Mjölnir - 13.12.1950, Qupperneq 3
M J ö L N I R '
S
Vestrænt lýðræði í Asíu
Að undanförnu hafa birzt í
sænska blaðinu Vecko-Journ-
alen ferðapistlar frá Asíu eftir
dr. Olle Strandberg, sænskan
rithöfund, sem hefur ferðast
um Asíu í sumar og haust. Dr.
Strandberg er fylgismaður hins
borgaralega þjóðskipulags, en
svo laus við þá þröngsýni og
hleypidóma, sem einkennir
marga borgaralega mennta-
menn, að hann dregur ekki
fjöður yfir staðreyndir, sem
eru óþægilegar fyrir skoðana-
ibræður hans 1 Evrópu. Og hann
er athugull og skarpskyggn
ferðamaður og segir oft frum-
lega og skemmtilega frá þvi,
sem fyrir augu hans og eyru
ber.
I frumskógi í Indó-Kína, þar
sem dauðinn bíður hins hvíta
manns í launsátri, gerist tákn-
rænn atburður, smámynd af
iatferli hvíta kynstofnsins í
Asíu. Tvær konur falla í árás á
bifreið. Nokkrir hermenn hafa
„hreinsað til á slysstaðnum".
„Þetta voru imgir menn
með svitastorkin andlit og
ljós, hörkuleg augu. Þeir
höfðu reyrt hæði líkin við
kælikassann á bílnum og
héldu í áttina til Saigon í
rökkrinu. Þegar þeir fóru
fram hjá bílalest okkar, voru
þeir að syngja gamlan, al-
kunnan söng:
„Die Strasse frei der braun
en Bataljonen,
„SA marschiert mit ruhig,
festem Schritt —“
(Úr Horst-Wessel söngnum)
Afturganga nazismans, leif-
ar af úrvalshersveitum Hitlers,
var þarna á ferðinni inni í miðj
um frumskógi Indó-Kína, óhult
fyrir réttlæti Potzdam-samn-
ings og Niirnbergdóma. Draug-
ur nazismans berst nú í
fremstu víglínu í Asíu, við hlið
forvígismanna vestræns frelsis
og lýðræðis — og Saipeinuðu
þjóðanna, mætti bæta við —
fyrir lýðræði, mannréttindum
efnahagslegu jafnrétti og krist
inni menningu, en gegn komm-
únisma, að sögn vestrænna lýð-
ræðispostula. Hefði sjálfsagt
einhverjium þótt það skrítin
spá, ef sagt hefði verið fyrir
fimm árum, að eftirlætisher-
sveitir Hitlers ættu eftir að
komast í röð fremstu boðbera
siðmenningar, réttlætis og
mannúðar. En svona er það nú
samt. Um 40 þúsund þýzkir
nazistar, flestir úr SS og SA,
hafa verið skráðir í útlendinga-
her Frakka og sendir til Indó-
Kína til að sannfæra hinn fá-
fróða lýð austur þar með vopna
valdi um yfinburði frelsis, lýð-
ræðis, kristinnar menningar og
friðar yfir einræði og kúgun
komraúnism&ng.
★
Dr. Strandberg talar í hálf-
gerðum háðstón um baráttu
hvíta mannsins í Asíu fyrir
„kristinni menningu, pólitísku
lýðræði, friði og efhahagslegu
jafnrétti“. Hvað hefur aldalöng
kynning Asíubúa af vestrænu
lýðræði kennt þeim um þessa
hluti? Hvað er kristin menning
í augum Asíubúans ? Morð-
tæíkni, gegndarlaus fégræðgi,
sviksemi, harðýðgi og grimmd.
