Fylkir


Fylkir - 21.01.1955, Side 1

Fylkir - 21.01.1955, Side 1
Mólgagn Sjálfstæðis- fiokksinr 7. argangur. Vestmannaeyjum 21. jan. 1955. 3. tölublað. Bæft aðstaða fil flugíerða. Hinn 3. september s.i. samþykkti bæjarráð að senda Flugmála- stjórninni eftirfarandi ályktun: „Bæjarráð leyfir ér að beina eftirfarandi til Flugmálastjórnar- innar: 1. Að hafizt verði handa um byggingu nýrrar flugbrautar (þver- brautar). „Bæjarráð ieyfir sér að beina eftirfarandi til Flugmálastjórnar- engan veginn komnar í viðunandi horf, fyrr en byggð hefur verið þverbraut við þá flugbraut, sem fyrir er, þar sem hér hagar einmitt þannig til, að iðulega, þegar ef til vil! bezt er flugveður, er lending flugvéla á vellinum útiiokuð, sökum vöntunar á flugbraut, sem hægt væri að lenda á í norðlægum eða suðiægum áttum. 2. Að í öryggisskyni verði sett upp Ijósakerfi við flugbrautina og þá einnig á þá staði í nágrenni hennar, sem nauðsynlegt getur talizt. 3. Að byggt verði flugskýli við flugbrautina, það stórt, að unnt sé að varðveita þar þær farþegaflugvélar, sem nú eru í förum milli Vestmannaeyja, þannig að flugsamgöngur hingað þurfi ekki að truflast að öllu við, að vélarnar verði veðurtepptar hér á ber- svæði eða að þær þurfi að leggja af stað héðan í tvísýnu veðri". Allt frá því er llugferðir til Vestmannaeyja hófust á ármu 1946, hel’ur meira eða minna verið um þær ritað. 1‘egar í upp hafi var það ljóst, að með þeim flugvelli, sent tekinn var í notk un á því ári, var í raun og veru ekki tjaldað til margra nátta, heldur var hann upphafið að því, sem koma skyldi, sem sé flugvöllur, sem nothæfur yrði, af hvaða átt sem vindurinn lrlési þann cða þann daginn. Á þeim árurn, sem liðin eru, síðan flugvöllurinn var tekinn t notkun, hafa verið gerðar ýrnsar umbætur á honum. Unnið hefur verið að lengingu hans til aust- urs og rutt úr Sæfellsnefinu, sem gerði aðflug mjög viðsjár- vert að austan. Þessari lengingu er enn ekki lokið. Þá hefur ver ið komið nýjum tækjum og út- búnaði í flugstjórnarhúsinu og það fært vestar. En þótt þessar umbætur og ýrnsar aðrar séu góðar, þá eru þær engan veginn fulbiægjandi, og halda verður á- fram að endurbæta aðstöðuna til flugs hér í Eyjum og skapa bæði þeim, sem flugþjónustuna annast, og hinum, sem hennar •eiga að njóta, viðunandi að- stöðu, miðað við þá kosti, sem Itér eru fyrir hendi, og Jrær kröf ur, sent gera Jrart og gera má til livers konar astöðu eða útbún- aðar, sem nútíma tækni getur uppfyllt. Þverbraut. Margt og mikið hefur verið rætt og ritað um þörfina á þver- braut á þá braut, sem fyrir er. Það væri í rauninni að bera í bakkafullan Irekinn að endur- taka þær röksemdir hér, sem fyrir Jrví hafa verið færðar, enda var það að nokkru gert hér í blaðinu á s.l. hausti. Þá er Flugfélag íslands opn- aði hina nýju farþegaafgreiðslu sína hér í bæ í vetur, var m. a. viðstaddur hér fulltrúi Flug- málastjórnarinnar, hr. Sigfús Guðmundsson. í hófi því, er forráðamenn Flugfélagsins buðu til við þetta tækifæri, ræddi Sig- fús nokkuð um flugmálin að því er Vestmannaeyinga varðar. Kvað hann þær mjög ofarlega á blaði um fyrirhugaðar fram- kvæmdir við