Mjölnir


Mjölnir - 19.07.1950, Blaðsíða 1

Mjölnir - 19.07.1950, Blaðsíða 1
21. tölublað. Miðvikudagur 19. júlí 1950. 13. árgangur. Samníngar »Brynju« og atvinnurekenda Samningur um kaup og kjör var undirritaður í fyrradag. FrystiMsvinna fellur undir almenna taxta; trygging hækkar um 100 kr. og vísitölu- uppbót; kaup fyrir síldarpönnun skal ekki falla undir tryggingu; næturvinnutíminn lengist og framlag atvinnurekenda 1 hjálparsjóð hækkar. Arásin á Norður-Kóreu „lausn“ á erfið leikutn leppstjornarinnar „I Suður-Kóreu vantar ekki menn, sem sjá lausn á liinum miklu erfiðleikum, sem landið á við að etja, í hemaðarlegri árás á Norður-Kóreu. Herinn, sem er þjálfaður og vopnaður af Ame- ríkiunönnum, telur um 100,000 manns, — þar að auki er 50 þús. manna vopnað lögreglulið, — er álitinn miklu sterkari en her Norður-Kóreu.“ Þannig komst Walther Bosshard, fréttaritari svissneska blaðsins Neue Zuricher Zeitung, að orði í grein sem blað hans birti 20. júní s. 1., fimm dögum áður en bandaríska leppstjórnin í Seoul hóf árás sína norður tfyrir 38. breiddarbaug. Nokkrum dögum áður en leppstjórnin hófst handa um að ,,leysa erfiðleikana“ á þennan hátt, var hinn ikunni striðsæsinga- seggur, John Foster Dulles, sem Truman gerði að utanrikismála- ráðunaut í því skyni að tryggja fylgi Repúbiikana í kalda stríðinu, staddur í Kóreu og ferðaðist með herforingjum og ráðunautum sínum um svæðið, þar sem bardagamir hófust nokkrum dögum s'íðar. Hafa iblöð víðsvegar um heim birt myndir af honum, þar sem hann er staddur í skotgröf rétt við landa- mærin og skoðar hann landaibréf ásamt S-kóreönskum og ame- rískum herforingjum. Afhjúpun Neue Zuricher Zeitung er þekkt hjá fjölda frétta- stofnana og blaða um allan heim, en þrátt ifyrir það staglast hin fjarstýrðu blöð og útvarpstöðvar Bandaríkjamanna 'i Evrópu stöðugt á lyginni um „kommúnistíska árás.“ I grein Walthers Bosshards er einnig að finna ýmsar aðrar athyglisverðar upplýsingar um S-Kóreu. 1 þessum hluta landsins eru ekki færri en 4 millj. rnanna atvinnulausar. 1 ikosningunum, sem harðstjórn Syngmans Rhees lét fara fram 30. maí, var Kommúnistaflokkurinn ibannaður og margir af foringjum hans sátu í fangelsi. 1 kosningimum fengu óháðir meirihluta og Syng- man Rhee óttaðist að verða í minnihluta þegar þingið kæmi saman, en það hefði þýtt að mynduð hefði verið ný stjóm og samin ný stjórnarskrá. Þannig var ástandið, þegar leppstjómin hóf styrjöldina gegn Norður-Kóreu til þess á þann hátt, að reyna að „finna lausn á erfiðleikunum.“ Fréttir frá Kóreu Taejon, bráðabirgðahöfuðborg leppstjómarinnar, er nú f þann veginn að falla í hendur alþýðuliersins. Leppstjómin er flúin til Taegu. Bandaríkjamenn isettu í gærkvöldi lið á land 75 km. norð- ur af Fusan, að baki víglínu alþýðuhersins. 