Mjölnir


Mjölnir - 12.07.1950, Qupperneq 3

Mjölnir - 12.07.1950, Qupperneq 3
MJÖLNIB 8 Malakkaskagi í báli Vestrænt lýðræði handa Austurlandabúum Hinn 4. ma, 1949 var for- maður Alþýðusambands Mal- akkaskaga, Ganapathy, hengd- ur í Kuala Lumpur að skipan brezku yfirvaldanna á skagan- um. Bretarnir staðhæfðu, að hann he;fði leynt skammbyssu með sex skotum í íbúð sinni, en lögðu ekki fram neinar sannin- ir fyrir -þeirri fullyrðingu. — Alþýðusamband Malakkaskaga sem yfirvöld brezka verkalýðs- foringjans Bevins sviptu þann- ig foringja, var meðlimur í Al- þjóðasambandi verkalýðsins, er ibrezka Alþýðusambandið var einnig meðlimur í þá. Ganapathy hafði tekið við 1 stjórn Alþýðusambandsins eftir dauða Liu Ah Liang, sem brezka lögreglan hafði kvalið til bana í fangelsi. Samskonar örlög hlaut eftirmaður Gana- pathys, Vira Senan. Þrem dög- um eftir að hann var kcsinn formaður Alþýðusambandsins skutu brezkir lögreglumenn hann til bana á götu. Sl'ikar eru aðferðir Attlees og Bevins við að útbreiða þekik ingu á „yfirburðurn hins vest- ræna lýðræðis“ í Austur1 ond- um. ' / Brezku yfirvöídin stæra sig af ofsóknum gegn verkalýðnum. Auk þessara þriggjia manna ber að minnast þeirra þúsunda skipulagsbundinna verkamanna sem lögregla Bevins handtók þegar í júlí 1948. Þessir fangar hafa ýmist verið myrtir á „lög- legan“ hátt eða í fangabúðun- um. Brezku yfirvöldin á skag- anurn stærðu sig af þvi í fyrra, að þau hefðu tekið meira en 100 þúsund malakkiska lýðræð- issinna til fanga fyrir árslok 1948. Þar við bætast 40.000 kín verskir flóttamenn, sem Bretar hröktu úr landi og afhentu Ku- omintang-stjórninni meðan hún réði í Suður-Kína. Þessir flótta menn voru allir myrtir fyrir þá sök eina að vera félagsbundnir í stéttarsamtökum. Skef jalaus kúgun Malakkaskagi er sígilt dæmi um nýlendu, sem er stjórnað með það eitt að markmiði að auka auð yfirþjóðarinnar. Eftir 80 ára yfirráð Breta í landinu eru 80 hundraðshlutar af yfir- borði þess þáktir frumskógi og fenjum. Ræktun fimmtungs þess hefur kostað óteljandi mannslíf — ekki Breta, heldur innborinna manna. Hið frjó- sama land framleiðir aðeins þriðjung þess korns, sem íbú- arnir þurfa sér tU viðurværis. [Meirihluti hins ræiktaða lands er sem sé gúmmíekrur, sem Bretar hafa komið upp með ódýru vinnuafli íbúa skagans, og Malakkaskagi er mesta gúmm'íland heimsins. Tini breytt í gull. Á Malakkaskaga eru líka geysiauðugar tinnámur. Bæði tin- og gúmmíframleiðslan er algerlega í höndum brezkra ein okunarhringa, sem allt fram að heimsstyrjöldinni síðari réðu verðlaginu á gúmmí og tini á heimsmarkaðnum. Árið 1924, þegar brezki Verkamannaflokik urinn var enn 1 andstöðu við 'ihaldið, gaf hann út bækling, sem sýndi, að kostnaðurinn við framleiðslu einnar smálestar af tini var aðeins 46 sterlings- pund, en verðlagið var þá 143 eftir ALIAN HUANG pund. Gróði hringanna af hverri smálest af tini, sem ábúar Malakikaskaga voru neyddir til að vinna úr jörðu við ólýsanlega aum kjör, nam þannig hvorki meira né minna en 97 sterlingspundum. Nú er öldin önnur. Nú er verðið á tini og gúmmíi ekki lengur ákveðið í London, held- ur í 'New York. Hinir amerisku