gerð og útbúnað flugvalla og lendingabóta. Um þverbraut þá, sem gert hafði verið ráð fyrir og hér um ræðir, sagði hann, að flugmálastjórnin hefði tekið þetta mál til ræki- legrar athugunar. Sú athugun hefði leitt f ljós margvíslega tæknilega örðugleika, sem enn væri ekki vitað, hvernig leysast mundu. Væri þar af leiðandi ekki unnt að ráðast í byggingu Jressarar brautar að svo stöddu, eða ekki fyrr en séð yrði, hvern ig Jressi mál leystust. Hann kvað flugmálastjórnina hafa fullan hug á framkvæmdum og þau orð hans gefa okkur vissulega vonir um, að af framkvæmdum geti orðið í náinni framtíð. Nauðsynlegt er að halda þessu máli vel vakandi, og er gott til þess að vita, að bæjarstjórnin hefur enn einu sinni ítrekað ósk ir sínar og bæjarbúa í þessum Arshátíð Sjálf- sfæðisfélaganna í Vestmannaeyjum verður hald in á morgun, laugardag, ltinn 22. Jr. m. Eins og kunnugt er, var ákveð ið að hafa árshátíð Sjálfstæðis- félaganna að þessu sinni í tvennu lagi, þannig að Félag ungra sjálfstæðismanna liefði sína eig- in hátíð út af fyrir sig, en eldri félögin aftur sér. Reynslan hef- ur sýnt, að langtum færri hafa kornizt að en vildu, og því var horfið að bessu ráði. F. U. S. hélt sína árshátíð s.l. laugardag og nú er röðin komin að liinum eldri. Um nánara fyrirkomulag há- tíðarinnar að öðru leyti vísast til auglýsingar á öðrum stað í blaðinu. En rétt er að benda mönnum á, að tryggja sér að- göngumiða í tíma, en þeir verða seldir í Samkomuhúsinu í dag frá kl. 5—7 e. h. Reynt verður að vanda til hátíðarinnar svo sem framast er unnt. efnum. Þverbrautin er samt ekkert lokatakmark, heldur ber að stefna að öðrum umbótum jafn liliða. Þá er það ljósakerfið, sem minnzt er á í ályktun bæj- arráðs. Ljósakerfi. Flugmálastjórnin hefur látið koma fyrir ljósaútbúnaði við lendingarstaði á nokkrunt stöð- um úti um land. Að slíku er mjög mikið hagræði og öryggi, og er þar skemmst að minnast, er stór fjögurra hreyfla flugvél nauðlenti á flugvellinum við Sauðárkrók. Sú lending var því aðeins kleif, að þar var fyrir hendi fullkominn ljósaútbúnað- ur. En ljós þurfa að vera víðar en meðfram sjálfum flugbraut- unum. Þeim þarf að koma fyr- ir á þeim stöðum, sem hæst ber í nágrenni liugvallar. Nokkrir Framhald á 2. síðu. Fréffatilkynning Hundrað ára afmælis frjálsr- ar verzlunar á íslandi verður minnzt með hátíðahöldum 1. apríl næstkomandi, og hefur undirbúningsnefnd ákveðið að hafa almenna hugmyndasam- keppni um merki fyrir afmælið. Verzlunarstéttin stendur öll að hátíðinni og hafa Verzlunar ráð Islands, Santband smásölu- verzlana og Samband íslenzkra samvinnufélaga skipað rnenn til að undirbúa afmælið. Óskar nefndin eftir hugmyndum að merki, sem gæti verið táknrænt fyrir íslenzka verzlun og nota mætti sent merki fyrir hátíðina. Hugmyndirnar þurfa ekki að vera fullteiknaðar, en þó í skýru uppkasti. Tvenn verðlaun verða veitt, 2000 kr. í fyrstu verðlaun og 1000 kr. í önnur verðlaun. Hugmyndir þarf að senda til Verzlunarráðs íslands, Austur- stræti 16, Pósthólf 514, Reykja- vík, og verða þær að vera póst- lagðar fyrir 15. febrúar.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.