1 Hækkunin á kauptryggingunni. Tryggingin hækkar samkv. hinum nýja samningi úr kr. 1000,00 í fer. 1100,00, og sfeal greidd full visitöluuppbct á tryggingaruphæðina. Er þetta miiiiisverð kjarabót. Verði vísi- talan t. d. 15 stig, eins og al- mennt er nú búizt við, n.mur 'hækkunin 265 krónum yfir tryggingartímabilið. Hinsvegar féll Brynja frá kröfu simn um vikupening'a til handa siglfirzkum stúlkum, er vinna að söltun. Sú hæfckun, ef fram hefði náðst, hefði aðeins gilt fyrir síldarstúlkur, sem bú settar eiu hér 'i Lunum, en tryggingarliækkunin tekur tú allra stúlloia, sem að síídar- söltun vhma. Tryggingartímabilið skal vera ifrá því söltun hefst og til 13. sept., en var áður til 10. sept. Frystihúsataxtinn Annað mikilsvert atriði ■ í þessum nýja samningi, og að sumra áliti það mikilsverðasta í honum, er ákvæðið uin að sértaxti fyrir íshúsvinnu falli niður og að hún verði fram- vegis greidd með hinu almenna t'imavinnukaupi félagsins, þó með þeim fyrirvara, að sé hærra kaup greitt fyrir frysti- húsavinnu annarstaðar á land- inu, skuli það einnig greitt hér. 1 nærri heilan áratug liefur kaupgjald hér fyrir íshúsvinnu verið til muna lægra en al- mennt tímakaup. Hefur Brynja gert margar tilraunir til að fá þetta leiðrétt ,en efcki tekizt fyrr en nú. Er því hér um mikilsvert atriði að ræða. Kaup fyrir pönnun skal ekki ganga upp í kauptryggingu. Þá er í samningnum ákvæði um að kaup fyrir pönnun síld- ar skuli ekki teljast með í kauptryggingunni, en áður höfðu s'ildverkunarstöðvar, er létu frysta sild, rétt til að reikna það með í tryggingunni. Eru þess mörg dæmi, að fast- ráðnar síldarstúlkur hafi orðið að sætta sig við að kaup fyrir pönmm, svo hundruðum króna skipti, hafi verið dregið frá kauptryggingu þeirra. Næturvinna frá kl. 20 til kl. 7. Samkvæmt nýja samningnum skal talin næturvinna frá kl. 8 að kvöldi til fcl. 7 að morgni á tímabilinu frá og með 9. sept. til og með 7. júlí. Áður taldist næturvinna frá kl. 10 að kvöldi á þessu tímabili. Framlag í hjálparsjóð hækkar. Loks er svo í samningnum ákvæði um að framlag síldar- saltenda í hjálparsjóð skuli Bóndinn í Grundarkoti, Stef- án Erlendsson, brá búi í fyrra- haust og flutti hingað til Sig'lu- fjarðar, og hefur bærinn staðið mannlaus síðan, en innanstokks munir og fleira verðmæti var geymt þar, og hefur það allt brunnið til kaldra kola. Ibúðar- húsið var með steinveggjum, og eru veggirnir og járnleiðsl- ur sem í húsinu voru, það eina, sem eftir er óbrunnið. Ekkert er vitað um orsök brunans. Bærinn Vík, sem nú er eini bærinn í Héðinsfirði, sem byggður er, stendur í 4-5 fcm. fjarlægð frá Grundarkoti, og hafði fólk þar ekkert orðið brunans vart fyrr en s. 1. laug- ardag, er bóndinn, Sigurður Björnsson kom þar að rústun- um. Er það s'iðast vitað um mannaferðir að Grundarkoti, að Sigurður í Vík og annar maður komu þar fyrir um það bil mánuði síðan. íbúðarhúsið var eitthvað vá- tryggt, en innanstokksmunir og annað, sem í því var, mun allt haifa verið óvátryggt. Er tjónið því mjög tilfinnanlegt fyrir eig andann, Stefán Erlendsson. Eins og áður er sagt er ekk- ert vitað um orsök brunans. Rafmagn var ekkert í húsinu, og lítur út fyrir að annaðhvort hafi verið um að ræða sjálf- vera 5 aurar af hverri útskip- aðri tunnu. Áður var þetta framlag 3 aura af tunnu. Verulegar kjarabætur. Með tilliti til þess, hve lítjð svigrúm er til frjálsra samn- inga milli verkafólks og at- vinnurekenda, vegna afskipta ríkisvaldsins af þeim málum, er óhætt að segja, að Brynja hafi náð mjög góðum árangri í þessum samningum, og betri en flest önnur verkalýðsfélög, sem gert hafa samninga um kaup og kjör síðan gengislækk