Mjölnir - 28.06.1950, Síða 4
18. tölublað. 13. árgaaigur
Bœjakeþþni Isfirdinga og Siglfirdinga
u
Siglfirðingar unnu með 10.879 stigum.
Bæjakeppnin í frjálsum íþróttiun milli isfirðinga og Sigl-
firðinga, hin fjórða í röðinni, fór fram á Siglufirði, dagana 23.—
24. júní ,og lauk að þessu sinni með sigri Siglfirðinga, sem
hlutu 10.879 stig gegn 10.728, eða með 151 stigs mun.
Miðvikudagur 28. júní 1950.
Knattspyrnufélag Sigluf jarðar sigursælt
Fimm leikir á einni viku; |þrír sigrar, eitt jafntefli. og
eitt tap, — alls 15 mörk gegn 6.
Keppni iþessi var mjög jöfn
og skemmtiíleg, þrátt fyrir ó-
(haigstætt keppnisiveður ibáða
dagana, kalsaveður á föstudag
og rigningarsúld á laugardag.
TJrslit í einstökum greinum
urðu iþessi:
100 m. ldaup: sek.
1. Guðm. Hermannsson 1. 11,8
2. Garðar Arason S. 12,1
3. Sig. B. Jónsson I. 12,5
4. Jóhannes Egilsson S. 12,5
Hlaupið var á móti vindi.
1. 1139 st. S. 1075 st.
400 m. hlaup: sek.
1. Haukur Sigurðsson I. 56,7
2. Jóhannes Egiisson S. 57,1
3. Jón K. Sigurðsson í. 58,2
4. Hauikur Kristjánsson S. 58,2
ísfirðingarnir eru bræður og
hlupu mjög skemmtilega. 'Þeir
eru mörgum Siglfirðingum í
fersku minni frá skíðalands-
mótinu í vetur fyrir góða
frammistöðiU. Jóhannes og
Haukur Kristjáns (hlupu vel en
skorti úthaid, Eginlega var
þetta stórsigur fyrir Siglfirð-
inga vegna hinnar gífurlegu
framfarar, sem þar hefur á
orðið.
í. 1062 st. S. 1047 st.
1500 m. hlaup:
1. Haukur iSigurðsson' 1.
4 mín. 39,7 sek.
2. Jón K. Sigurðsson 1.
4 mín. 40,0 sek.
3. Haukur Kristjánsson S.
4 mán. 42,0 sek.
4. Sverrir iSigþórsson S.
4 mán. 45,8 sek.
Bræðumir leiddu hlaupið
mest allan tímann með góðri
keppni frá Hiauk, en Sverrir,
sem er aOveg nýr á þessari
grein, fylgdi fast á eftir.
1. 1096 st. S. 1033 st.
4x100 m. boðhlaup:
1. Sveit ísfirðinga 49,0 sek.
(Guðm. Hermannss., Hauk-
ur Sig., Jón K. Sig. og Si'g.
B. Jónsson).
2. Sveit Siglfirðinga 50,0 sek.
(Garðar, Skarphj., Jóhannes
og Bragi).
í. 546 st. S. 499 st.
Langstökk:
1. Garðar Arason S. 6,21 m.
2. Guðm. Arnason S. 6,20 m.
3. Sig. B. Jónsson 1. 6,10 m.
4. Guðm. Guðm.s. I. 5,68 m.
í. 1065 st. S. 1208 st.
Hástökk: m.
1. Albert K. Sanders í. 1,65
2. Guðm. Guðmundss. I. 1,60
3. Friðleifur Stefánss. S. 1,55
4. Jóhannes Egilsson S. 1,50
Albert er mjiög skemmtileg-
ur hástökkvari, fjaðurmagnað-
ur oig stekkur ieikandi létt. —
Hann reyndi við 1,70 m. en
felldi. Þó er auðséð að hann
á hægt með að stökkva yfir
1,75 m. við góðar aðstæður. —
Siglfirðingamir hafa báðir náð
betri árangri en þetta fyrr á
sumar. Óhætt er að kenna kuld
anum um, að ekki náðist betri
árangur 1 þessari grein.
í. 1179 st. S. 974 st.
Þristökk: m.
