Fylkir - 31.01.1958, Side 2
2
F Y L K í R
,^8S3SSS«SSSSSSSSSSSSSS8SSS8SSðSSSS$88S88S8883SS};^;/S£SS«iSSSSSS8SSiS3S£S£SSS£SSSSSSSSSSS£SSS£SSS£SSSSSSSI
t
Karl Kristmanns
stórkaupmaður
Nokkur minningarorö.
.*.iw**.%%*
uurAtíiUtð
Sunnudaginn 19. janúar s. 1. i
barst sú fregn út um bæinn,
að þá um nóttina hefði Karl
Kristmanns beðið bana af slys-
lörum.
Bæjarbúa setti hljóða við
þessi tíðindi, og þar sannaðist
hið fornkveðna, að eitt fótmál
skilur líf og dauða.
Karl hafði þá um nóttina
ætlað til Reykjavíkur með Esju,
sem þá var hér á ferð, en til
skips kom liann aldrei, því að
á leiðinni féll hánn og beið
af aldurtila.
Kari Kristmanns var fæddur í
Vestmannaeyjum 21. nóvember
1911, og var því rúmlega 46
ára, er liann lézt. Hann ólst upp
hjá foreldrum sínum í Stein-
holti, þeim Kristmanni Þor-
kelssyni, útgerðarmanni, og
konu hans, Jónínu Einarsdótt-
ur, sem bjuggu hér um langt
skeið. RósKlega tvítugur að
aldri fór Karl után til náms í
verzlunarfræðum í Þý/.kalandi,
og að þeirri vist lokinni hóf
hann hér í bæ vefzlunarrekstur.
Stofnaði hann umboðs- og lieild
verzlún, en rak einnig smásölu,
og lyrir uokkrum árum keypti
hann Verzlun Ása 8c Sirrí. Karl
hafði á hendi umboð fyrir
fjölda fyrirtækja, svo sem Öl-
gerðina Egil Skallagrímsson,
ennfremur hafði liann umboð
lyrir Almennar tryggingar h. f.
og FÍugfélag íslands frá því er
það hóf flugferðir hingað.
MÁLGAGN
SJ ÁLFSTÆÐ ISFI.O KKSINS
ÚTGEFANDl:
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG
VESTMANN AEYJ A
RITSTJÓRI og ÁBYRGÐARM.;
. EINAR H. EIRÍKSSON
Sími: 308. — Pósthólf: íot.
PrentsmiBjan EYRÚN h. f.
Árið 1939, 26. nóvember,
giftist Karl eftirlifandi konu
sinni, Betsý G. Ágústsdóttur,
Þórðarsonar, frá Aðalbóli. Eign
uðust þau 5 börn, og eru þrjú
þeirra innan við fermingu. Eina
dóttur átti hann, áður en hann
giftist.
Karl Kristmanns tók mikinn
þátt í félagsstörfum í bænum.
Hvar sem hann gerðist liðsmað-
ur, lagði hann sig allan fram,
og þá þótti jafnan vel fyrir
starfi séð, ef hann tók það að
sér. Hann starfaði mikið í Ak-
oges og Oddfellowreglunni.
Karl Kristmanns var maður
vinsæll og vinmargur, ekki að-
eins hér í bæ, heldur náði það
langt út fyrir endamörk þessa
bæjar. Hann var jafnan léttur
og kátur við hvern, sem hann
átti skipti við, og Ijúfúr var
Itann í viðmóti við alla. Gerði
hann sér engan mannamun.
Öll þau ár, sem liann rak verzl-
un, hefur hann að sjálfsögðu átt
viðskipti við fjölda manna, ineð
ólíka skapgerð, en á jiví hef ég
engan efa, að hann hefur getað
lynt við jiá alla. Slíkt er aðal
hvers góðs drengs. En hitt er
víst, að hvergi hefur reynt jafn
mikið á mannkosti hans, lipurð
og lagni en einmitt í sambandi
við flugið. Aðstæðui eru hér
slíkar, að fátt er liklegra til ó-
vinsælda en einmitt jrað að vera
umboðsmaður flugfélags. Fátt
þótti honum sárara en að geta
ekki greitt götu þess fólks, sem
eftir flugfari leitaði, þótt eng-
inn mannlegur máttur megnaði
að leysa Joann hnút, sem hverju
sinni þurfti. Kom þá glöggt
ljós, hversu lipur hann var
öllum viðskiptum.
