Mjölnir - 11.04.1990, Síða 1

Mjölnir - 11.04.1990, Síða 1
Mjölnir Málgagn Alþýðubandalagsins í Siglufirdi. 3. tölublað, 53. árgangur, 11. apríl 1990 Opid hús í Suðurgötu 10 alla sunnudaga kl. I6.00 Alþýðubandalagið Langþráðum áfanga náð. Nú um páskana verður nýtt íþróttahús tekið í notkun. HúsiÖ verÖur vígt og til sýnis fyrir bæjarbúa nú um páskahátíðina. Framkvæmdir við paricettlögn á gólfið hafa staðið yfir um nokkuit skeið. Húsið er bogahús úr límtré um 1180 m2, einnig er lokið byggingu tengigangs sem tengir saman sundhöllina og íþróttahúsið. Staðsetning og samteinging húsanna er hugsuð til að auðvelda allan rekstur og gera hann sem hagkvæmastan. í húsinu erhandboltavölluraf fullri stærð, körfuboltavöllur, tennisvöllur, þrír blakvellir og 6 badminton vellir. Stór bœtt aðstaða. Með tilkomu þessa húss gjörbreytist öll aðstaða til leikfimikennslu og allrar almennrar íþróttiðkunar. Aðstaðan stór batnar, nú þarf ekki lengur að loka sundlauginni yfir vetrartímann, þannig að hægt verður að stunda bæði sund og aðrar íþróttir allan ársins hring. Nýja íþróttahúsið tekið í notkun Byggingar- kostnaður. Byggingakostnaðurhússins eins og það stendur nú með þeim framkvæmdum sem unnar em í ár verður á verðlagi þessa árs um 60 milljónir kr. þar af hefur bæjarsjóður fjármagnað rúmlega helming. Áætlaðurbyggingakostnaðuríjúni 1983 var rúmar 5 milljónir kr. sem á verðlagi í ár er um 22 - 23 milljónir kr. Framkvœmdir. Á síðustu árum hafa verið miklar framkv. á sviði íþióttamála í Siglufirði. Endurbygging malarvallarins, bygging grasvallar, uppbygging að Hóli, uppbygging nýs skíðasvæðis í Skarðdalogbyggingíþrótahúss. Þegar lokið verður uppbyggingu skíða- svæðisins verður aðstaða fyrir íþróttaiðkun eins og hún gerist best hjá sambærilegum sveitarfélögum. "Gamla bakaríið" Taugatitringur í bakaríismálinu Eins og fram hefur komið í fréttum var nokkur taugatitringur í kringum “Gamla bakaríið” í þann mund er átti að afhenda íbúðimar, fram kom að bústjórinn neitaði að afhendaíbúðimar og taldi að bæjarsjóður hefði ekki staðið við verksamninginn og skuldaði búinu rúmar tíu milljónir kr. Þessar fullyrðingar bústjóra em út í hött, þar sem bæj arsjóður hefurstaðið að öllu leiti við vericsamning þann er gerður var við þiotabú Tréverks. í samninginum og fylgigögnum hans var veikstaða og greiðslustaða þrotabúsins tíunduð og samþykkti bústjóri samninginn án nokkur athugasemda. Bærinn hefur á allan hátt staðið við umræddan verksamning, þannig að kröfur bústjóra algerlega út í hött. Verkið farið fram úr áætlun. Staðreyndin mun vera sú að bústjóra hefur ekki tekist að framkvæma veikið á því verði sem hann samþykkti. Veridð mun hafa farið verulega fram úr kostnaðaráætlun bústjóra og erhann þvíítöluverðum vanda staddur, en þeim vanda getur hann ekki velt á bæjarsjóð, verksamningurþrotabúsins stendur eins og hver annar veiksamningur. Verktaki sem ekki getur leyst verk á því verði er hann tekur að sér ber tapið af verkinu, hann getur ekki velt þ ví á veikk aupa, þannig hafa fjöldamargir verktakar farið á hausinn, orðið gjaldþrota, ekki hefur þó enn heyrst að þiotabú sem hafi farið á hausinn, en það er kanske til. S. H. Virðisauki af snjómokstri. Sanngirnismál. í síðasta blaði Mjölnis var grein um virðisaukaskattinn og óréttlæti þess að ríkið legði virðisaukaskatt á snjómokstur og öryggistæki sjómanna. Fjármálaráðherra upplýsti á alþingi í síðustu viku að í ráðuneytinu væri í smíðum reglugerð þar sem kveðið væri á um aðsnjómokstur sveitarfélaga og Vegagerðarinnar væri undanþeginn virðísaukaskatti. Það er ánægjulegt að brugðist skuli svo skjótt við og þessi óréttláti skattur á snjómokstur afnuminn. Enn er þó óleyst hitt atriðið sem um gat í greininni en það er virðisaukaskattur á öryggisbúnaði sjómanna. Vonandi líður ekki á löngu þar til þetta atriði verður leiðrétt líka. S. H.

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.