Fylkir - 13.01.1950, Blaðsíða 1
aiHEimuwnuHinnnHnanmHnuuiNninBUUBBiUEMHiuuiuHuuBU
M á ■ n 2 g n
Sjáiístaeðis-
ffokksins
2. árgangur.
Vestmannaeyjum, 13. jan. 1950
2. tölublað
^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■□HHHBHHHHHBHHHBHHBiSHHHHHHKHHSiBHHHHHHHHBHBHHKHUHHHHHDBBHHHHHBHHHHBB
V.s. „HELGI” VE 333
íerst við Faxasker 7. jan. 1930
Með skipinu fórust þessir menn:
HcHgrsmur Júlíusson, skipstjóri, var fædd-
ur 3. 7. 1906. Giftur Klöru Tryggvadóttur. Átti
han nfyrirtveim ungum sonum að sjá og þrem-
ur stjúphörnum, sem eru milii fermingar og tví-
tugs. Hallgrímur heitinn var einn af þeim far-
mönnum hér í Eyjum, sem átti óskipta aðdáun
allra, er þekktu hann. Hann sýndi svo glöggt,
hvert þrek hans og dugnaður var, er hann öll
stríðsárin sigldi „Heiga" til Englands.
Gísli Jónasson, stýrimaður, var fæddur 26.
9. 1917, ættaður frá Siglufirði. Hann var ó-
kvæntur, en átti fyrir öldruðurn föður að sjá.
Hann harði verið stýrimaður á v.s. „Helga
Helgasyni" með mági sínum Arnþóri Jóhanns-
syni, skipstjóra.
Jón Bjarni Valdemarsson, 1. vélstjóri.
Fæddur 25. 9. 1915. Kvæntur Guðrúnu Guð
mundsdóttur, og átti fyrir ungu barni að sjá.
Gústav Runólfsson, 2. vélstjóri. Fæddur
26. 5. 1922. Kvæntur Huldu Hallgrímsdóttur.
Lætur hann eftir sig fjórar ungar dætur.
Sigurður Ágúst Gíslason, háseti. Fæddur
1. 9. 1923, ókænturen átti fyrir aldraðri móður
að sjá, Önnu Jónsdóttur, Brekastíg 36, hér.
■
■
■
■
n
r.
p
r
t
B
. ,,T r..~a<r ■
■
E
■
■
■
■
■
■
■
Óskar Magnússon, háseti. Fæddur 15. 8.
1927. Ókvæntur.
Hálfdán B. Brynjólfsson, matsveinn. Fædd
ur 25. 12. 1926. Kvæntist 31. 12. s.l. Öiinu
Sigríði Þorsteinsdóttur.
Farþegar voru þrír:
Arnþór Jóhannsson, skipstjóri. Fæddur 12.
3. 1907. Ættaður frá Selvík á Árskógsströnd í
Eyjafirði. Flutti ungurtii Siglufjarðar og kvænt
ist þar. Hann var þjóðkunnur síldaraflamaður,
svo fáir voru hans jafningjar. Hann tók við v.s.
„Helga Helgasyni" VE. 343, þegar frá byrjun
Allir sem voru með honum til sjós bera honum
einum rómi það lof, sem einkennir hvers manns
hugljúfa.
Séra Halldór Einar Johnson. Fæddur 12.
9. 1885. Hann var skagfirðingur að ætt en fór
ungur tið Ameríku og hafði dvalið þar um 40
ár, þegarer hann á s.l. sumri kom heim til þess
að heimsækja ættingja og fornar slóðir. Hann
hefir dvalið hér í Vestmannaeyjum í vetur við
kennslu.
Þórður Bernharðsson, 16 ára ættaður úr
Ólafsfirði. Hefir dvalið hér að undanförnu.
■
■
■
■
■
E
E
■
■
■
■
K
R
r
■
■
ú
c
ia
Laugardagsins 7. janúar 1950 mun lengi
minnst hér í Vestmannaeyjum með trega. Þess
sáust svo glögg merki, þegar hin vofeiflega fregn
barst um bæinn, að vélbáturinn Helgi VE. 333
hefði farist við Faxasker, hve náið hún snart
hjarta allra Vestmannaeyinga.
Engum er það Ijósara en þeim, sem alast upp
með og lifa lífinu samhliða sjómönnunum hve
mikla fórn þeir færa voru litla þjóðfélagi, þegar
þeir gera störfin á sjónum að lífsstarfi. Lífsstarf
þessara manna er undirstaða þjóðfélags vors. I sjó
mannsstarfinu finna þeir sjálfir bezt tilgangi lífs-
ins náð, sjálfum sér og öðrum til hagsbóta. Hvergi
á vettvangi lífsins er baráttan jafn hörð, sem á
sjónum. Er það ekki einmitt þetta forna kappa-
blóð, sem svellur í æðum þeirra, sem gerir þá svo
fórnfúsa til starfs? Þjóðin öll dáir það þrek og holl-
ustu, sem þessir menn sýna henni. „Því er svo sárt
að sjá á bak þeim sönnu góðu drengjum".
Nú hefur verið höggvið svo stórt skarð í vort
litla bæjarfélag, sem er því óbætanlegt. Því drjúp-
um vér höfði í hljóðri minningu um þá menn, sem
svo sviplega voru kallaðir burtu af vettvangi þessa
lífs. Vér sendum þeim þakkir fvrir allt þeirra -
í þágu vor. Sameinumst öll í þeirri bæn, að Ak
ur Guð sé ástvinum þeirra nálægur og styrki f
sorgum þeirra.