Nú, þegar Karl Kristmanns
er allur, á bezta aldri, einmitt
er allt virtist leika í lyndi, er
bærinn svipminni. Að honurn
er sjónarsviptir. Hann var einn
þéirrá rnanna, sem settu svip á
bæinn, svo að óhjákvæmilegt
var annað en að taka eftir hón-
um ,hvar sem hann fór. En eng
inn má sköpum renna. Og víst
cr um jrað, að ekki einungis ást-
vinir, heldur og bæjarbúar allir
sakna nú vinar í stað.
Þótt kynni mín af Karli Krist
manns væru ekki sérlega löng,
nægðu jrau þó til þess, að ég
hefði einskis frekar óskað en
mega njóta samvista við hann
um langt skeið ennþá. En Javí
ráða æðri máttarvöld, að svo
verður ekki. En sú mynd, sem
allir þeir, er kynntust honum,
sarðv'eita með sjálfum sér, verð-
ur aldrei lrá þeim tekin né held
ur minningin um góðan dreng,
ljúfan og kátan, sem hvers
manns vanda vildi leysa.
Ástvinum hans votta ég inni-
lega samúð nu'na og bið að lok-
um þeirrar bænar, er höfundur
Sólarljóða bar Iram, að
Drottinn minn gefi dánum ró,
hinurn líkn, sem lifa.
E.
Kabarett - kvöld
Leikfélags
V estmannaey j a
Bæjarbúar eiga von á góðri
og fjölbreyttri kvöldskemmtun
fyrstu dagana í febrúar, (líklega
r,. febniar). Kvöldvakan verður
með svipuðu sniði og sú sem
l.eikfélagið kom upp með í des-
ember s. I. Sýndur verður m. a.
söngleikurinn „UPP TIL
SELJA“, þó með þeim breyting
um, að I.oftur Magnússon og
Gunnar Sigurmundsson fara
með hlutverk „Ásmundar‘“ og
„Péturs“ í forföllum Gísla Stein
grímssonar og Óla Andreasson-
ar. Þá veiður og nýjum atriðum
bætt inn í, og má fyrst og fremst
minna á, að gestur kvöldvökunn
ar verður einn eftirsóttasti
skemmtikraftur Reykvíkinga í
dag, tenorsöngvarinn GUÐ-
MUNDUR GUÐJÓNSSON. -
Það má með sanni segja, að
Guðmundur lvafi komið heilli
borg á óvart, er liann korn fyrst
fram í Austurbæjar Bíói hjá
„Syngjandi Páskum“ sl. vetur.
Að vísu eftir fjögurra ára söng-
nám. Þetta er í fyrsta sinn, scm
Guðmundur syngur í Vest-
mannaeyjúm, og verða þeir ef-
laust margir, sem fýsir að sjá
hann og heyra. Þá má ekki
gleyma, að unga fólkið fær sinn
skammt, (það verður ekki látið
uppi hér). —
Þcss skal getið, að kvöldvak-
an verður aðeins eitt kvöld og
verða jaá tvær sýningar, kl.
20,30 (8,30) og miðnætursýning
kl. 23,00 (11).
Gjaíir fil
Landakirkju
Um hátíðarnar bárust Landa
kirkju góðar gjafir. Þau hjón-
in Magnúsína og Hannes Hans-
son, sem áður áttu heima hér,
lengst af á Hvoli, sendu kirkj-
unni eintak af Guðbrandar-
biblíu, Ijósprentað, í forkunnar
fögru bandi. Er bókin gefin tií
minningar um fósturforeldra og
börn þeirra, sem jarðsungin
hafa i crið frá Landakirkju. Þau
hjónin vout lengi búsett hér í
bæ, en eiga nú heima í Reykja
vík.
Þá barst kirkjunni önnur
gjöf, sálmabók, skrautárituð, til
minningar um Ingunni Úlfars-
dóttur, gefin af Ingibjörgu
Tómasdóttur, Brekastíg 22.
Blaðið hefur verið beðið að
færa gefendunum alúðarþakkir.
Orðsending
til skipstjóra
Það eru vinsamleg til-
mæli til skipst jórnar-
manna, að ef viðkomandi
bátur er ekki kominn í
höfn úr róðri fyrir kl. 19,
þá tilkynni þeir Vest-
manneyja-radio væntan-
legan komutíma og hvar
þeir séu staddir.
Björgunarfélag
Vestmannaeyja.
ummmi
verður á sunudaginn kl. 1,30 að
Breiðabliki.
l'aflfélag Vcstmannaeyja.
Nýkomin
búsáhöld
Skaftpottar tvær stærðir,
Pottar, fimm stærðir,
Mjólkurbrúsar, fjórar
stærðir,
Vaskaföt
og margt fleira.
Verzlun
Sigurðar
Sveinssonar.