Mjölnir


Mjölnir - 12.07.1950, Page 1

Mjölnir - 12.07.1950, Page 1
 20. tölublað Miðvikudagur 12. júlí 1950. 13. árgangur. Nýja sundlaugin tekin í notkun Laugin var vígð s. 1. sunnudag, en rekstur hennar mun hef jast i dag Sundlaugin vígð Sundlaug Siglufjarðar var opnuð s.l. sunnudag með vígslu athöfn, sem fór fram við laug- ina. Fluttu þar ræður Þórir Konráðsson form. íþróttamála- nefndar bæjarstjórnar, Jón Kjartansson bæjarstjóri og Þorsteinn Einarsson íþrótta- fultrúi, sem íkom hingað til að vera við opmm laugarinnar. Ennfremur söng karlakórinn Vísir. Því næst fór fram björg- unarsund. 19 ára piltur, Arnold Bjarnason, sem fyrir 11 árum vágði gömlu laugina með því að stinga sér '] hana, þá 7 ára gamaU, stakk sér til botns, en Helgi Sveinsson íþróttakennari kafaði eftir honrnn og synti ibjörgunarsund með hann til lands. Síðan fór fram boð- sundskeppni. Kepptu tvær 6 manna sveitir, og voru þeir Helgi Sveinsson og Bragi Magnússon fyrirliðar. Bar sveit Braga sigur úr býtum. Um kvöldið hélt bæjarstjóm verk- tökum, forastumönnum um íþróttamál, blaðamönnum o.fl. kaffiboð að Hótel Hvanneyri. Gamla sundlaugin Gamla sundlaugin, sem var „Viðreisnin" Fréttir af afleiðingum „viðreisnar" áhalds og Framsóknar, gengislækikun imii, hafa legið niðri hér í blaðinu nokkurn tíma, enda verið fremur strjálar undanfarnar vikur. Verð- hækkunum hefur verið frestað eftir getu fram yfir 1. júlí, en verðlag þann dag var lagt til grundvallar fyrir útreilkn- ingi vísitölu þeirrar, sem gilda skal fram til ára- móta, en ný skriða mun nú í þann veginn að renna af stað. Hér eru þrjár nýlegar verðhækkanir: Mjólk hefur hækkað um 10 aura líterinn. Kaffibætir hefur hækk- að úr kr. 7,20 kr. 9,00 pr. kg. Bækkunin er kr. 1,80. Harðfiskur, barinn og palkíkaður, hefur hækkað um kr. 2,40 pr. kg.; úr kr. 14,60 í kr. 17,00, og ópakkaður harðifiskur um kr. 2,10 pr. kg., úr kr. 13,70 í kr. 15,80. hituð með kælivatni frá olíu- rafstöðinni í Hvanneyrarhlíð, var viígð í.júní 1939. Var hún síðan í notkun á hverju sumri fram til hausts 1944, og stutt- an tíma næsta vor, meðan við- gerð fór fram við Skeiðsfoss, en gamla stöðin var rekin á meðan. Þegar samfelldur rekstur Skeiðsfossrafveitunnar hófst og gamla rafstöðin var lögð niður að mestu leyli, var úr sögunni Sá grundvöllur, sem verið hafði fyrir rekstri gömlu laugarinn- ar, eins og hún var úr garði gerð, og hófu þá áhugamenn áróður fyrir því að komið yrði upp nýrri sundlaug, eða sú gamla endurbætt svo að hún yrði reksturshæf. 1 gömlu laug ina vantaði upphitun, böð og íklefar voru ónýtir, og vantaði í rauninni allt nema þróna, sem þar að auki var allt of djúp. Bygging nýju sundlaugarinnar. Horfið var að því ráði að nota gömlu þróna og byggja nauðsynleg mannvirki við hana. Gékk fyrst lengi í þófi með að !fá teikningu af laug- inni, en hún fékkst þó að loík- um fyrir milligöngu Þorsteins Einarssonar áþróttafulltrúa, og komst þá fyrst skriður á málið, Fyrsta teikningin, sem send var að sunnan, reyndist þó ónot- hæf, að dómi íþróttamálanefnd ar bæjarins. Gerði þá Einar Kvaran verkfræðingur nýja teikningu, eftir tillögu eins nefndarmanns og var hún síð- an send húsameistara sem til- löguuppdráttur. Var hún tekin til greina og samþykkt með litlum breytingum. Hófust fram kvæmdir við ibygginguna um mánaðamótin júlí-ágúst 1948. Tók Sveinn & Gísli h/f. bygg- inguna að sér, og hafa séð um allan útgröft, uppslátt, steypu