Mjölnir - 05.03.1975, Page 1
Mjölnir
XXXVHI. árgangiur. Miðvikudagur 5. mars 1975. 2. tölublað.
Alpýðubandalagsfólk Sigluíirði!
Skrifstofa Alþýðubandalagsins verður fram-
vegis opin á föstudögum kl. 5,00-6,30 s.d.
Félagar, lítið við á skrifstofunni og fylgist með
gangi mála. STJÓRNIN
FRUMVARP TIL LAGA UM
HITAVEITU SIGLUFJARDAR!
Hannes Baldvinsson sat á þingi fyrir skömmu og flutti þá frumvarptil laga um Hitaveitu Siglufjarðar
Mjölnir birtir hér frumvarpið í heild ásamt úrdrætti úr framsöguræðu Hannesar
1. gr.
Ríkissjóður íslands og
SigluíjarÖarkaupstaÖur skulu
setja á stofn hitaveitufyrirtæki
er nefnist Hitaveita Siglufj.
Tilgangur fyrirtækisins skal
vera aö virkja jaröhita í Skútu
dal eöa annars staöar í Siglu-
firði, ef hagkvæmt þykir,
leggja aðveituæð og dreifi-
kerti um kaupstaðinn og ann-
ast sölu á heitu vatni til not-
enda. Hitaveita Siglufjarðar
skal reisa kyndistöö og miðl-
unargeymi til að tryggja
rekstraröryggi og annast
frekari boranir eftir heitu
vatni, teljist slíkt nauðsynlegt.
Fyrirtækið er sjálfstæöur
réttaraðili og hefur sjálfstæð-
an fjárhag og reikningshald.
Heimili þess og varnarþing
er í Siglufirði.
2. gr.
Hitaveita Siglufjarðar er
sameignarfyrirtæki ríkisins og
Siglufjarðarkaupstaðar.
Eignarhluti ríkissjóðs skal
vera 40%.
Eignarhluti Siglufjarðarkaup
staðar skal vera 60%.
Sameigendur beri einfalda
óskipta ábyrgð á skuldbind-
ingum Hitaveitu Siglufjarðar
gagnvart kröfuhöfum. Inn-
byrðis skiptist ábyrgð sam-
kvæmt eignarhlutföllum. Verði
síðar ákveðið að krefja við-
bótarframlags frá eigendum,
skulu þeir leggja það fram
í samræmi við eignarhlutfall.
Eignarhlutföllum verður ekki
breytt, og hvorugum sameign-
araðila er heimilt að ganga
úr fyrirtækin'u án samþykkis
hins.
3. gr.
Starfsemi Hitaveitu Siglu-
fjarðar skal beinast að öflun
heits vatns fyrir bæjarfélagið
og rannsókn á jarðhitasvæð-
um í Siglufirði.
Verkefni Hitaveitu Siglu-
fjarðar skulu nánar tilgreind
í reglugerð.
4. gr.
Siglufjarðarkaupstaður skal
afhenda Hitaveitu Siglufjarð-
ar öll mannvirki sín í Skútu-
dal, þar á meðal borholur fyr-
ir heitt vatn, veg að virkjunar-
stað og allar áætlanir og und-
búningsframkvæmdir vegna
virkjunar í Skútudal. Náist
eigi samkomulag um mat á
verðmætum þessum, skal
gerðardómur þriggja manna,
sem bæjarfógetinn í Siglufirði
dómkveður, skera úr. Sama
gildir um mannvirki og önnur
verðmæti er eignaraðílar af-
henda.
5. gr.
Sameignaraðilar að Hita-
veitu Siglufjarðar leggja fram
stofnframlag. 20 milljónir kr.
sem skiptist milli aðila í hlut-
föllum þeim, er um getur í 2.
gr. í framlagi eignaraðila
skulu talin verðmæti þau, sem
um ræðir í 4. gr.
6. gr.
Iðnaðarráðherra veitir Hita-
veitu Siglufjarðar einkaleyfi
til starfrækslu hitaveitu innan
bæjarmarka Siglufjarðarkaup-
staðar.
7. gr.
Stjórn Hitaveitu Siglufjarð-
ar skal skipuð fimm mönnum.