1. Friðleifur Stefánss. S. 13,14
2. Sigurður B. Jónsson 1. 12,60
3. Haraidur Sveinsson S. 12,46
4. Jón K. iSigurðsson 1. 12,01
Friðleifur er byrjandi, en
sigraði auðveldlega. Hann er
eitt glæsi'legasta iþróttamanna-
efni, sem við Siglfirðingar höf-
um eignast, — afreksmaður á
landsmiæJiikvarða aðeins 16 ára.
1. 1123 st. S. 1247 st.
Kúluvarp: m.
1. Bragi Friðriksson S. 14,03
2. Guðm. Hermannss. 1. 13,41
3. Ófeigur Eiríksson S. 12,02
4. Albert Ingibjartss. I. 11,79
I. 1158 st. S. 1242 st.
Kringlukast: m.
1. Bragi Friðriksson S. 40,69
2. Guðm. Hermannss. I. 37,25
3. Vigfús Guðbrandss. S. 31,93
4. Loftur Magnússon 1. 31,78
I. 1116 st. S. 1220 st.
Spjótkast: m.
1. Ófeigur Eiríksson S. 51,30
2. Albert Ingibjartss. í. 47,40
3. Helgi Hallsson S. 46,40
4. Jóhann Sámonarson I. 45,68
Ófeigur er einn af „nýliðun-
um“ á liði Sigtfirðinga, og e'kki
sá lakasti, eins og árangur hans
í fcúlu og spjóti ber með sér.
Með góðri þjálfun geta hann
og Helgi orðið Þingeyingum
skæðir keppinautar á haust.
1. 1050 st. S. 1134 st.
Eins og úrslitatölurnar bera
með sér, var fceppnin mjög
spennandi. Isfirðingar vom
stigahærri eftir fyrri daginn,
5695 stig gegn 5571, en þá var
fceppt í 100 m. hl., 1500 m. hl.,
hástökki, þrístöfciki og fcúlu-
varpi. — Seinni daginn var
keppt 1 4 x 100 m. iboðhlaupi,
langstökki, 400 m. hl., spjót-
kasti og kringlukasti. Þá jöfn-
uðu Siglfirðingar og dálítið
meir.
Keppnin fór yfirleitt vel fram
og þátttafcendur i góðu keppnis
skapi, þrátt fyrir leiðindaveður.
Það var 'líka annað en veðrið,
sem var nokkuð leiðinlegt, —
en það var tregða sumra áhorf
enda til að kaupa aðgöngumiða
að leikvanginum. Menn, sem
annars em reiðubúnir til að
fcaupa miða að Co’wiboy-mynd
á svantamarkaðsverði, reyndu
að gera sig ósýnilega þegar
iþeir vom inntir eftir aðgangs-
eyri að velilinum. Ef til vill em
Roy Rogers og Trigger frá
Hollyvood merfcilegri persónur
en áþróttamenn frá smábæjum
á Islandi, en þó held ég nú að
það sé ekki álit Siglfirðinga
almennt, heldur að hér sé um
leiðinlegan misskilning að ræð-a,
sem auðvelt sé að leiðrétta með
góðri samvinnu allra aðila.
ísfirðingarnir fcomu hingað
með Esju á fimmtudag en fóm
með flugvél heim á sunnudag.
I kveðjusamsæti sem I.B.S.
hélt Isfirðingunmn, færði Bragi
Magnússon form. I.B.S. Páli
Guðmundssyni, fararstjóra ás-
firziku íþróttamannanna, bifcar
að gjöf til I.B.I., og þakfcaði
þeim fcomuna. Páll þakkaði og
óskaði I.B.S. heilla.
Við þetta tækifæri vað ítrekað
boð I.B.I. um að K.S. sendi
knattspyrnuflokk til Isafjarð-
ar á sumar, til keppni þar.
Siglfirðingar þafcfca Isfirðing
um fyrir fcomuna, og skemmti-
lega og drengilega kepni.
Samningarnir við S.R.
