Mjölnir - 01.03.1990, Blaðsíða 1

Mjölnir - 01.03.1990, Blaðsíða 1
Mjölnir Málgagn Alþýdubandalagsins í Siglufirdi. 2. tölublað, 53. árgangur, mars 1990 Fj árhags áætlun Bæjarsjóðs Siglufjarðar og stofnana hans fyrir árið 1990 Opið hús í Suðurgötu 10 alla sunnudaga kl. 16.00 Alþýðubandalagið Fjárhagsáætlun á kosningaári Fjárhagsáltlun bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árið 1990 var samþykkt á bæjarstjómarfundi fimmtudaginn 15. mars s.l. Um áætlunina var alger samstaða allra bæjarfulltnía og er það líklega í fyrsta skipti í mörg ár, sem alger samstaða tekst milli meirihluta og minnihluta. Fyrri umræða. Fj árhagsáætlunin varfyrst lögð fram til fyrri umræðu á bæjarstjómarfundi 15. febr. s.l. Síðan hefur áætlunin verið til frekari vinnslu í bæjarráði. Þegar áætlunin var lögð ffarn til fyrri umræðu var það vitað og um það samkomulag að áætlunin yrði unnin áfram í bæjarráði milli umræðna þar sem vitað var m.a. með tilliti til kjarasamninga og endurskoðun rekstrarliða, að hún myndi taka nokkrum breytingum milli umræðna. Breytingartillögur Frestur til að skila bieytingar- tillögum var til 6. mars. Á bæjar- ráðsfundinum lagði bæjarstjóri fram tillögu að fjárhagsáætlun endur- reiknaða frá þeirri gerð sem legjð hafði fyrir, miðað við breyttar forsendur varðandi ým sa liði. Samkomulag varð um smávægilegarbreytingarfráþeini geið sem bæjarstjóri hafði lagt fram á fundinum. Auknar tekjur, breytt verkaskipting. Með breytingu á veikaskiptingu iíkis og sveitarfélaga og nýjum lögum um tekjustofna sveitarfélaga aukast tekjurbæjarsjóðs veiulega. Munarþar mest um að sjúkrasamlag fer alf arið til ríkisins og framlög í Atvinnuleysistryggingasjóð falla niður. Þá munu nýjir tekjustofnar iýmka möguleika á tekjum. Aðhald, sparnaður Einkenni fjárhagsáæætlunarinnar eru aðhald og spamaður írekstri, litlar hækkanir þjónustugjalda og samdráttur í framkvæmdum. í framhaldi af niðurskurðartillögum fra síðasta hausti hefur verið unnið að niðurskurði og samdrætti í rekstri á flestum sviðum. Með þessum aðgerðum hefur tekist að ná veiulegum árangri. Litlar hækkanir þjónustugjalda Með tilliti til nýgerðra kjarasamninga og eindreginna tilmæla veikalýðshreyfingarinnar er öllum hækkxmum þjónustugjalda stillt í hóf. Vistgjöld á bamaheimilinu hækka ekki á árinu, aðgöngumiðar að sundhöll hækka um 6 %, og skólagjöld Tónskóla hækka um 7 %. Allt þetta miðast við að efnahagsleg markmið kjara- samninganna nái fram að ganga. Samdráttur framkvæmda Eins og flestum mun ljóst vera hafa framkvæmdir verið gífurlegar á undanfömum árum. Vegna þessa miklu framkvæmda hefur staða bæjarsjóðs versnað mjög. Það er því augljóst að draga verður verulega úr framkvæmdum og fara að greiða niður lán. Fjáihagsáætlunin ber með sér að nú er meiningin að fara að telja niður og rétta fjárhag bæjarsjóðs við, en það verður að gerast á nokkrum áram því að ekki er hægt að stöðva allar framkvæmdir. Niðurstöðutölur Ef farið er yfir niðurstöðutölur bæjarsjóðs era sameiginlegar tekjur 170.481. þús. og tekjuraf málaflokkum 29.990. þús eða samtals 220.471. þús. Rekstrargjöld era 207.350. þús. Af rekstrarliðum eru fjármagnsgjöld fyrirferðamest. Nettófjármagnskostn. er 84.722. þús. þar af era verðbætur og gengismunur af langtímaskuldum 43.100. þús. Veltufé frá rekstri er 36.221. þús. Fjárfestingar Gjaldfærð fjárfesting er samtals 9.950. þús. Þar era stærstu liðimirnýr kiikjugarður 3.200. þús. í gangstéttir 4.000. þús. og ífyllingu á Flatarsvæði 1.750. þús. Tæki og tól í skólana era upp á um 650. þús. Eignfærð fjáifesting. er samtals 19.750. þús sem skiptist þannig.: í dvalarheimili fyrir aldraða fara 2.500. þús. í lóð og leiktæki á lóð bamaheimilis fara 1.500. þús. Til íþróttahússins verðurvarið 4.000. þús. Til að ljúka leiguíbúðunum við Hvanneyraibraut 42 verður varið 11.050. þús. Mörg verkefni bíða Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist á undanfömum áram og mikið verið framkvæmt er samt margt ógeit. Til þess að hægt sé að halda áfram eðlilegri uppbyggingu bæjarfélagsins er nauðsynlegt að halda áfram að vinna bæjarfélagið út úr þeim fjárhags- þrengingum sem það er nú í. Fjárhagsvandinn. Bæjarráð hefur viðrað hugmyndir um hvernig best megi vinna bæjaifélagiðút úrþeim fjáihagsvanda sem það er nú í.Um þessar hugmyndir sem lagðarhafa verið fram, en ekki er tímabært að ræða opinberega, era allir bæjaifulltrúar sammála. Samstaða Það er mjög mikilvægt aö sú samstaða haldi áfram, því aðeins þannig náum viö bestum árangir bæjarfélaginu og íbúum þess til heilla, annars mun illa fara. S. H. er byggilegur bær, en framtíð hans er undir okkur sjálfum komin, með jákvæðu hugarfari og samstöðu þurfum við engu að kvíða.

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.