Mjölnir


Mjölnir - 12.07.1950, Blaðsíða 2

Mjölnir - 12.07.1950, Blaðsíða 2
( I ’ MJÖLNIR — VIKUBLAÐ — Útgfífandi: SÓSÍALISTAFÉLAG SíGLUFJARÐAR Ritstjóii og ábyrgðarmaður: Benedikt Sigurðsson Blaðið kemur út alla miðvikudaga Askriítargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla Suðurgötu 10. Simar 194 og 210 Siglufjarðarprentsmiðja h/f. LÆRUM AF REYNSLUNNI Vinnudeila Þróttar við iSÍR, va,r margra hluta vegna mjög athyglisverð. Reynsla verkamanna í þessari deilu, getur verið mjög gagnleg síðar, ef hún er notfærð á réttan hátt. Aðalkrafa venkamanna 1 deilunni var, að næturvinnukaup yrði greitt yfir sumarið fyrir næturvinnu, en undanfarin ár hef- ur næturvinnukaup aðeins verið greitt fyrir næturv. yfir veturinn. .Víðast hvar á landinu er næturvinnukaup greitt allt árið, en hinsvegar fá siglfirzkir verkamenn eftirvinnukaup greitt með 60% álagi á dagvinnu í stað þess að annarstaðár er eftirvinnu- kaupið 50% álagi á dagvinnu. Er iþað nú svo, að þessi íkrafa siglfirzkra verkamanna um næturvinnukaup fyrir næturvinnu, sé svo fjarri allri sanngimi, að það hefði réttlætt að stöðva ríkisverksmiðjurnar, frekar en gænga að henni? En það ætlaði meirihluti stjórnar rikisverk- smiðjanna að gera. Hver sanngjam og óhlutdrægur maður hlýtur að viðurkenna, að þessi krafa verikamanna er ekki ósvífin frekja, heldur hreint og beint ofur eðlileg og sjálfsögð. Enda mun þessi krafa verkamanna verða viðurkennd fyrr eða síðar, allt eftir því hve vel verkamenn fylgja málinu fram. Þáttur Aiþýðusambandsstjórnarinnar í deilunni er saga út af fyrir sig. Meðan á samningamnleitunum stendur heldur sam- bandsstjórn fund um deiluna. Engin samráð em höfð við for- ustu Þróttar, en gerð samþykkt rnn, að leggja til að samningar verði framlengdir. Áður en Þróttur heyrir noikkuð um málið frá sambandsstjóm, segir framkvæmdarstjóri ríkisverksmiðjanna formanni Þróttar frá samþykktum stjórnar ALþýðusambandsins. Ekki væri að furða þó menn spyrðu: Hvernig stendur á að Sveini Benediktssyni eru tilkynntar samþykktir Alþýðusambandsstjórn- ar um vinnudeilu á Siglufirði, áður en Gunnari Jóhannssyni er nokkuð af þeim sagt? Eða var Sveinn Benediktsson með í ráðum hjá sambandsstjórn? Þetta er stórvægilegt mál í vinnudeilunni og kastar skýrara 'ljósi á afstöðu og gerðir sambandsstjórnar ,en flest annað. Sam- þykktin sjálf, — tilmæli til Þróttar um að framlengja samninga, — gerir Þrótti mjög mikið erfiðara fyrir, en styrkir afstöðu atvinnurekenda. Það er svo augijóst mál að varla verður um deilt. Ætti að lýsa þessari deilu með örfáum orðum, myn'di það verða á þessa leið: Verkamenn á Siglufirði fóru fram á mjög hóflega og sanngjama lagfæringu á taxta sínum, þar sem aðal- kratfan var að þeim yrði greitt næturvinnukaup eftir sömu reglum og tíðkast víðast hvar á landinu. Alþýðusambandsstjórn studdi Þrótt ekki í deilunni, eins og henni bar skylda til, heldur gékk í lið með atvinnurekendum. Meirihluti stjómar SR sýndi óbil- gimi í deilunni, neitaði