Hvað er hið „pólitíska lýðræði“
liv'ita mannsins í Austurlönd-
um? Algert einræði hvítra ný-
lendustjóra eða innlendra leppa
á borð við Shang Kai Shek,
Syngman Rhee, Bao Dai og
Nehru, stjórnarfar, sem ein-
igöngu miðast við að stela sem
mestum arði af vinnu klæð-
lausra, sjúkra og sveltandi ör-
eigamilljóna og ræna lönd
þeirra sem mestum auðæfum á
sem skemmstum tíma. Þetta
lýðræði felur líka í sér bann við
stéttabaráttu, bann við verka-
lýðssamtökum, bann við að
stofna til nokkurra þeirra sam-
taka, sem gætu beint eða óbeint
spillt aðstöðu valdhafanna til
kúgunar og arðráns. Hvernig
er háttað þeim friði og þeirri
reglu, sem hvíti maðurinn held-
ur uppi í Asíu? Það er sá frið-
ur, sem hnútasvipan og hlekk-
imir skapa í sambúð húsbænda
og þrælalýðs, en friður axar-
innar og jarðarinnar ef þrælam
ir sætta sig ekiki möglunarlaust
við okið. Slík friðarbarátta er
það, sem Bretar, Frakkar og
Bandaríkjamenn heyja nú á
Malakkaskaga, í Burma, Indó-
Kína, Kóreu og á Filippseyj-
um. Og hver er reynsla Asíu-
búans af baráttu hvíta manns-
ins fyrir efnahagslegu jafn-
rétti? Húsnæðisleysið, klæð-
leysið, sulturinn, sjúkdómamir
og neyðin í Suður'Asíu, ein-
hverjum auðugasta og frjósam
asta hluta heimsins, em talandi
tákn um mörg hundmð ára
„efnahagsviðreisn" vestrænna
þjóða í þessum löndum.
★
Dr. Strandberg virðist ekki
vera sérlega trúaður á full-
yrðingamar um þakklæti og
ástarþel Kóreubúa í garð vest-
rænu þjóðanna, sem nú „að-
stoða Kóreu í baráttunni gegn
'heimsveldisstefnu kommún-
ista“. í grein sinni frá Indó-
Kína segir hann m.a_, ;■
„f umræðum um stjómmála-
ástancl líðaaxdi stundar er því
oft slegið fram, að Indó-Kína
geti orðið ný Kórea — ógnun
við lieimsfriðinn. Það alveg eins
sennilegt, að Kórea dagsins í
dag breytist í nýtt Indó-Kína
— land, þar sem Bandaríldn —
eða Sameinuðu þjóðimar, ef
menn vilja heldnr orða það
þannig — heyja grimmdarfulla
baráttu gegn herauminni þjóð.
En það er slík barátta, sem nú
er háð í Viet-Nam“.
Frakkar fóma að meðaltali
fimmtíu mannslífum á dag og
10.000 fröhkum á hvem skatt-
greiðanda árlega í hinni göf-
ugu baráttu gegn kommúnism-
anum, sem þeir heyja í Indó-
Kína með aðstoð þýzkra naz-
ista, en fá næsta lítið í aðra
hönd. Bandaríkin „hjálpa“
þeim og taka ríflega borgun
fyrir:
„Útflutningurinn frá Viet-
Nam hefur minnkað geysi-
mikið, og innflutningsverzlunin
er að komast algerlega í hend-
ur Bandaríkjamanna — það er
verðið, sem Frakkland verður
að greiða fyrir vopnasending-
arnar. Bandaríkin gleyma ekki
að gera góða verzlun jafnframt
því, sem þau verja Vesturlönd
fyrir kommúnismanum. í Sai-
gon hafa amer.'skir skraut-
bílar leyst litla og yfirlætis-
lausa Citroen- og Renault-bíla
af liólmi, og hinir fögru anna-
mítísku búningar erú saumað-
ir úr silki frá bandarískum
verksmiðjum í Japan í stað
efna frá Lyon. Já, það er meira
að segja farið að nota dósaöl í
staðinn fyrir frönsku matar-
vínin.“
„Ef Bandaríkin gera átak,
mun Frökkum hlotnast sá heið
ur að koma á fót bardagasveit-
um, sem með amerískum vopn-
um og alþjóðlegum atvinnuher-
mönnum — þ.á.m. 40.000 fyrv.
SA- og SS-hermönnum —
halda uppi orðstír hins hvíta
manns í Asíu. En menningar-
legu og efnahagslegu hlutverki
þeirra sjálfra (Frakka), verður
um Ieið Iokið.“
★
Dr. Strandberg lýkur grein
sinni frá Indó-Kína með hug-
leiðingum um viðhorf í Asíu
almennt: „Asíuþjóðimar búa
sig nú xmdir úrslitaorustuna.
Hvítu djöflamir yfirgáfu heims
álfu þeirra: Bretar hurfu frá
Indlandi og leyfðu Indverjum
að þjást undir hinu nýfengna
frelsi. Bandaríkjamenn héldu á
brott frá Kína og Suður-Kóreu.