kaupendur nota sér dollaraþörf Breta til þess að þrýsta verðinu á þessiun vörum eins langt nið- ur og þeim er framast unnt. Bretar reyna aftur að hefna þess á Malakkaskaga sem þeir tapa í New York og leitast við að skerða lífskjör malakkiskra verkamanna enn meira, til þess að viðhalda hinum mikla gróða s'inum. I viðleitni sinni við að auka arðránið á Malakkaskaga njóta þeir dyggilegrar aðstoð- ar brezkra „verkalýðsforingja“ sem ásamt afturhaldsþjónunum í bandarísku verkalýðssambönd unum CIO og AFL klufu Al- þjóðasamb. verkalýðsins með Iþað höfuðmarkmið fyrir aug- um að gera alþjóðlega stéttar- aðstoð til handa þrælunum í nýlendunum, sem berjast fyrir frnmstæðustu lífsþörfum, erfið ari en áður, eða alveg ófram- kvæmanlega. Styzta sjóferðin til Kína. En Malakkaskagi er brezku heimsvaldasinnunum ekki ein- ungis mikilsverð hráefnaupp- spretta. Skaginn og hin mikla hafnarborg Singapore við suð- urodda hans og sunnanvert Kyrrahaf, hefur geysimikla viðskiptalega og hernaðarlega þýðingu. Styzta sjó- og loft- leiðin frá London til Kína, þar sem brezku heimsvaldasinnarn- ir hafa fram að þessu haft mikilla hagsmuna að gæta, ligg ur um skagann og sunnan við hann. Malakkaskagi er frá sjónarmiði þeirra einn þýðing- armesti staður hnattarins, og þess vegna svífast þeir og hinir sósialdemókratísku þjónar þeirra engra ráða í baráttunni fyrir hernaðarlegum og póli- tískum yfirráðum sinum þar. Öflug sjálfstæðishreyfing. Verlkalýðssamtökin á Malakka sikaga hafa þroskað íbúana, sjö milljónir manna, Malaja, Hin- dúa og Kínverja, til stéttarmeð vitundar og einingar, sem teng ir í eina heild fólk af ólíkum trúflokkum og óskyldum kyn- þáttum. Þetta fólk berst nú sameiginlegri baráttu gegn sameiginlegum óvini, útlendu heimsvaldastefnunni, og fyrir frelsi og sjálfstæði lands s’ins. Þessi hetjulega barátta hófst árið 1942. Þegar brezki herinn í nýlendunni gaifst upp fyrir Japönum nærri mótspyrnulaust — ikomu malakkiskir bændur og verkamenn, undir forustu kommúnista, á fót andjapanska frelsishernum, sem galt Japön- um geysilegt afhroð í þriggja ára skæruhernaði gegn þeim. Eftir ósigur Japana 1945 álitu brezku stórveldissinnarnir að þeir gætu tekið upp á ný sínar fyrri aðferðir og ráðið algerlega lögum og lofum á Malakkaskaga eins og þeir höfðu áður gert. Þegar „verka- lýðsstjórn" Attlees, að loknum vanlegum undirbúningi, hóf styrjöidina 1948, trúði hún statt og stöðugt á auðunninn sigur. Hún hafði komið á fót 60 þús. manna nýtízku her, búnum fallbyssum, skriðdrek- um og flugvélum. IJti fyrir ströndum landsins voru her- sikip á sveimi. Árásin var hafin á nazistavísu, styndilega og án stríðsyfiOýsingar. Kommúnista flokkurinn, verkalýðssamtökin og önnur fjöldasamtök voru lýst ólögleg, eignir þeirra gerð ar upptækar, meira en hundrað þúsund af virkustu meðlimum þeirra myrtir og herlög sett um allt landið. Ætlun Bevins var sú að ger- eyða lýðræðishreyfingunni með einu einasta höggi. Honum skjátlaðist. Hann reiknaði allt dæmið í fallbyssum og morð- tólum ,en gleymdi fólkinu. — Aðeins sjö dögum eftir hið mikla högg, sem átti að kveða alla mótsyrnu niður, var skor- in upp herör í öllum borgum og