Mjölnir - 11.04.1990, Page 6

Mjölnir - 11.04.1990, Page 6
Þankahrot, # ODÍnn vettvansfur. Bæjarmál 1 í brennidepli Framkvœmdir og skuldastaða Siglfirðingar ganga eftir nokkrar vikur aðkjörborði ogkjósa bæjarstjóm til næstu fjögurra ára. Nokkuð er rætt um erfiða fjáihags- stöðu bæjarfélagsins sem veldur því að nú þarf að hægja á framkvæmdum á vegum bæjarins, en þar hafa mörg og stór vexkefni verið á döfinni. Fyrir þremurmánuðum áttu bæjarbúar þess kost að skoða nýtt dvalarheimili aldraðra dagana áður en flutt var inn í það. Fyrir hálfum mánuði skoðuðum við íbúðimar í hinu fræga “Gamla bakarú”. Alit allra sem þar litu inn er á einn veg "fyrirtaks vandaðar íbúðir". Nú á næstunni mun gefast tækifæri til að skoða nýtt íþróttahús áður en það verður tekið í notkun. Þetta em þá aðeins fáar af þeim mörgu og stóm framkvæmdum sem bæjarstjómin hefur átt fmmkvæði að nokkur undanfarin ár. Minna má á stórframkvæmdir í gatnagerð, endur- bætur á vatnsveitu, nýjan knatt- spymuvöll, nýjar skíðalyftur, nýtt tónskólahú s, nýja slökkvistöð og fleira. Samkomulag í bæjarstjóminni hefur verið allgott ef undan er skilið hið fræga og einkennilega “flipp” Alþýðuflokksins snemma á kjöitímabilinu, sem enn hefur ekki fengist frambærileg skýring á . Frjálshygjan og fjárhagsvandinn Fjáihagsvandi bæjarins er þó ekki eingöngu afleiðing af miklum framkvæmdum. Fijálshyggjuveiranlét til sín taka hér eins og víðar og lék atvinnulífið hart. Hér sem víðar urðu fyrirtæki gjaldþrota og drógu önnur niður með sér í fallinu. Bærinn og stofnanir hans töpuðu milljónum eða miUjónatugumíþessum hremmingum. Þegar fijálshyggjan loksins var stöðvuð var þjóðargjaldþrot fyrirsjáanlegt framundan, eins og núverandi forsætisráðherra benti þá réttilega á. Alþýðubandalagið kom inn í ríkisstjómina í stað Sjálfstæðis- flokksins. Þjóðfélagið og atvinnulífið ernú á batavegi, en batinn gengur enn hægt, og það mun taka möig ár að sigrast á afleiðingum þessarar fáránlegu stjómarstefnu sem breytti mesta góðæri í 1100 áia þjóðarsögu í efnahagslega maitiöð með þúsundum gjaldþrota. Það þýðir ekkert að halda því fram að öll þessi gjaldþrot hafi stafað af heimsku og skammsúni þeirra sem fyrir þeim uiðu og geti þvíbara sjálfum sér um kennt. Mörg þeirra, ef til vill flest, vom harmleikir sem ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar og stjómarstefna hennar bar fulla ábyrgð á. Raunhœf stefna í atvinnu- og bœjarmálum Það framkvæmda- og framfaratímabil sem staðið hefúr hér yfir um nokkurt árabil og gert Siglufjörð að miklu betri bæ og eftirsóknarverðari til búsetu en áður var er nolJcumveginn jafngamalt meirihlutaaðstöðu Alþýðubanda- lagsins í bæjarstjóminni. Þar áður var Alþýðubanudlaginu haldið utan áhrifa í bæjarstjóm svo áratugum skipti. Félagsleg stuna þess samræmdist ekki draumum um stórvinninga í síldaihappdrætti eða um undursamlega handleiðslu og forustu draumaprinsa sem breyttu í gull öllu sem þeir snertu og létu síðan mola af nægtarborðum sínum hijóta niður til sauðsvarts almúgans. Félagsleg atvinnustefna Alþýðubandalagið hefur boðað félagslega stefnu sem æskilegasta valkostinn í undirstöðugreinum atvinnulífsins.Reynslan hefur sýnt að fyrir landsbyggðina er hún