Hollendingar kvöddu índónes-
íu. Það voru aðeins örfáir hvít-
ir blettir eftir á kortinu —
Malakkaskagi, Formósa, Burma
Indó-Kína — og þeir lituðust
rauðir eins og af blóði. Nú eru
hvítu djöflamir farair að venja
komur sínar til Asín að nýju,
og koma nú í einni fylkingu og
undir fána Sameinuðu þjóð-
anna.“
★
„Asíuþjóðirnar búa sig nú
undir úrslitaorustuna.“ Styrj-
öldin milli Asíuþjóðanna og
hinna vestrænu nýlenduþjóða
hófst þegar hinar síðamefndu
byrjuðu að seilast til valda í
Asíu, og hefur staðið látlaust
síðan, þótt vopnaviðskipti hafi
legið niðri um stundarsakir
öðru hverju. Asíuþjóðimar
hafa aldrei viðurkennt yfirráða
rétt vestrænu ríkjanna í Asíu,
og munu aldrei gera það. —
Lokaátökin um yfirráðaréttinn
yfir Asíu milli nýlenduveldanna
og Asíubúa sjálfra eru þegar
um garð gengin í Kína, víðlend
asta og mannflesta ríki Asíu,
standa yfir í Burma, Malakka-
skaga og Indó-Kína, og það
virðist aðeins spurning um
tíma hvenær þau fara fram í
Indlandi og Suðvestur-Asíu. —
Úrslitaorustan verður sú omsta
sem færir Asíuþjóðunum óskor
uð yfirráð yfir löndum þeirra,
því Asíuþjóðimar munu ekki
láta af baráttu sinni fyrr en
fullur sigur hefur unnizt. —
Atburðir síðustu mánaða og
vikna, sem sýna, að Asíumenn
ætla hvergi að hopa fyrir hin-
um vestrænu kúgurum, jafnvel
ekki þótt þeir sendi þeim ógn-
andi tóninn frá aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna og sýni
þeim klæmar undir fána þeirra
— gefa fyrirheit um að útslita-
orustan, sem mun verða bana-
sár nýlenduimperíalismans og
þýðingarmikill nagli í líkkístu
heimskapitalismans, só ekki
mjög langt undan.
Tilvalin jólagjöf
Uefið vmum yðar og kunningjum bókina „Samsærið mikla
gegn Sovétríkjunum.“
Bó'kin er ómetanleg heimildarlind öllum þeim, sem sannleik-
ans Ieita um það ástand, sem nú ríkir í alþjóðamálum, og orsakir
þess. — Bókin fæst á
SKRIFSTOFU SÓSlAUSTAFLOKKSINS, Suðurg. 10.
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«
Kærkomin jólagjöf
er Karlamagnússaga, þrjú bindi, fyrir aðeins 142 krónur
(áskriftagjald). —- Get afgreitt bækumar af lager hér.
KRISTMAR ÓLAFSSON
Tilkynning
Efnalaug Siglufjarðar verður lokuð frá 30. des. aJð telja,
um óákveðinn tíma.
EFNALAUG SIGLIJFJARÐAR.
Tilkynning
eftirfarandi hámarksverð ft
kr. 2,18 kr. 2,25
— 2,18 — 2,25
— 0,58 — 0,60
— 5,58 — 5,75
— 9,70 — 10,00
brauðum:
Franskbrauð 500 gr........ kr.
Heilhveitibrauð 500 gr. .
Vínarbrauð pr. stk.......
Kringlur pr. kg..........
Tvíbökur pr. kg..........
Séu nefnd brauð bökuð með annari þyngd en að ofan grnnir,
skulu þau verðlögð | hlutfallí við ofangreint verð.
Á þeim stöðum, sem br&uðgerðir eru ekki starfandi, má hæta
sannanlegum fIutningskostnaði við hámaTksverðið.
Ef kringlur eru seldar f stykkjatali, er óheimilt að selja þær
hærra verði en sem svarar kr. 8,00 pr. kg. i-
mð&l&T-fcéisi&i---
Reykjavik, 30. móv. 1950.
VERÐLAGSSKRIFSTOFAN
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■»♦♦♦♦♦<
Þeir, meðlimir Sjákrasamlags Siglufjarðar, sem vilja hafa
læknaskifti frá næstu áramótum, verða að tilkynna það f skrif-
stofu samlagsins fyrir 24. des. n. k.
Siglufirði, 30. nóv. 1950.
SJÚKRASAMLAG SIGLUFJARÐAR