þorpurn landsins. Með sér- stöku ávarpi, sem dreift var út, voru íbúarnir hvattir til þátt- töku í frelsisbaráttunni. Sér- stökum aðalstöðvum fyrir frelsishreyfinguna var komið upp. Eftir örstuttan tima voru sjálfboðaliðar teknir að streyma til skæruliðadeildanna, sem dreifðar voru um allt land ið. Síðan þetta gerðist hefur hin hlryilliilegasta styrjöld geysað á Malakkaskaga. Hið „sósíal- istiska“ Bretland hefur þar nú vel búinn 120 þúsund imanna her, og hefur au'k þess sótt sótt mannætur frá Borneó með flugvélum. Mannætur þessar eða hausaveiðimenn, sem svo eru nefndir, eru síðan sendir eins og veiðihundar inn á hin ógreiðfærari og afskekktari svæði landsins til launmorða. Þessi mikli og voldugi her brezku mannvinanna virðist þó ekki ætía að duga. Á ráðstefnu, sem Bevin sat nýlega á Colombo á Ceylon breska heimsveldisins, grátbað hann afturhaldsríkisstjórnir Indlands, Pakistan, Ástralíu og Nýja-Sjálands um aðstoð gegn hinni sívaxandi frelsishreyf- ingu á Malakkaskaga og í Burma. Skref af skrefi til sigurs. Hin hetjulega barátta malakk j isku föðurlandsvinanna gegn v brezku yfirgangsseggjunum verðskuldar aðdáun alls heims- ins. Frelsishreyfingin hefur þeg ar náð mikilsverðum árangri eins og sjá má á tilkynningu, sem kommúnistaflolkkur Mal- akkaskaga hefur nýlega gefið út. Þar segir m. a. að sveitum þjóðfrelsishermanna hafi verið komið á fót í öllum landshlut- um og að andstaða allra þjóða og þjóðflokka, sem skagann byggja, hafi verið skipulögð og samræmd. jNúverandi ástand sýnir“, segir í tilkynningunni, „að bar- áttu byltingaraflanna hlýtur að ljúlkia með sigri, og brezku heimsveldissinnarnir að bíða ó- sigur. Þjóðfrelsisbarátta þjóð- anna á Malakkaskaga nálgast nú sigurinn skref af skrefi.“ ÞAKKARÁVARP Innilegt þakklæti flyt ég ölliun þeim, er með gjöfum, heim- sókniun eða á annan hátt glöddu mig á sjötugsafmæli mínu 1. júlí S. I. i j ; [ jiril Guð blessi ykkur öll BtTÖRG ÞORBERGSBÓTTIR, Snorragötu 3 Tilkynning nr. 24/1950 frá verðlassstióra Ríkisstjórnin hefur ákveðið nýtt hámarksverð á skömmtuðu smjöri sem hér segir: I heildsölu ......... kr. 23,90 pr. kg. í smásölu ........... — 25,40 pr. Ikg. Reykjavík, 3. júlí 1950. VERÐLAGSTJÓRINN Tilkynning nr. 25/1950 frá verðlagsstjófa Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárliagsráðs liefur ákveðið nýtt hámarksverð á kaffibæti og verður það framvegis sem hér segir: Heildsöluverð án söluskatts .. kr. 7,28 Heildsöluverð með söluskatti . — 7,50 Smásöluverð án söluskatts í smásölu .... — 8,82 Smásöluverð með söluskatti 'i smásölu — 9,00 Reykjavík, 6. júlí 1950. VERÐLAGSTJ ÓRINN Tilkynning nr. 26/1950 frá verðlagsstjóra Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefur ákveðið nýtt hámarksverð á harðfiski og verður það framvegis sem hér segir: i i it 1 lieildsölu: Barinn og pakkaður .. kr. 14,00 pr. (kg. Barinn og ópakkaður .. — 12,80 pr. kg. í smásölu: Barinn og palkkaður .. — 17,00 pr. kg. Barinh og ópakkaður .. — 15,80 pr. kg. Reykjavík, 6. júlí 1950. '"l, ■.. •<?'. UíáóiJ ■ ■ «■.t .» ________ VERÐLAGSTJORINN ásamt öðrum utanr.ráðherrum

x

Mjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.