Fylkir


Fylkir - 31.01.1958, Page 1

Fylkir - 31.01.1958, Page 1
Mólgagn Sjólfstsðif- flokksint 10. árgangur Vestinannaeyjum, 31. jan. 1958 r, .tölublað. a!L1!UUnilillli;!!lt;lil8Uliilli!iliaiilffllli!;!!0iiiin:;riiailllf^!15g5ffiir.lgaiflltilUlHUllBUBiæiieig3iHai»i;!iamiailimmiginfllimaBIWaciBiniwn»llHni«Bmi«ilianigit!;»im;M!’iiPimig>!;i»tiTsiiirii[i»r.HfiM!<nMiiwB;igWMCT fengu hreinan meirihluta. í bæjarstjómarkosningum þeim, sem fram f'óru á sunnudaginn var, fékk D-listinn, listi Sjálfstæðismanna, hreinan meirihluta, eða 52,3% greiddra atkvæða. Hefur fylgi Sjálfstæðisflokksins stórauk- izt frá síðustu bæjarstjórnarkosningum og flokkurinn aldrei haft svo öflugt fylgi sem nú. Að öðru leyti urðu úrslit kosninganna þessi: A-listi, listi Alþýðuflokksins hlaut 204 atkvæði og 1 mann kjörinn. B-listi, listi Framsóknarfl., hlaut 284 atkv. og 1 mann kjörinn D-listi, listi Sjálfstæðisfh, iilaut 1144 atkv. og 5 menn kjörna. (.i-listi, listi Alþýðubandalagsins, hlaut 507 atkv. og 2 menn kjörna Bæjarstjórn Vestmannaeyja næstu 4 ár er skipuð eftirtöldum mönnum: Af D-lista: Arsæll Sveinsson, Guðlaugur Gíslason, Sigiivatur Bjarnason, Páll Scheving. fón í. Sigurðsson. Af A-lista: Ingólfur Arnarson. Af B-lista: Sveinn Guðmundsson. Af G-lista: Karl Guðjónsson, Sigurður Stefánsson. Varamenn í bæjarstjórn eru: Af D-lista: Sigfús f. fohnsen, Þórunn Friðriksdóttir, Torfi Jóhannsson, Bergsteinn Jónasson, fóhann Friðfinnsson. Af A-lista: Elías Sigfússon. Af B-lista: Sigurgeir Kristjánsson. . Af G-lista: Gunnar Sigurmundsson, Guðmunda Gunnarsdóttir. í Reykjavík hlaut Sjálfstæðisflokkurinn meira atkvæðamagn en nokkru sinni fyrr og kom hann þar að 10 bæjarfulltrúum. Er það stærsti sigur, sem flokkurinn hefur unhið í kosningum fram til þessa. Á Akureyri jókst fylgi flokksins verulega. Bætti hann þar við sig manni og vantaði ekki mikið. á, að hann hlyti þar hreinan meirihluta. Gerist þetta þar, þvert ofan í þá yfirlýsingu vinstri flokkanna þar, að þeir hafi ákveðið að vinna sarnan eftir kosningar. Tr það sérstaklega eftirtektarvert svar. í Keflavík vann Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta, og ‘í Stykkishólmi hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 5 fulltrúa af 7 í hrepps- nefnd. Kölluðu andstæðingar hans sig þar „stuðningsflokka ríkis- stjórnarinnar," og er þetta eitt áþreifanlegasta dæmið um andúð- ina á núverandi ríkisstjórn. í Hafnarfirði er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn stærsti flokkur- inn, þessu höfuðvígi jafnaðarmanna á íslandi. Atkvæðamagnið nægði að vísu ekki til að mynda hreinan meirihluta, en glöggt er, hvert st.elnir þar sem víða annars staðar. Að þessum bæjarstjórnarkosningum loknum liggur sú stað- reynd fyrir, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hlotið yfir helming greiddra atkvæða í bæjar- og hreppsfélögum, þar sem kosið var að þessu sinni. Andstæðingar lians lögðu alls staðar mikla áherzlu á að hnekkja viðgangi hans. Til þess hafa þeir og óspart beitt ríkisstjórn- inni. Hún hefur haft á því fullan vilja og reynt ýmsar leiðir, al- veg sérstaklega með breytingunni á kosningalögunum fyrir kosn- ingarnar, sem beinlínis var stefnt gegn Sjálfstæðisflokknum, en árangur þeirrar viðleitni sést bezt í úrslitum kosninganna. í kosningum þeim til bæjarstjórnar, sem fram fóru árið 1954, hlaut Sjálfstæðisflokkurinn meira atkvæðamagn en nokkur annar flokkur í bænum. Það nægði að vísu ekki til að mynda hreinan meirihluta bæjarstjórnar, en úrslit þeirra kosninga voru ótvíræð bending um það, hverjum bæjarbúar vildu, að fenginni 8 ára reynslu af vinstri bæjarstjórn, fela forsjá sinna rnála næstu 4 árin. Það hlaut því að falla í hlut Sjálfstæðismanna að hafa forystu um að leita eftir samstarfi við aðra flokka um stjórn bæjarmála. Sam- komulag náðist við Framsóknarflokkinn, og síðustu fjögur árin liafa þessir flokkar farið með stjórn. Það þarf enginn að fara í grafgötur um það, að forystan í bæj- armálunum hefur eðlilega hvílt á fulltrúum Sjálfstæðisflokksins undanfarin fjögur ár, enda er það líka vðiurkennt. Hér verður ekki rakin sagan um gang bæjarmála á síðasta kjörtímabili. Það hefur Jægar verið gert. En nú liggur fyrir skýr og ótvíræður dómur um það, að bæjarbúar treysta engum betur en Sjálfstæðismönnum til að fara með stjórn sinna mála. Það verður því hlutverk Sjálfstæð- isflokksins að halda uppi merki framfara og aukinnar hagsældar bæjarbúa næstu fjögur árin. Flokkurinn hefur fullan hug á þvi að vinna af alefli að framgangi stefnumála sinna og setur sér það mark eitt, að koma sem flestu í framkvæmd, öllum bæjarbúum til aukinnar hagsældar.

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.