Iðnaðarráðherra og fjármála-
ráðherra skipa hvor einn full-
trúa í stjórnina og einn til
vara. Bæjarstjórn Siglufjarðar
skipar þrjá stjórnarmenn og
jafnmarga til vara. Stjórnar-
menn skulu skipaðir til þriggja
ára í senn. Stjórnin skiptir
með sér verkum. Undirskrift
meiri hluta stjórnar bindur fyr
irtækið.
8. gr.
Stjórn Hitaveitu Siglufjarð-
ar hefur á hendi yfirstjórn á
framkvæmdum fyrirtækisins
og rekstri þess.
Stjórn Hitaveitu Siglufjarð-
ar ræður framkvæmdastjóra,
er veitir fyrirtækinu forstöðu.
Framkvæmdastjóri skal ann-
ast allan daglegan rekstur
fyrirtækisins. Skal hann eiga
sæti á stjórnarfundum og hafa
þar málfrelsi og tillögurétt, en
eigi atkvæðisrétt.
Nánari ákvæði um starfs-
svið stjórnar og framkvæmda
stjóra skulu sett í reglugerð.
9. gr.
Aðalfund skal halda 1. apr.
ár hvert. Stjórnin boðar til að-
alfunduar með dagskrá og
með a. m. k. viku fyrirvara. Á
aðalfundi eiga sæti bæjarfuil-
trúar í bæjarstjórn Siglufjarð-
ar og sex fulltrúar frá ríkis-
sjóði. Fulltrúa ríkissjóðs skipa
iðnaðarráðherra og fjármála-
ráðherra, þrjá hvor.
Á aðalfundi skal fjalla um
eftirgreind mál:
1. Skýrslu stjórnar og fram-
kvæmdastjóra.
2. Lagðir skulu fram endur-
skoðaðir reikningar fé-
lagsins.
3. Kosinn skal einn endur-
skoðandi til eins árs, en
fjármálaráðherra skal til-
nefna annan.
4. Eignaraðilar skulu til-
kynna tilnefningu nýrra
manna í stjórn.
5. önnur mál.
10. gr.
Stjórn Hitaveitu Siglufjarð-
ar setur gjaldskrá um verð á
heitu vatni til notenda.
Gætt skal almennra arðsem
issjónarmiða við setningu
gjaldskrár.
Gjaldskrá öðlast eigi gildi
fyrr en hún hefur verið stað-
fest af iðnaðarráðherra og
birt í Stjórnartíðindum.
11. gr.
Heimilt er stjórn Hitaveitu
Siglufjarðar að taka lán til
þarfa fyrirtækisins og taka á-
byrgð á greiðslum og öðrum
skuldbindingum í sama skyni.
Stjórnin getur ekki skuldbund
ið eignaraðila að því er varð-
ar greiðsluskuldbindingar og
ábyrgð á lánum til framkv. og
breytinga á mannvirkjum,
nema að fengnu leyfi beggja
eignaraðila. Þó þarf stjórnin
ekki að leita slíks samþykkis,
ef samanlagðar skuldbinding-
ar og ábyrgðir, sem gengist
er undir á hverju ári, eru
minna en 10% af brúttótekj-
um fyrirtækisins á næstliðnu
ári.
12. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að
takast á hendur ábyrgð á lán-
um, er Hitaveita Siglufjarðar
tekur til hitaveituframkvæmda
að fjárhæð allt að 200 milljón
um kr. eða jafnvirði þeirrar
fjárhæðar í erlendri mynt.
Ábyrgðin skal vera með
þeim kjörum og skilmálum, er
ríkisstjórnin ákveður og tek-
ur hún jafnt til greiðslu af-
borgana, vaxta og annars
kostnaðar.
Ríkisstjórninni er einnig
heimilt að taka lán, er kæmi
að hluta eða öllu leyti í stað
ábyrgðar skv. 1. mgr. Lánið
endurlánar hún Hitaveitu
Siglufjarðar með þeim kjörum
og skilmálum, sem ríkisstjórn
in ákveður.
13. gr.
Um skyldu Hitaveitu Siglu-
fjarðar til greiðslu opinberra
gjalda til ríkis og sveitarsjóðs
fer á sama hátt sem um
skyldu sveitarfélaga, er slíkan
rekstur hafa með höndum.
