Fylkir


Fylkir - 24.01.1950, Side 1

Fylkir - 24.01.1950, Side 1
Málgagn Ssálístraðis- flokksin i árgangur. Vestm.eyjum 24. janúar 1950 4. tölublað. Málefnayfirlýsing Sjálfstæðis- flokksins við bæjarstjórnarkosn- ingarnar 29. janúar 1950 Sjálfstæðisflokkurinn telur rétt að birta nú þegar viðhorf sitt til hinna ýmsu mál- efna kaupstaðarins, þannig að kjósend- ur geti fyrirfram gert sér grein fyrir við- horfi flokksins til þessara mála, fái hann hreina meirihlutaaðstöðu að kosn- ingunum loknum. 1. Fjármál. Til greiðslu þeirra óreiðuskulda sem safnast- hafa á bæinn og fyr irfæki hans undanfarið kjörtíma- bil, verði fengið eitt heildarlán til sem lengst tíma. Flokkurinn gerir sér alveg Ijóst, þó ekki liggi fyrir nein heildarskýrsla þar um, að skuldir þessar eru orðnar svo miklar, að þær verða alls ekki, auk alls ann ars, lagðar á bæjarbúa í útsvör- um á næstu árum. Þá telur flokkurinn sjálfsagt, að fjárhagur rafveitunnar og hafnarinnar verði fráskilinn fjár- hag bæjarins og telur þegar fengna reynslu fyrir því, að fyr- irkomulag það, sem upp var tek ið fyrir nokkru í þessum efnum hafi reynzt miður heppilegt. 2, Hafnarmál. Haldið verði áfram dýpkun innsiglingarinnar og hafnarinn- ar og lokið verði sem fyrst við byggingu bryggjunar , sem nú er í smíðum í Friðarhöfn. Sérstök áherzla verði lögð á, og þegar hafist handa um bygg- ingu bátakvíar. Auk þess verði unnið að því án tafar, að skipuleggja innan- verða höfnina og jafnhliða at- hugaðir möguleikar fyrir inn- siglir.gu gegnum Eiðið. Flokkurinn telur rétt, að at- hugað verði hvort heppilegra sé, að unnið verði að því, að höfnin verði tekin í tölu lands- hafna, eða byggð upp á sama grundvelli og verið hefur. 3. Raforkumál. Lögð verði áherzla á að full- gera rafveituna. Jafnhliða verði unnið að því að fá rafmagn frá ,fastaland- inu" svo fljótt sem auðið er og að Vestmannaeyjar njóti í þessum efnum aðstoðar af Mar- shalifé, svo sem dæmi eru fyrir um aðra kaupstaði og lands- hluta. Gjaldskrá rafveitunnar verði endurskoðuð. Áherzla; verði lögð á, að raf- veitan fái innflutningsleyfi fyrir og flutt verði inn nauðsynleg rafmagnstæki til heimilsnotkun- ar. 4. Menningarmál Bygging Gagnfræðaskólans verði fullgerð sem fyrst. Hafist verði handa um byggingu eða kaup á húsi fyrir húsmæðra- skóla og vili flokkurinn í því sambandi benda á, að úr ríkis- sjóði er lagr fram allt að 75% af kostnaðarverði slikra skóla. Ennfremur mun flokkurinn beita sér fyrir stofnun vélstjóra- og sjóvinnuskóla. Hlúð verði að barnaleikvellin- um á Stakkagerðistúninu með því að gera leiktæki betri og fjöl breyttari og aðbúnaður allur bættur. Ennfremur verði barna- leikvöllunum fjölgað eftir því, sem þörf krefur. Flokkurinn lýsir yfir, að hann mun stuðla að bindindisstarf- semi og annarri heilbrigðri menningarstarfsemi hér í bæ. 5. íþróttamál. Iþróttasvæðið ofan Landa- kirkju verði fullgert og sundlaug bæjarins verði yfirbyggð og hlynnt verði eftir föngum, að öðru leyti, að íþróttastarfsemi í bænum. 6. Heilbrigðismál. Athugað verði um endurbæt- ur á Sjúkrahúsi bæjarins eða byggingu nýs sjúkrahúss. Flokkurinn mun beita sér fyrir byggingu sóttvarnahúss. Enn- fremur fyrir endurbótum á heilsuverndarstöðinni eða bygg- ingu nýrrar stöðvar. Endurbætt verði aðstaða til Ijóslækninga í barnaskólanum. Þvottahús Sjúkrahússins verði fullgert hið bráðasta. 7. Arvmnumál. Vegakerfið verði lagfært og unnið verði að því skipulags- bundið og markvisst að stein- steypa aðalvegi bæjarins. Enn- fremur verði keyptur nýtísku veghefill. Flokkurinn telur brýna nauð- syn bera til þess, að ræktun Keimaeyjar verði hraðað og viil í því skyni veita allan þann sfuðning, sem verða má, bænd- um og öðrum þeim, sem að jarð ræktarframkvæmdum og mjólk- urframleiðslu vinna. Ræktunarvegirnir verði teknir í tölu þjóðvega. 8. Samgöngumál. Krafa verði gerð til Rikisskip um, að það haldi uppn föstum ferðum til Eyja ákveðinn dag, að minnsta kosti einu sinni í viku með einu af skipum sínum. Unnið verði að stækkun flug- vallarins og ennfremur að því, að fargjöld með flugvélum til og frá Eyjum verði lækkuð. 9. Elliheimilið verði fullgjört og starfræksla þess hafin hið allra fyrsta. 10. Brunamái. Brunavarnir verði efldar svo sem unnt er. Unnið verði þegar í stað að útvegun þeirra tækja, sem á vantar til að fullgera brunabíl þann, se mbærinn hefur átt í smíðum s.l. ár. Sjóveita verði lögð hæfilega víða um bæinn til afnota fyrir slökkvil iðið. 11. Sorphreinsun. Keyptur verði nýtízku sorp- hreinsunarbíll eins og þegar hef- ur verið samþykkt af bæjarstjórn eftir tillögu sjálfstæðismanna.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.