(Framhald af 1. síðu).
fundaráskoranir Þróttar og
fleiri félaga hefur Alþýðusam-
bandsstjórnin elkkert látið á
sér fcræla á marga mánuði,
eða síðan verkalýðsráðstefnan
var haldin í vetur, efcki iátið
heyra frá sér eitt einasta orð
um, hvernig hún hugsaði sér
að framkvæma það hlutverk,
sem verkalýðsráðstefnan á vet-
ur fól henni, að „beita sér
fyrir nauðsynlegum gagnráð-
stöfunum, ef veruleg röskim
yrði á hlutfalli dýrtáðar og
launa í landinu“. Loks 23. þ.m.
barzt hingað hið fræga bréf
hennar, sem hún hefur sent
öilum verkalýðsfélögum i land-
inu. Ein grein þess er á þessa
leið:
„Þó telur sambandsstjóm
rétt, með tilliti til hagsmuna
verkamanna og sjómanna
sjálfra svo og síldarútvegsins,
að gerðir séu yfir síldveiðitím-
ann samningar fyrir vinnu við
síldarverksmiðjurnar og síldar-
verkmi hverrar tegundar sem
er og fyrir síldveiðamar, en þó
með fyrirvara um hækkxm
kaupgjalds, ef almenn grunn-
kaupshækkun verður, eða ef
fram koma óeðlilegar verð-
hækkanir á samningstímabilinu
sem ekki fást bættar fyrr en
eftir á, eða máske alls ekki.“
Mönnum er nú spurn, í til-
efni af þessari grein: Hvernig
hugsar sambandsstjórn sér, að
fram fari „almenn grunnkaups-
hækkun" eftir að öll helztu
verkalýðsfélögin norðanlands
eru búin að gera samninga
fyrir alla síldarvinnu, sem er
aðal atvinnan hér norðanlands
yfir sáldveiðitímabilið, og þegar
verkalýðs- og sjómannafélögin
um allt land eru búin að gera
samninga um fcjör meðlima
sinna, sem við síldveiðar og
síldverkun fást. Og hver á að
gefa úrskurð um, hvað séu
„óeðlilegar verðhækkanir", á
samningstímabilinu. — Skyldi
Helgi Hannesson & Co. ætla að
gera það ? Eða býst hann og fé-
lagar hans við, að ríkis&tjórn-
in geri það? Eða ætla þeir
verkalýðsfélögunum að gera
iþað, og fá atvinnurekendur til
að fallast á það?
I fyrradag var fundur í
Þrótti. Var bréf stjórnar ASl
Eins og fyrr hefur verið get-
ið hér í blaðinu, sigraði 3. fl.
úr K. S. jafnaldra sína frá
Ólafsfirði, sunnud. 18. júní. —
Nœstu helgi á eftir heimsóttu
þrír knattleiksflofckar K. S.; 3.
fl. úr Þór á Akureyri, 1. fl.
kvenna í handknattleik úr sama
félagi og 1. fl. knattspyrnu-
manna frá „Sameiningu“ Ólafs
firði. 3. fl. háði tvo leifci við Þór
hinn fyrri á laugardagskvöld á
leiðindaveðri. K.S. vann með
6:0, eftir mjög góðan leik K.S.
Seinni leikurinn fór fram á
sunnud. og laufc honum með
jafntefli 0:0, eftir góðan leiik
hjá Þór. K.S.-ingar virtust of
sigurvissir og vantaði ailan eld
móð. K.S.-stúlkurnar háðu einn
leik við stúlkumar úr Þór, á
simnud., og töpuðu 4:1.
Dálítið meiri samheldni og
stilling hefði getað breytt iþessu
tapi í sigur fyrir K.S., því K.S.-
og samningaumleitanirnar við
atvinnurekendur þar til um-
ræðu.Erindreki ASt, Jón Hjálm
arsson, mætti á fundinum og
reyndi að verja hin lúalegu
svifc Alþýðusambandsstjórnar-
innar, en tókst óhönduglega,
sem von var. M. a. fann Jón að
því, að verkal.fél. hefðu ekki
gefið stjóm A.S.Í. neinar bend-
ingar um, hvaða aðferðum
skyldi beitt á baráttunni gegn
afleiðingum gengislækfcxmar-
innar!! Höfðu menn hið mesta.
gaman af málflutningi Jóns. —
Samþykfcti fimdurinn tillögu
frá stjóm Þróttar í tilefni af
bréfinu, og er hún ibirt annars-
staðar hér í blaðinu.