heppilegust, enda standa sveitarfélög, ríkið, opinberir sjóðir og samvinnufélög undir aðalþáttum atvinnulífsins í heilum landshlutum. Þessir aðilar em háðirfólkinu í byggðarlögunum. Þess eru mörg dæmi að eigendur einkafyrirtækja sem vom undirstaða byggðarinar í fjölmennum byggðarlögum hafi flutt þau burtu, sundrað þeim í erfðaskiptum eða hreinlega drukkið þau upp, ef svo má að orði komast, án þess að hægt væri að hindra það. Ef óstjóm er á félagslegu fyrirtæki hefur fólkið í byggðarlaginuhinsvegar yfirleitt möguleika til áhrifa og breytinga. Áhrif á landsmálin Sveitarstjómarkosningamar hafa áhrif á landsmálin, þær eru skoðanakönnun um álit manna á stjórnarfari og stefnum. Tap Alþýðubandalagsin s í kosningum í maí yrði lagt út sem vantraust á hina félagslegu stefnu, jafnt í landsmálum sem bæjarmálum, en ávinning fyrir fijálshyggjustefnu Þorsteins Pálssonar og fylgismanna hans. Fijálshyggjuöflin mundu færast í aukana, kratar em raunar samkvæmt blaðafregnum byijaðir að makka við íhaldið á bal við tjöldin. í kosningunum í næsta mánuði höfum við bæði áhrif á landsmálum og málin sem varða nánasta umhverfi okkar. Látum því vandlega íhugun en ekki tilviljanir ráða afstöðu okkar. Benedikt Sigurðsson Sumardvöl fatlaðra á Norðurlandi vestra Svœðisstjórn auglýsir eftir umsóknum vegna sumar- dvalar fatlaðra sumarið 1990. Sumardvölin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Að aukl verður boðið upp á sumardvöl að botni í Eyjafirði ísamstarfi við Svœðisstjórn á Norðuriandi eystra tímabilið 20. júní til 20. ágúst. Umsóknir skulu berast skrifstofu Svœðisstjómar að Ártorgi 1 Sauðárkróki fyrir 1. maí n.k. Upplýsingar gefnar í síma 95-35002. Svœöisstjórn málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra. Konur í sveitarstjórnum. Ein af þeim kröfum í átt til jafnréttis er sú'aðfjölgakonum í sveitarstjómum. f könnun sem jafnréttisráð lét gera kemur fram að einungis 19% sveitarstjómarmanna eru konur. Þar kemur einnig fram að 61 af hundraði aðalmanna segist ætla að hætta við næstukosningar. Aðalástæðumar sem gefnar em upp em tímaskortur, neikvæð reynsla, persónulegar aðstæður o.fl. Það hefur oft gengið frekar erfiðlega að fá konur til að taka sæti ofariega á listum flokkanna. Mérhefur oft fundist ómaklega vegið að karlpeningnum í þeim efnum, sagt er sem svo að þeir kæri sig ekkert um konur. Þetta er að mínu mati ekki rétt, nema síður sé. Ég held að ef okkur konum er einhver alvara með allri þessari umræðu um þátttöku kvenna í sveitarstjómum, þá þurfum við að standa betur saman. T.d. með því að bjóða fram aðstoð okkar við bamapössun svo eitthvað sé nefnt. En ein af ástæðunum sem konur oft nefna erfundartíminn sem yfirieittereftirað bamaheimili loka og skólum lýkur. E.t.v. væri hægt að breyta þessum fundaitíma, þó held ég að það gæti verið erfitt þar sem ekki geta allir fengið frí úr sinni vinnu. Konur geta einnig haft áhrif víðar t.d. í nefndum, foreldrafélögum o.fl. Sú vinna sem þar er innt af hendi getur bæði verið skemmtileg og gefandi. Að ldcum: Konur hvar sem þiö eruð í pólitík, athugið þessa möguleika þ.e. aö aöstoða hver aöra til áhrifa. Brynja Mjölnir 6 11. apríl 1990

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.