Fylkir - 20.01.1950, Side 1
Mólgagn
Sjálfstæðis-
flokksins
3. tölublað.
Það hefði ekki þótf spámann-
lega vaxinn maður, sem hefði
haldið því fram við komu bæjar-
togaranna, að aðalfyrirtæki
kommúnista hér, yrði fyrst allra
til þess að fá útgerðina dæmda
og hóta aðför að lögum innan
15 daga ef ekki yrði greidd um-
yrðalaust matarúttekt skipverja.
Miðað við önnur hliðstæð við-
skipti, er réttmæti sktrldar þeirr
ar, sem eftir stendur hjá K.f.
Verkamanna siðferðilega séð
vægast sagt mjög hæpin þeg-
ar tillit er tekið til þess, að Kaup
félagið hefur aldrei gefið bæjar-
útgerðinni nokkurn afslátt af
viðskiptunum, þrátt fyrir það, að
matarúttekt skipanna er lang-
samlega stærstu viðskiptin, sem
nokkurntíma hafa verið lögð
upp í hendur einnar verzlunar
hér.
Þegar byrjað var á rekstri
skipanna, lögðu fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í útgerðarstjórn,
það til, að viðskipti þessi yrðu
boðin út, meðal verzlana hér í
bænum og við þann aðila samið,
sem hagkvæmust kjör byðu.
Þetta máttu fulltrúar krata
og kommúnista ekki heyra
nefnt. heldur var farið með við-
skiptin beina leið I kaupfélagið
án nokkurra samninga um af-
slátt. Enda flestum kunnugt, að
fulltrúar krata höfðu fyrirfram
fallist á þetta við myndun nú-
verandi meirihluta bæjarstjórn-
ar.
Til fróðleiks er rétt að rifja
upp hvernig samtök útgerðar-
manna fara að í hliðstæðum til-
fellum þó í mun smærri stíl séu.
Um s.l. áramót, er matstofan
að Strandveg 80 tók til starfa,
var þegar samið við ákveðna
verzlun trm útvegun á öllum mat
Framh. á 3. síðu
Fyrsti dómurinn á
• ' ■ ■ \ <(' bJ*» 'X
;; Bæjarútgerd Vestm.eyja
Laugardaginn 14. jan. s.l. var í Sjó- og
verzlunardómi Vestmannaeyja upp
kveðinn svohljóðandi dómur í mólinu
Kaupfélag Verkamanna, Vestmanna-
eyjum gegn Bæjarútgerð Vestmanna-
eyja.
Því dæmist rétt vera:
Stefndir Ársæll Sveinsson, Björn Guð-
mundsson, Hrólfur Ingólfsson, Sigurður
Stefónsson og Sigurjón Sigurðsson fyrir
hönd Bæjarútgerðar Vestmannaeyja,
Vestmannaeyjum greiði stefnandanum
Friðjóni Stefónssyni fyrir hönd Kaupfé-
lags Verkamanna Vestmannaeyjum, kr.
41.549,83, ósamt 6% órsvöxtum frá 30.
nóvember 1949 til greiðsludags og kr.
3.675,00 í málskostnað innan 15 daga
frá lögbirtingu dóms þessa að viðlagðri
aðför að lögum.
MINNINGARORÐ
Brynjólfur G. Guölaugsson
Fæddur 30. júlí 1921
Dáinn 26. desember 1949
Þetta litla byggðarlag hefur
margt afhroðið goldið í fang-
brögðunum við Ægi, og marga
fórnina orðið að færa fyrir þá
lífsbjörg sem sjómennirnir hafa
úr hafsins djúpi dregið. En und-
anfarin ár hefur forsjónin forð-
að okkur frá stærri áföllum, og
og maður var næstum farinn
að trúa, að aukin tækni og betri
útbúnaður skipanna myndi forða
okkur frá fleiri voðahöggum —
en þá kom reyðarslagið — á
skömmum tíma fer hópur
varskra drengja í hafið og
drukknar. Enn einu sinni hefur
hafið innheimt sinn skatt, og að
því að manni virðist miskunnar-
lausara en nokkru sinni fyrr.
Einn í hópi þessara góðu
drengja var Brynjólfur Gunnar
Guðlaugsson er tók út af togar-
anum Bjarnarey á 2. dag jóla
s.l.
Brynjólfur heitinn var fæddur
hér í Eyjum 30. júlí 1921 sonur
hjónanna Valgerðar Guðmunds-
dóttur og Guðlaugs Brynjólfs-
sonar útgerðarmanns og skip-
stjóra. Heimili foreldra Brynjólfs
var sjó- og útgerðarmannsheimili
þar sem allt snerist um útgerð
og sjósókn.
Mun Binni — eins og hann í
daglegu tali var nefndur meðal
þeirra, sem hann þekktu — hafa
drukkið í sig með móðurmjólk-
inni áhuga fyrir sjó og sjósókn.
Hann byrjaði því svo að segja
strax eftir fermingu að stunda
sjó, og reri á ýmsum bátum hér.
En hugur Brynjólfs stefndi
hærra. Markið var að komast
á Stýrimannaskólann í Reykja-
vík. Til þess að öðlast réttindi
til að sækja Stýrimannaskólann
var Brynjólfur heitinn á ýmsum
stærri skipum Eyjaflotans um
nokkurt skeið, en að réttindum
fengnum settist hann í stýri-
mannaskólann 1942 og lauk
þar góðu próf! eftir tveggja
vetra nám.
Þegar bæjartogararnir komu,
var Binni einn meðal þeirra dug
miklu sjómanna af yngri kyn-
slóðinni er þangað réðust. Var
svo um hann sem fleiri að honn
í upphafi þekkti lítið til verka
á togara, en meðfæddir sjó-
mannshæfileikar og dugnaður
skipuðu honum fljótlega í röð
beztu manna um borð, enda
vann hann sér traust og virð-
Framhald á 4. síðu.
X D-listinn er listí Sjálfsfæðisflokksins