Fylkir


Fylkir - 13.01.1950, Qupperneq 1

Fylkir - 13.01.1950, Qupperneq 1
aiHEimuwnuHinnnHnanmHnuuiNninBUUBBiUEMHiuuiuHuuBU M á ■ n 2 g n Sjáiístaeðis- ffokksins 2. árgangur. Vestmannaeyjum, 13. jan. 1950 2. tölublað ^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■□HHHBHHHHHBHHHBHHBiSHHHHHHKHHSiBHHHHHHHHBHBHHKHUHHHHHDBBHHHHHBHHHHBB V.s. „HELGI” VE 333 íerst við Faxasker 7. jan. 1930 Með skipinu fórust þessir menn: HcHgrsmur Júlíusson, skipstjóri, var fædd- ur 3. 7. 1906. Giftur Klöru Tryggvadóttur. Átti han nfyrirtveim ungum sonum að sjá og þrem- ur stjúphörnum, sem eru milii fermingar og tví- tugs. Hallgrímur heitinn var einn af þeim far- mönnum hér í Eyjum, sem átti óskipta aðdáun allra, er þekktu hann. Hann sýndi svo glöggt, hvert þrek hans og dugnaður var, er hann öll stríðsárin sigldi „Heiga" til Englands. Gísli Jónasson, stýrimaður, var fæddur 26. 9. 1917, ættaður frá Siglufirði. Hann var ó- kvæntur, en átti fyrir öldruðurn föður að sjá. Hann harði verið stýrimaður á v.s. „Helga Helgasyni" með mági sínum Arnþóri Jóhanns- syni, skipstjóra. Jón Bjarni Valdemarsson, 1. vélstjóri. Fæddur 25. 9. 1915. Kvæntur Guðrúnu Guð mundsdóttur, og átti fyrir ungu barni að sjá. Gústav Runólfsson, 2. vélstjóri. Fæddur 26. 5. 1922. Kvæntur Huldu Hallgrímsdóttur. Lætur hann eftir sig fjórar ungar dætur. Sigurður Ágúst Gíslason, háseti. Fæddur 1. 9. 1923, ókænturen átti fyrir aldraðri móður að sjá, Önnu Jónsdóttur, Brekastíg 36, hér. ■ ■ ■ ■ n r. p r t B . ,,T r..~a<r ■ ■ E ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ Óskar Magnússon, háseti. Fæddur 15. 8. 1927. Ókvæntur. Hálfdán B. Brynjólfsson, matsveinn. Fædd ur 25. 12. 1926. Kvæntist 31. 12. s.l. Öiinu Sigríði Þorsteinsdóttur. Farþegar voru þrír: Arnþór Jóhannsson, skipstjóri. Fæddur 12. 3. 1907. Ættaður frá Selvík á Árskógsströnd í Eyjafirði. Flutti ungurtii Siglufjarðar og kvænt ist þar. Hann var þjóðkunnur síldaraflamaður, svo fáir voru hans jafningjar. Hann tók við v.s. „Helga Helgasyni" VE. 343, þegar frá byrjun Allir sem voru með honum til sjós bera honum einum rómi það lof, sem einkennir hvers manns hugljúfa. Séra Halldór Einar Johnson. Fæddur 12. 9. 1885. Hann var skagfirðingur að ætt en fór ungur tið Ameríku og hafði dvalið þar um 40 ár, þegarer hann á s.l. sumri kom heim til þess að heimsækja ættingja og fornar slóðir. Hann hefir dvalið hér í Vestmannaeyjum í vetur við kennslu. Þórður Bernharðsson, 16 ára ættaður úr Ólafsfirði. Hefir dvalið hér að undanförnu. ■ ■ ■ ■ ■ E E ■ ■ ■ ■ K R r ■ ■ ú c ia Laugardagsins 7. janúar 1950 mun lengi minnst hér í Vestmannaeyjum með trega. Þess sáust svo glögg merki, þegar hin vofeiflega fregn barst um bæinn, að vélbáturinn Helgi VE. 333 hefði farist við Faxasker, hve náið hún snart hjarta allra Vestmannaeyinga. Engum er það Ijósara en þeim, sem alast upp með og lifa lífinu samhliða sjómönnunum hve mikla fórn þeir færa voru litla þjóðfélagi, þegar þeir gera störfin á sjónum að lífsstarfi. Lífsstarf þessara manna er undirstaða þjóðfélags vors. I sjó mannsstarfinu finna þeir sjálfir bezt tilgangi lífs- ins náð, sjálfum sér og öðrum til hagsbóta. Hvergi á vettvangi lífsins er baráttan jafn hörð, sem á sjónum. Er það ekki einmitt þetta forna kappa- blóð, sem svellur í æðum þeirra, sem gerir þá svo fórnfúsa til starfs? Þjóðin öll dáir það þrek og holl- ustu, sem þessir menn sýna henni. „Því er svo sárt að sjá á bak þeim sönnu góðu drengjum". Nú hefur verið höggvið svo stórt skarð í vort litla bæjarfélag, sem er því óbætanlegt. Því drjúp- um vér höfði í hljóðri minningu um þá menn, sem svo sviplega voru kallaðir burtu af vettvangi þessa lífs. Vér sendum þeim þakkir fvrir allt þeirra - í þágu vor. Sameinumst öll í þeirri bæn, að Ak ur Guð sé ástvinum þeirra nálægur og styrki f sorgum þeirra.

x

Fylkir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.