hinni sanngjörnu kröfu og ætlaði, eftir að hafa tryggt sér stuðning stjórnar A.S.I., að hleypa deilunni í verkfall og stöðva ríkisverksmiðjumar, kannske fram á sumar. iVerkamenn féllu þá frá aðalkröfunni og sömdu um nokkrar smávægilegar umbœtur á taxta sínum. Meðan á deilunni stóð, flutti Þóroddur Guðmundsson tillögu í veriksmiðjustjórn, um að gengið yrði að næturvinnuikröfunni. Sú tillaga var felld með 3 atkv. gegn einu, en Finnur Jónsson greiddi ekki atkvæði. Sjálfsagt hafa margir verkamenn hér 1 bæ búizt við að fulltrúi Alþýðuflokksins myndi í slíku máli hafa allt önnur sjónarmið en íhaldið, myndi hafa sýipað eða sama sjónarmið og verkamenn/ en Finnur gat ekki samþykkt að verka- menn fengju næturvinnukaup fyrir næturvinnu. Fyrir þessa af- stöðu vex Fínnur og flokkur hans á áliti hjá 'íhaldi og afturhaldi, en hvort álitið og tiltrúin vexl hjá verkamönnum á reynslan eftir að sýna. Jón Hjálmarsson, erindreki A.S.Í. mætti á einum Þróttar- fundi meðan á deilunni stóð. Þó Jón þessi sé frámimalega klaufa- tegur og lélegur ræðumaður, var samt glöggt hvað hann vildi. Má um hann segja í starfinu, að hann sé réttur maður á réttum stað, að vera erindreki tmdir stjórn Helga Hannessonar. Hin nýafstaðna deila Þróttar endaði með smávægilegum kjarabótum. En dýrtíðin véx og kjör alþýðunnar versna. Að þvá er marikvisst stefnt, að láta hina r'íku halda áfram að græða, en kreppa og markaðsvandræði lenda á alþýðunni einni. Verði haldið áfram á sömu braut, endar það með meiri fátækt og eymd alþýðrmni til handa en dæmi eru til síðasta mannsaldur. Þessu er 'þó öllu hægt að snúa við, aðeins ef alþýðan sjálf áttar sig í Wma á hve sterk hún er og hvaða ráðum þarf að beita. Það rposturmn ★ Sjötugsafmæli. — Björg Þor bergsdóttir, Snorrabraut 3, átti sjötugsafmœli hinn 1. júlí s. 1. ★ 'Slysfarir. — Miðvikudaginn 5. júl'i s. I. lézt í Landspítalan- um Steingnímur Benediktsson, fyrrum starfsmaður hjá Kaup- félagi Siglfirðinga. Var hann fluttur til Reykjavíkur fyrir nokkru. Hann varð fyrir ibif- reið og slasaðist mikið og lézt skömmu síðar. Steingr. heitinn var í iblóma lífsins er hann lézt á svo sviplegan hátt. Axel Sveinsson, verkamaður hér í bæ lézt s.'1. laugardags- kvöld. Var hann einn á heimili sínu og er talið lílklagt að hann muni hafa hrasað í stiga, því þannig var hann er að var kom ið og var látinn. Axel heitinn var á bezta aldri. ★ Sundlaugiii'. — Á öðrum stað í blaðinu er sagt frá vigslu sundlaugarinnar sem fram fór s. 1. sunnudag. Það gleður auð- vitað alla að laugin skuli vera tekin til starfa, en hitt er einn- ig hryggðarefni, að ekki skuli hægt að ljúka við hana tii fulls. En eins og nú standa salkir er þess enginn kostur, og óvlst um hvenær það verður hægt, en vonandi verður það á næstu árum. Það er auðvitað allra von, sem menningu Siglufjarðar unna, að rekstur sundlaugar- innar igangi vel og verði til sóma. En til þess að svo megi verða, þarf að takast gott og skilningsríkt samstarf með starfsfólki sundlaugarinnar