Ennfremur var samþykkt sú
tillaga, er hér fer á eftir:
„Fundur haldiun í Þrótti
26/6 1950 lítur svo á, að með
tilliti til hiirnar ört vaxandi
dýrtáðar og þrátt fyrir það, að
stjóm A.S.Í. hvetur til samn-
inga ám tillits til kauphækk-
ana, haldi stjóm félagsins
áfram tilraunum til samninga
við S.R. og vinnuveitendur á
þeim grundvelli, sem þegar er
lagður með samþykkt frá fé-
lagsfundi þann 12. júní 1950“.
(Kröfur þær, sem samþ. var
að setja fram, eru ibirtar hér
að ofan í útdrættinum úr bréfi
Þróttar til SjR.).
Tillagan var samþyfckt með
öllum greiddum atkvæðum.
Heyrzt hefur, að stjóm SR.
sé væntanleg hingað innan
skamms. Munu samningaum-
leitanir þá að Kkindum halda
áfram, og mun stjórn Þróttar
hafa samráð við verkalýðsfé-
lögin á Raufarhöfn, Húsavík
og í Glerárþorpi, sem einnig
hafa lausa samninga við S.R.
Verður samningsuppkast, sem
gert kann að verða, milli deilu-
aðila, 'lagt fyrir fund í Þrótti
strax þegar það verður tibúið.
liðið hefur jafnvel betri ein-
staklingum á að skipa en Þór.
Fjórði leikur K.S. um síðustu
helgi var svo við 1. fl. úr „Sam
einingu" kl. 4 á- sunnudag. Hon
um lauk' með sigri K.S. 6:2.
Það er óhætt að kalla þetta
góða byrjun hjá K.S. í sumar,
og lofar góðu um haustið, en
þá iþarf K.S. að verja Norður-
landsmeistaratitilinn, — og
sigra.
U|m helgina ráðgera K.S.-ing
ar að senda knattspyrnuflokk
ti Isafjarðar I boði I.B.Í. —
Mjölnir óskar þeim góðrar og
sigursællar ferðar. Formaður
K.S. er Vigfús Guðbrandsson,
en þjiálfari félagsins er Hafst.
Guðmundsson.
HERMANN EINARSSON
(Framliald af 1. síðu).
Slíkt brautryðjandastarf er
aldrei fullþakkað af þeim sem
eftir lifa, og ég fuiyrði, að
ef siglfirzk a'Ilþýða hefði ekki
átt því láni að fagna að eiga
í byrjun eins ötulan og stétt-
vísan félaga og Hermann heit-
inn Einarsson, væru þau efcfci
það, sem þau eru á dag.
Jarðarför Hermanns Einars-
sonar fór fram s. 1. fimmtudag
að viðstöddu miklu ífjölmenni.
Fyrir l'ikfylgdinni var borinn
íslenzki fáninn og svo fáni
Verkamannafél. Þróttar. Með
því vildu Þróttar-félagar sína
hinum látna félaga og vini virð-
ingu sína og þakklæti fyrir
unnin störf. Bílstjórar báru
fcistuna að ikirkjudyrum, en
bæjarfulltrúar í kirkju; úr
kirkju bifreiðastjórar og stjórn
Þróttar bar hinn látna félaga
sinn frá kirkju í kirkjugarð.
Daginn, sem jarðarförin fór
fram var hið fegursta veður.
Þannig kvaddi Siglufjörður
einn af sínum beztu sonum, —
manninn, sem mestan hluta æfi
sinnar hafði lifað hér og starf-
að, og hafði unnið sér virðingu
og velvild allra samstarfsfélaga
sinna og annarra Siglfirðinga.
Eg vil svo að lokum senda
eftirlifandi konu hans, syni og
dóttur, svo og hinum aldraða
heiðursmanni, föður hans, Ein-
ari Hermannssyni, mánar inni-
legustu samúðarkveðjur, vegna
hinnar miklu sorgar sem þau
hafa orðið fyrir við fráfall
elskulegs ástvinar.
Blessuð sé minning þín, kæri
vinur og félagi.
Gunnar Jóliannsson
Gjalddagi
Mjölnis er 1. júli n.fc. Eru á-
skrifendur hans vinsamlega
beðnir að greiða gjaldið sem
allra fyrst í afgreiðslu blaðs-
ins, Suðurgötu 10.
Afgr. Mjölnis
Munið og segið öðrum írá: Ég sá það í Litlu-búðinni