unarlögin komu til fram- kvæmda. Kjör Brynju um síld- arvinnu gilda nú ’i flestum eða öllum sildverkimarþorpum hér norðanlands. Sáttasemjari í deilu Brynju og síldarsaltenda var sr. Ósfcar J. Þorláksson. kviknun eða íkveikju af manna völdum. Málið mun nú vera í rannsókn. Elísabet Eiríksdóttir, form. Verkakvennafélagsins Einingar á Akureyri og bæjarfulltrúi Sósíalistaflokksins þar, átti sextugsafmæli hinn 12. júlí s.l. Elísabetu þarf ekki að kynna ifyrir lesendmn Mjölnis, því flestir hafa þeir heyrt þessar- ar mætu konu getið og haft af henni meiri og minni persónu- leg kynni í gegn um 30 ára starf hennar og baráttu í þágu verkalýðshreyfingarinnar hér norðanlands. Hún hefur ávalt staðið þar, sem átökin hafa verið hörðust og í fylkingar- brjósti hins róttæka verkalýðs. 1 pólitísku baráttunni er sömu söguna að segja; hún hefur þar samfylkt með hinu baráttufúsa og róttæka fóliki, fyrst í Komm únistaflokki íslands og síðar í Sósíalistaflokknum og jafnan gegnt mikilsverðum trúnaðar- störfum í þeim báðum. Mjölnir vill fyrir hönd flokiks systkinanna hér og svo og annarra verkalýðssinna færa Mac Arthur, yfirforingi inn- rásarhers Bandaríkjamanna 1 Kóreu, birti enga herstjórnar- tilkynningu í gær, en í morgun var sagt I fréttum frá höfuð- Elósabetu innilegustu ámaðar- óskir og baráttukveðjur í til- efni þessara merku tímamóta í lífi hennar. Lifðu heil, Elisabet. Megi hinn sósíalistíski málstaður vor njóta ferafta þinna sem lengst og uppskera mikla árangra í framtíðinni. Síldin Seinnihluta dags í gær og fram eftir kvöldi kom upp síld víða austur við Langanes, báð- um megin við nesið, og fengu allmörg skip nokkum afla. — 1 morgun hefur lítið veiðst. Því nær allur veiðiflotinn, um eða yfir 200 skip, eru nú á miðun- um við Langanes. Veður hefur verið 1 sæmilegt undanfarinn sólarhring, en víðast dumbungs veður eða þokuslæðingur. Síld- arleitarflugvélar liafa ekki get- að farið í leitarflug síðan á laugardag 8. jþ. m. stöðvum hans í Japan í gær, að litlar breytingar hefðu orðið á vígstöðxmni. Hinsvegar er Ijóst orðið, að Taejon, ibráðabirgða- höfuðborg leppstjómarinnar í S-Kóreu er nú að falla í hendur norðanmönnum, og segjast Bandarikjamenn nú bafa búið um sig á nýrri víglinu suður og suðaustur af borginni. Verða ef til vill hraktir frá Kóreu. James E. vanZandt, meðlim- ur í herm álanefnd fulltrúadeild ar Bandarikjalþings, hefir skýrt frá því, að álit manna í Was- hington sé, að eftir tap Taejon geti farið svo, að Bandaríkja- menn verði með öilu hraktir af meginlandi Kóreu. Or því að vamarlinan meðlfram Kum- fljóti væri brostin, væri ekfei búizt við þvi að hægt yrði að mynda jafn trausta varnarlínu á ný fyrr en umhverfis banda- rísku birgðahöfnina Fusan á suðausturhomi Kóreu. SKEMMTIFUNDUR Sósíalistafólag Siglufjarðar og Æ&kulýðsfylkingin, halda sameiginlegan skemmtifund í Suðurgötu 10 næsta laugardag, fyrir meðlimi og gesti þeirra og flokksfélaga utan ai landi, sem dveljast hér I bænum. Dagskráin verður auglýst á götunum á næstunni. Bærinn Grundarkot í Héðinsfirði brennur Ókunnugt um orsök brunans. Bærinn hefur staðið mann- laus síðan í fyrrahaust. ELISABET EIRlKSDðTTIR SEXTUG

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.