og sundgestum. Eins og er, er starfsfólkið það fæsta, sem hægt er að komast af með og má þó búast við að reynslan skeri fljótlega úr um að það sé 'ekki nóg. Það véltur iþyí mikið á sund- gestum, hvort Iþessi starfsfólks fjöldi dugar eða hvort bæta þarf við. Það gefur að skilja, að eitt þýðingarmesta atriðið I því er umgengni gestanna. —- Góð umgengni, hjálpsemi við starfsfólkið og hlýðni við allar settar reglur hlýtur að létta starfsfólkinu störfin og auka þann menníngarbrag, sepa þarna á ávalt að r'ikja. ★ Hvanneyrarbrautin.— Þegar farið er út að sundlaug, 'liggur leiðin um Hvanneyrarbrautina. 1 skemmstu máli má segja, að ekki sé vanzalaust fyrir bæjar- stjórn og ibæjarbúa yfirleitt, hvernig hún lítur út og er yfir- ferðar. Það hefur að vísu fyrir nokkrum dögum verið sléttað örlítið úr stærstu hæðunum og borinn salli yfir á litlu svæði. En þetta verkar aðeins til þess að draga athyglina að hinum ömurlegri blettum þessarar hálflögðu götu. Eflaust verður mikill straum ur fólks þarna út eftir i sumar óg þá ékki sízt aðkomufólk, fierðafólk, sem fer til að sikoða mannvirkið og fá sér bað. — Og ekkert er líklegra en það haldi svolátið úteftir til að skoða sig um. Fyrir utan sund- laugina er risið upp nýtt hverfi að mestu leyti, verikamannabú- staðir og einbýlishús. Hvernig er nú umhorfs iþarna, hvernig lítur Hvanneyrarbrautin út fyr ir utan sundlaug? Ekki verður því lýst hér, en bæjarbúar ættu að ganga Iþangað og sjá með eigin augum hvernig skilið hef- ur verið við götiílagninguna þar, og reyna að hugsa sér þá aðstöðu, sem ábúarnir t. d. i verkamannabústöðunum eiga við að búa. Og það er vissulega iekki vanzalaust fyrir 'bæjar- stjórn að láta þetta ástand vara ár eftir ár án nokkurra aðgerða. ★ „Stjörnu-kabarettinn“ var hér á ferð um helgina, hafði hér Ikvöldskemmtun og dans,- leik. Með þessum skemmtihóp var hljómsveit Kristjáns Kristj ánssonar — K.K.-sextettinn. — Hópur þessi er á ferð um land- ið og heldur skemmtanir í kaup stöðum og stærri kauptúnum. ★ K.S.-dagurinn var s.l. sunnu dag. Er hann fjáröflunardagur Knattspymufél. Siglufjarðar og þá efna K.S.-ingar til margs- konar íþróttakeppni. Á velliin- um s. 1. sunnudag fór fram hlaup í ýmsum lengdum, eggja hlaup, naglaboðhlaup, hand- 'knattleikur stúlkna, knatt- spyma o.fl. Merki K.S-dagsins voru seld allan daginn, og giltu þau sem happdrættismiði: Flug ferð til Akureyrar og heim. — Dregið var um vinninginn á sunnudagskvöld og upp kom nr. 473. Vinningsins slkal vitjað til Vigfúsar Guðbrandssonar, Eyrargötu 26. ★ Skipsströnd. — Eftir miðja s. 1. viku gerði mjög svarta Iþoku hér um slóðir. Strönduðu þá tvö vélskip hér við f jörðinn. Andvari frá Reykjavík var á leið inn með 500 mál siíldar er hann strandaði. 