og mikið af innréttingum. Um úppsetningar miðstöðvar- og hreinlætistækja sá Egill Stef- ánsson, en Snorri Stefánsson um uppsetningu hreinsunar- og hitimartækja fyrir laugarvatn- ið; Jóh. Jóhannesson um raf- lagnir og Erl. Stefáns og Baldur SÍLDVEIÐIN Stormbræla er enn á mið- og vestursvæðinu en þoka fyr- ir austan. Nokkrir bátar köst- uðu á Þistilfirði í gærkvöldi og í morgun, en árangur mun hafa orðið fremur lítiU. Tvö skip fcinar Hálfdáns og Haukur I. mimu þó hafa fengið 200 máL Ólafsson um múrverk. Innrétt- ingar sm'iðuðu, auk Sveinn & Gísli h/f., þeir Páll Jónsson, Bjarni Þorsteinsson og Friðrik Sigtryggsson. Stærð og fyrirkomulag. Laugarþróin er 25x10 metr., mesta dýpi um 2,80 m., vatns- magn 300 teningsmetrar. Var þróin grynnkuð allmikið frá því sem var í gömlu lauginni, en vatnsmagn hennar var um 540 teningsm. Rúmgóðar stéttir eru umhverfis alla laugina og upp- hækkað áhorfendasvæði að norðanverðu. Búningsherbergi eru með „básum.“ Rúmast 44 í einu í búningsherbergi kvenna en 53 í búningsherbergi karla. Inn af búningsherbergjunum hvorum megin eru böð og þurrk klefar, ennfremur salerni og snyrtiherbergi. Eru 6 böð fyrir (Framhald á 4. síðu). Söltunarverkfall hefst 19. þ. m., hafi ekki náðst samningar milli Brynju og saltenda fyrir þann tíma Verkakvennafélagið Brynja hefur undanfarið staðið í .samn ingum við vinnuveitendafélag Siglufjarðar um kaup og kjör meðlima sinna. Ekki hefur náðst .samkomulag, og hefur Brynja nú boðað verkfall kl. 6 síðdegis liinn 19. þ.m. hjá þeim atvinnurekendum, sem ékki hafa gert samning við félagið fyrir þann tíma. Það sem deilan stendur imi er aðallega eða eingöngu tvennt, kauptaxti fyrir vinnu í hraðfrystihúsum og vikufé siglfirzkra síldarstúlkna, er samsvari nokkru af þeim hlunn indum .sem aðkomustúlkur hafa fram yfir þær. .. Um hraðfry.stihústaxtann er það að segja, að hann hefur undanfarin ár verið miklu lægri en taxti fyrir almenna vinnu. Mim þetta vera einsdæmi á öllu landinu, að lægra kaup sé greitt fyrir hina erfiðu og vos- sömu frystihúsvinnu en al- menna vinnu. Vilja Brynjukon- ur því, að sértaxtinm fyrir ís- húsvinnuna falli niður, og og almenni taxitinn verði greiddur fyrir liana. Rétt er að taka fram, að andstaðan gegn þessari leiðrétt- Seyðfirðingar beðnir að hjálpa Marshall-„hjálpinni“ Þau tíðindi gerðust á Seyðis firði mánudaginn 3. þ. m. að fram var borin á bæjarstjórnar fundi beiðni frá væntanlegum útgerðarstjóra Hærings, Garð- ari Þorsteinssyni, ríkisstjóm- inni og bæjarstjórn Reykja- víkur, um að gefa hinu aldna skipi eftir hafnargjöld og vatns skatt — ef hann kynni að verða gerður út „í tilrauna- ékyni“(!) á Seyðisfirði í sum- ar. Minnsta bæjarfélag landsins er nú kinroðaalust beðið um „hjálp“ til að hjálpa „Mars- hall-hjálpinni“ miklu, hinni „fljótandi síldarverksmiðju,“ ryðkláfnum Hæringi. Seyðfirðingar hafa látið sér fátt um finnast þessa ibeiðni aðstandenda Hærings. Margir eru þeir sem henda gaman að henni, en flestum þykir iotið lágt að biðja nú minnsta bæjar félag landsins að gefa þessu fræga skipi eftir tilskilin gjöld þá loks að það á að fara að verða arðbært eftir að hafa legið tvö ár í Reýkjavíkurhöfn ■ sem eitt af furðuverkum nú- tímans. Bæjarstjómarmeirihlutinn á Seyðisfirði, þessi venjulegi, þ. e.a.s. íhaldið og fwamsókn sam þykktu að verða við þessari ibeiðni aðstandenda Hærings. — Hinsvegar var þetta meira en einn óhaldsmaðurinn gat