðjuver og blómleg búfjárrækt- arhéruð. Myndin er með sænsk- um -texta. Söguþráðurinn í myndinni er á þessa leið: Hún hefst á síð- ustu dögum stríðsins og her- menn úr Rauða hernum ráðast á Boroslo. I hléi, sem verður á þardaganurn hvílist herdeild undirforingjans Balakovs í kjallara hrunins húss. Hermenn irnir taka að syngja þjóðlag og liðsforinginn leikur á píanó, er þar farihst. í borgaralegu iífi er hann p'ianóleikari og efnileg- ur tónlistarmaður. 1 miðjum kliðum hefst bardaginn á ný. Stríðinu er lokið, og myndin sýnir tónlistarsamkeppni í tón- listarháskólanum í Moskva. — Óperusöngkonan Natasja Mal- inina og píanóleikarinn Olen-- itstíh vekja óhemju hrifningu. Liðsforinginn Balákov er við- staddur; hann ber ástarhug til Natösju, en heldur, að hún sé orðin sér fráhverf og muni geðj ast betur að Olenitch, keppi- jnaut sínum. Haun fylhst ör- sýnd kvikmyndin ,,Óður Síber- 'iu“. Er það ein fegursta og skemmtilegasta kvikmynd, sem hér hefur sézt, enda skemmtu menn sér ágætlega við sýning- una. Biaðið hefur verið beðið fyrir iþau skilaboð til þeirra, sem ekki hafa enn skilað stofnendalist- um, að skila þeim í þessari viku til stjórnar félagsins. væntingu, þar sem hann telur, að listamannsbraut sín sé á enda, vegna þess, að hann hafði særzt á vinstri hendi í str'iðinu og gat ekki leikið á píanó fram- ar. En um þetta vissu fáir. — Hann hverfur því á braut, en vinir hans leita að honum ár- angurslaust. Hann sést næst í myndinni á íflutningaskipi úti á fljóti í Síberíu, þar sem hann tekur að leika á harmoniku og syngja samferðafólkinu til ánægju. — — Hann ræðst til að leika og syngja á testofu í einni land- nemabygigðinni inni í Síberíu, og þar kemst hann að raun um það, að honum ber að heiga fólkinu list sína. Fllugvél með Natösju og Olen- itoh og fleiri tónlistarmenn, sem eru á leið til Ameríku í tón- listarferð, nauðlendir vegna þoku í nágrenni testofunnar. — Þar hittast þau aftur, Bálakov og Natasja,-og ást þeirra hvors til annars lifnar á ný. Þar er einnig ung stúlka, sem verið hafði hjúkrunarkona í herdeild Baiakovs í stríðinu, og héit hún aðdáun sína á honum vera ást og hafnaði þvi stöðugt bílstjór- anum Bourmák. Natasja og félagar hennar halda ferð sinni láfram, en Baiia- kov hverfur frá testofunni og ferðast víða um Síberíu og fylgist með uppbyggingu og framförum landsins. Hann sér, hvernig búið er að breyta þessu ónumda landi í blómlega akra og borgir, og iðnaðarstöðvar hafa risið upp. Hann semur tónverk um Síberíu. Aftur er snúið til Moskva og myndin sýnir stóra sahnn í Tón- . listarhöllinni. Það er verið að leika rhapsodiu Balakovs um Síber’íu, sem hann hefur nefnt söng tægunnar. Er þar minnst innrásar Tyrkjans YermákS í Síberiu, náttúruhamf arir lands- ins sýndar og síðan það, sem við tók, sköpunarverk þeirra, sem komu til að byggja upp landið. Myndinni lýkur, er þau Bala- kov og Natasja, Bourmak og Natienka halda aftur til Síberiu. Mynd þessi verður sýnd í Siglufjarðarbíói í kvöid og að líkindum í annað skipti til, og ættu sem flestir að nota tæki- færið og sjá hana. Bænum neitað um fjárfestingarieyfi fyrir fiskþurkstöð Einstaklingi í bænum veitt levfið. Svo sem mörgum er kimnugt, hefur Siglufjarðarkaupstaður sótt um leyfi til að koma hér