'Náðist hann út litið skemmdur, var tökinn hér upp i slippinn og gert við skemmdirnar. Var þvl iokið á laugardagskvöld. tUm svipað leyti pg Andvari strandaði var m/s. Milly á leið frá Ólafsfirði. Strandaði hún hér út með firð 'inum en náðist út aftur. Er hún núna í slippnum hér og er talsvert skcdduð. Varðskipið Sæbjörg hjálpaði báðum þess- um skipum á flot og fylgdi þeim hingað inn. Undanfarna daga hefur verið 'blæla á miðunum hér norðan- lands. ★ Sólskin og ryk. — Vikan er leið var sólrík og heit, líklega hlýjasta vika sumarsins.Ogeins og venjulega á slíkum dögmn hér í bæ, eru göturnar skræl- þurrar og þykkt lag af ryki á þeim. Við minnsta andblæ og umferð þyrlast rykið upp i loft ið og allt verður mettað af hinu fina ryki; það smýgur gegnum klæðnað fólks, fyllir vit þess og hvergi má hafa opna glugga svo ekki setjist þykkt ryklag á adlt sem inni er. Þessa daga, sem sólin skein á skýlausum himni og brauzt gegnum ryki- mettað loftið, brutu margir Siglfirðingar heilann um hvað orðið myndi af vatnstankanum sem i fyrra var oft notaður til að væta göturnar með á slikum dögum, sem þessum. Og af því menn eru nú ekki alltaf sem röggsamastir um að fá lausn á heilabrotum sínum, þá leit- uðu þeir ekkert að vatnstank- anum, en töldu víst að værð iþeirra bæjarstarfsmanna, sem um þetta áttu að sjá, væri svo mikil I sólskininu og blíðunni, að þeir hefðu alveg gleymt þessu þarfa tæki. En á föstu- dag ibrá svo við, að vatnsbíll sást á ferð um göturnar stutta stund. En svo var sá draumur búinn. Og fólk hefur mátt hrær ast i þessmn rykmekki síðan og ef himnaföðurnum hefði ekki þóknast að bæta svolítið úr þessu böli tvo síðustu dag- ana væri ástandið sjálfsagt eins. Þetta með vatnstankann og gleymskuna á að nota hann í þurríkunum, er talsvert alvar- legt mál. Það þykir sjálfsagt að göturæsi séu þannig i lagi, að vegfarendur vaði ekki djúpa læki á götunum og vatnið beri burt ofaniíburðinn. 'Eins ætti að vera sjálfsagt að vegfarendur þurfi ekki að vaða gegn imi þýkka rykmekki og fylla vit sín af þeim qþverra. Og vissu- lega berst mikið af ofaníburði burt einmitt með golunni, sem iþyrlar upp rykinu af götunum. Vatnsbíllinn þarf að vera í gangi nokkuð stöðugt þegar göt urnar eru orðnar þurrar. Þess er brýn þörf og liggja margar ástæður til þess. Afgreiðslutími á bæjarskrifstofunni verður frá og með 15. þ. m. eins og liér segir: Alla virka daga, nema laugardaga frá kl. 1 e.h. til kl. 6 síðd., á laugardögum frá kl. 10—12 f. h. Viðtalstími undirritaðs er alla mánudaga, miðvikudaga og föstudag n. k.) frá kl. 4—6 síðd. á skrifstofu verkamannafél. Bæjarstjórinn I Siglufirði 10. júlí 1950. JÓN KJARTANSSON Auglýsing Skrásetning atvinnulausra unglinga í Siglufirði á aldrinum 14—16 ára fer fram dagana 13. og 14. þ. m. (fimmtudag og föstudag n. k.) frá kl. 4—6 síld. á skrifstofu verkamannafél. Þróttar. Siglufirði, 10. júlí 1950. BÆJARSTJÓRI getur orðið hörð barátta, en hjá henni verður ekki komizt, ef bægja á £rá dyrum fátæktinni og eymdinni, sem nú er á næsta leiti. Lærum af fenginni reynslu, forðiunst ala fordóma, treyst- um samheldninni og hinni stéttarlegu einingu. ÚTBREIÐIÐ Mjölnir — Þjóðviljann — Verkamanninn

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.