Hitaveita Siglufjarðar skal
undanþegin stimpilgjöldum.
14. gr.
Siglufjarðarkaupstaður skal
án endurgj., leggja til lóðir og
lóðarréttindi, sem eru í eigu
kaupstaðarins og nauðsynleg-
ar eru undir bygqingar, miðl-
unargeymi, aðveituæð og önn
ur mannvirki, sem reist verða
á vegum Hitaveitu Siglufjarð-
ar.
15. gr.
Ráðherra getur heimilað
Hitaveitu Siglufjarðar að taka
eignarnámi jarðhitaréttindi,
vatnsréttindi, lönd, mann-
virki og önnur réttindi, sem
nauðsynleg eru til framkv.
samkvæmt lögum þessum.
Um framkvæmd eiqnarnáms-
ins fer eftir lögum nr. 11/1973.
16. gr.
Þegar eftir gildistöku laga
þessara, skal stjórn fyrirtækis
ins skipuð og sameignarsamn
ur gerður milli aðila. Skal
hvoru tveggja lokið fyrir 15.
apríl 1975.
Iðnaðarráðherra setur reglu
gerð, þar sem nánar skal
kveðið á um framkvæmd þess
ara laga og starfsemi Hita-
veitu Siglufjarðar. Skal stjórn
Hitaveitu Siglufjarðar undir-
búa reglugerðina í samráði
við eignaraðila.
17. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð
Hinn 18. des. s. I voru sam-
þykkt hér á Alþingi lög um
Hitaveitu Suðurnesja, en þar
er ákveðið, að ríkissjóður og
sveitarfélög á Suðurnesjum
sameinist um byggingu og
rekstur hitaveitu fyrir sveitar-
félögin þar. Frumvarp það,
sem hér er lagt fram, er svo
til samhljóða lögunum um
Hitaveitu Suðurnesja og efnis
atriðum í engu breytt, nema
þar sem aðrar kringumstæður
en lögin miðast við krefjast
breytinga.
( Skútudal í Siglufirði hefur
um nokkurt árabil farið fram
leit að heitu vatni til notkun-
ar fyrir hitaveitu í kaupstaðn-
um. Hafa í því skyni verið bor
aðar nokkrar holur í námunda
við heitar lindir, sem þarna
eru. Árangur hefur því miður
ekki reynst eins góður og von
ir stóðu til, en tilraunir hafa
þó leitt í Ijós, að þarna má,
með niðurdráttardælingu, fá
um það bil 21 sekúndulítra af
67 gráða heitu vatni og er
það vatnsmagn talið duga til
upphitunar á % hlutum bæjar
ins.
Frumhönnun á hitaveitu
fyrir Siglufjörð á grundvelli
þessarar niðurstöðu hefur
leitt í Ijós, að hagkvæmt er
talið að virkja þetta vatns-
magn. Er áætlað að leggja
lokað kerfi um hluta bæjarins
og reisa kyndistöð, sem notar
svartolíu og/eða rafmagn til
upphitunar á því vatnsmagni,
sem á skortir til að fullnægja
hitaþörfinni. Bæjarstjórn Siglu
fjarðar hefur samþ. að ráðast
í framkvæmdir á gruridvelli
þeirra upplýsinga, sem fyrir
hendi erú, og er fullnaðar-
hönnun verksins þegar hafin
og stefnt að því að Ijúka lagn
ingu hitaveitunnar á árinu '76.
Með frumvarpi þessu, ef að
lögum verður, er gert ráð fyr-
ir, að ríkissjóður verði aðili
að framkvæmdum og rekstri
á hitaveitu í Siglufirði, á sama
hátt og þegar hefur verið á-
kveðið með lögum um Hita-
veitu Suðurnesja.
Áætlað er að leggja fram
nokkra fjárupphæð til að stað
festa eignaraðildina, og heim
ildin í 12. gr. frumvarpsins til
að ábyrgjast lántöku eða
taka að láni fé til framkv.
ætti að tryggja, að unnt verði
að Ijúka verkinu á áætluðum
tíma.
(Framsöguræðan er á síðu 2.)