Fylkir - 31.01.1958, Síða 1
Mólgagn
Sjólfstsðif-
flokksint
10. árgangur
Vestinannaeyjum, 31. jan. 1958 r, .tölublað.
a!L1!UUnilillli;!!lt;lil8Uliilli!iliaiilffllli!;!!0iiiin:;riiailllf^!15g5ffiir.lgaiflltilUlHUllBUBiæiieig3iHai»i;!iamiailimmiginfllimaBIWaciBiniwn»llHni«Bmi«ilianigit!;»im;M!’iiPimig>!;i»tiTsiiirii[i»r.HfiM!<nMiiwB;igWMCT
fengu
hreinan meirihluta.
í bæjarstjómarkosningum þeim, sem fram f'óru á sunnudaginn
var, fékk D-listinn, listi Sjálfstæðismanna, hreinan meirihluta, eða
52,3% greiddra atkvæða. Hefur fylgi Sjálfstæðisflokksins stórauk-
izt frá síðustu bæjarstjórnarkosningum og flokkurinn aldrei haft
svo öflugt fylgi sem nú.
Að öðru leyti urðu úrslit kosninganna þessi:
A-listi, listi Alþýðuflokksins hlaut 204 atkvæði og 1 mann kjörinn.
B-listi, listi Framsóknarfl., hlaut 284 atkv. og 1 mann kjörinn
D-listi, listi Sjálfstæðisfh, iilaut 1144 atkv. og 5 menn kjörna.
(.i-listi, listi Alþýðubandalagsins, hlaut 507 atkv. og 2 menn kjörna
Bæjarstjórn Vestmannaeyja næstu 4 ár er skipuð eftirtöldum
mönnum:
Af D-lista:
Arsæll Sveinsson, Guðlaugur Gíslason,
Sigiivatur Bjarnason, Páll Scheving.
fón í. Sigurðsson.
Af A-lista: Ingólfur Arnarson.
Af B-lista: Sveinn Guðmundsson.
Af G-lista: Karl Guðjónsson, Sigurður Stefánsson.
Varamenn í bæjarstjórn eru:
Af D-lista:
Sigfús f. fohnsen, Þórunn Friðriksdóttir,
Torfi Jóhannsson, Bergsteinn Jónasson,
fóhann Friðfinnsson.
Af A-lista: Elías Sigfússon.
Af B-lista: Sigurgeir Kristjánsson. .
Af G-lista: Gunnar Sigurmundsson, Guðmunda Gunnarsdóttir.
í Reykjavík hlaut Sjálfstæðisflokkurinn meira atkvæðamagn
en nokkru sinni fyrr og kom hann þar að 10 bæjarfulltrúum. Er
það stærsti sigur, sem flokkurinn hefur unhið í kosningum fram
til þessa.
Á Akureyri jókst fylgi flokksins verulega. Bætti hann þar við
sig manni og vantaði ekki mikið. á, að hann hlyti þar hreinan
meirihluta. Gerist þetta þar, þvert ofan í þá yfirlýsingu vinstri
flokkanna þar, að þeir hafi ákveðið að vinna sarnan eftir kosningar.
Tr það sérstaklega eftirtektarvert svar.
í Keflavík vann Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta, og
‘í Stykkishólmi hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 5 fulltrúa af 7 í hrepps-
nefnd. Kölluðu andstæðingar hans sig þar „stuðningsflokka ríkis-
stjórnarinnar," og er þetta eitt áþreifanlegasta dæmið um andúð-
ina á núverandi ríkisstjórn.
í Hafnarfirði er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn stærsti flokkur-
inn, þessu höfuðvígi jafnaðarmanna á íslandi. Atkvæðamagnið
nægði að vísu ekki til að mynda hreinan meirihluta, en glöggt er,
hvert st.elnir þar sem víða annars staðar.
Að þessum bæjarstjórnarkosningum loknum liggur sú stað-
reynd fyrir, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hlotið yfir helming
greiddra atkvæða í bæjar- og hreppsfélögum, þar sem kosið var að
þessu sinni. Andstæðingar lians lögðu alls staðar mikla áherzlu á að
hnekkja viðgangi hans. Til þess hafa þeir og óspart beitt ríkisstjórn-
inni. Hún hefur haft á því fullan vilja og reynt ýmsar leiðir, al-
veg sérstaklega með breytingunni á kosningalögunum fyrir kosn-
ingarnar, sem beinlínis var stefnt gegn Sjálfstæðisflokknum, en
árangur þeirrar viðleitni sést bezt í úrslitum kosninganna.
í kosningum þeim til bæjarstjórnar, sem fram fóru árið 1954,
hlaut Sjálfstæðisflokkurinn meira atkvæðamagn en nokkur annar
flokkur í bænum. Það nægði að vísu ekki til að mynda hreinan
meirihluta bæjarstjórnar, en úrslit þeirra kosninga voru ótvíræð
bending um það, hverjum bæjarbúar vildu, að fenginni 8 ára
reynslu af vinstri bæjarstjórn, fela forsjá sinna rnála næstu 4 árin.
Það hlaut því að falla í hlut Sjálfstæðismanna að hafa forystu um
að leita eftir samstarfi við aðra flokka um stjórn bæjarmála. Sam-
komulag náðist við Framsóknarflokkinn, og síðustu fjögur árin
liafa þessir flokkar farið með stjórn.
Það þarf enginn að fara í grafgötur um það, að forystan í bæj-
armálunum hefur eðlilega hvílt á fulltrúum Sjálfstæðisflokksins
undanfarin fjögur ár, enda er það líka vðiurkennt. Hér verður ekki
rakin sagan um gang bæjarmála á síðasta kjörtímabili. Það hefur
Jægar verið gert. En nú liggur fyrir skýr og ótvíræður dómur um
það, að bæjarbúar treysta engum betur en Sjálfstæðismönnum til
að fara með stjórn sinna mála. Það verður því hlutverk Sjálfstæð-
isflokksins að halda uppi merki framfara og aukinnar hagsældar
bæjarbúa næstu fjögur árin. Flokkurinn hefur fullan hug á þvi
að vinna af alefli að framgangi stefnumála sinna og setur sér það
mark eitt, að koma sem flestu í framkvæmd, öllum bæjarbúum til
aukinnar hagsældar.