upp fiskþurrkunarstöð. — Hefir nú borizt svar f járhagsráðs, og er það blátt og þvert NEI. Hinsvegar mun einstaklingi í bænum, Alfons Jónssyni, kaup- manni, hafa verið veitt leyfi til að koma á fót fiskþurrkxmar- stöð hér. ! | Frétt frá verðlagsstj. Vegna fyrirspuma út af verð- hækkun á benziíni og olíum, sem varð 1. apriil, skai þess getið, að oliufélögin fengu ekki heimild til verðhækkunar fyrr en þau voru búin að selja sem sam- svaraði öllum eldri birgðum sín- um á lægra verðinu. Voru þá til á nokkrum stöðum eldri birgð- ir, en á öðrum stöðum var búið að selja svipað magn af nýjum birgðum. Var tálið óhjákvæmi- legt, að verðhækkunin gengi í gildi samtímis á öllu landinu. ^icfluföartatttíc sýnir í kvöld (miðvikudag) kl. 9 myndina ÖÐIJR StBERÍU. Næstu myndir verða: ÆVINTÝR AHEIMIR teilknimyndin fræga eftir Walt Disney. KONAN A STRONDINNI FRIEDA, heimsfræg ensk mynd, sem farið hefur siguriför um allan heim. Qtvarpstæki Nýtt iPhilips-útvarpstæki 5 lampa, er til sölu af sérstökiun ástæðum. , . | Afgr. vísar á. Landnemmn. 1. hefti Landnemans á þessu ári er fyrir nofckru komið út. Eru í heftinu margar ágætar greinar, þ.á.m. grein um Sovét- kvikmyndir. Þeir áskrifendur Landnem- ans, sem eiga eftir að fá þetta hefti og einnig þeir, sem vanta kynnu einstök hefti síðasta ár- igangs, eru vinsamlega beðnir að vitja þeirra í áfgreiðsluna Suð- urgötu 10. HJÓNABAND Nýlega voru gefin saman í hjónaband á Akureyri ungfrú Erna Sigmundsdófctir s'imamær, Siglufirði, og Ófeigur Eiríksson stúdent frá Akureyri. Nýtt hjálpartæki (Frh. af 1. s.) venjulegri bergmálsdýptarmæl- um, sem gerðir eru fyrir meira dýpi. Ennfremur var sent til hliðar, og gaf það góða raun. Þefcta þýðir það, að fiskveiði-. skip geta ekki einungis notað tækið á venjuiegan hátt til að finna torfur, sem eru beint iund- ir kili skipsins, heldur geta þau lika fundið torfur innan vissra tákmarka til hliðar við skipið, því „oscilatorinn“ (áhaldið, sem framleiðir rafsveiflur þær er leita bergmálsins) er hreyffan- Qegur og hægt að beina honum í ýmsar áttir. Tækið er ætlað fyrir lxinar smærri tegxmdir fiskisldpa, og virðist hæfa ágætlega Ibátxxm, sem stunda síldveiðar, brishngs veiðar, xnakrílsveiðar eða þorsk veiðar með snurpinót. (leturbr. Mjölnis). Fyrst og fremst virð- ast reknetaskip okkar og snurpi nótaskipin í Lofoten, sem nú fer f jölgandi, hafa fengið geysi- dýrmætt hjálpartæki, þar sem þessi nýi bergmáisdýptarmælir er. Hann er langtum ódýrari en þeir bergmálsdýptarmælar sem nú tíðkast mest og uppsetning hans útheimtir engan sénstakan útbúnað um borð í skipunum. Sérfræðingar þeir, sem sáu tækið í notkun í Lofoten og í þessari reynsluefrð, voru mjög hrifnir af þessari hentugu gerð bergmálsdýptarmæla, sem þeir telja að muni verða jafn gagn- legir fyrir strandveiðiflota okikar og hinir venjulegu, stóru dýptarmælar er» fyrir þau skip okkar, sem sæfcja á djúpið." Bæjarpóstur (Frh. af 2. siðu) þama var eytt til einskis. Og hinn atvinnulausi verikamaður gengur heim á leið og, hugsar um það, hvað fjandmönnum ríkisrékstrar á Islandi hafi tek- ist að búa til ömurlega skrípa- mynd af rekstri, sem rekinn er með sameiginlega hagsmuni iþjóðarinnar fyrir augum.

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.