fengið af sér að gera og greiddi atkv. á móti því, en einn úr hinni föstu björgunarsveit sem ætíð er viðbúin að bjarga aifturhalds fylkingunni, brá við og greiddi atkvæði með „hjálpinni” við 'Hæring. — Forustmnenn Al- þýðufl. eru alltaf þjónustu reiðubúnir. Olympíudagurinn á Siglufirði 15. og 16. júlí n. k. verða f j áröflunardagar fyrir Olym- píunefnd íslands um land allt. Jafnframt því verður f jölbreytt frjálsíþróttakeppni á hverjum stað. Hér á Siglufirði fer fram frjáls'iþróttakeppni þessa fyrr- nefndu daga, og má búast við að keppnin verði I senn fjöl- breytt og skemmtileg, því bú- ist er við góðri þátttöku, m.a. frá utanbæjarmönnum, sem hér eru í atvinnuleit. F.IjS. og K.S. sjá irm keppn- ina í samráði við I.B.S. Merki Olympíunefndarinnar verða seld á götunum við þessi tækifæri og rennur ágóðinn af sölunni ,í sjóð sem varið verður til að standa straum af þátt- tökukostnaði íslendinga í Olym píuleikjunum 1952. Vonandi leggja Siglfirðingar sinn góða skerf, eins og venju- lega, til þessa góða málefnis, með því að kaupa mikið af Olympíumerkjum um næstu helgi. ingu mun ekki vera frá at- vinnurekendum yfirleitt, held- ur aðeins eimim manni, for- manni Vinnuveitendafélagsins. Um hitt atriðið er það að segja, að Brynja hefur áður samið um það við atvinnurek- endur, að aðkomustúlkur hafi auk ókeypis ferða og húsnæðis, frían hita og ljós. Hafa að- komustúlkurnar þessi hlunn- indi fram yfir siglfirzkar stúlk ur. Nú fer Brynja fram á, að siglfirzkar stúlkur fái aukreit- is nokkrar krónur á viku yfir tryggingartímann, sem endur- gjald fyrir þann aukakosnað, sem það kostar heimilin, er þær þurfa að fara í vinnu hvernig sem á stendur og fyrirvara- laust. Af undirtektum Vinnuveit- endafél. undir þetta virðist mega ráða, að það þyki liag- stæðara að ráða hingað að- komustúlkur, greiða ferðakosn- að þeirra, ljós, hita og húsnæði fyrir þær yfir söltunartímann, en að greiða siglf. stúlkum smávægileg hlunnindi, eða sem svarar því sem þær þurfa að greiða aukreitis í Ijós, hita og þ. h. vegna liinnar óreglulegu vinnu. Er þetta skoðun síldarsalt- enda yfirleitt?. Margur mim ef- ast um það. Það er meira að segja réttmætt að efast um að Vinnuveitendafélagið geti talist fullgildur samning.saðili fyrir alla síldarsaltendur hér, þar sem aðeins helmingur saltend- anna eða ekki það mim vera í því, og fundur í því hefir ekki verið lialdinn í tvö eða þrjú ár fyrr en nú. Hitt mun vera nær sanni, að andstaðan gegn hin- um sanngjörnu leiðréttingum, sem Brynja fer fram á, sé að- eins „prinsip“ mál eins eða tveggja manna í stjórn þess. SAMSÆRI Flestir hafa gaman af reyf- arasögiun um samsæri gegn höfðingjum og aðalsmönnum, en vita þó að um skáldskap er að ræða. Nýlega er komin út bók, sem er eins spennandi og skemmtileg og reyfarasögurn- ar. Hún fjallar um samsæri gegn alþýðuveldi Rússlands og enginn þarf að efast mn sann- leiksgildi hennar, þv| með henni fylgir ítarleg skrá um heimild- arrit þau, sem höfundar henn- ♦ ar hafa lagt til grundvallar við samningu hennar. Bókin er 560 hls. og kostar kr. 50,00 í bandi en kr. 35,00 óbundin. Bók þessa þurfa allir að lesa til þess að geta skilið orsaJkir „kalda stríðsins“. Bókin fæst í Suðurgötu 10. Athygli skal vakin á því, að gefnu tilefni, að hækkun sú er orðið hefur á auglýsingataxta Siglufjarðarblaðanna, er gerð með leyfi verðlagsstjóra.

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.