Fylkir


Fylkir - 31.01.1958, Blaðsíða 2

Fylkir - 31.01.1958, Blaðsíða 2
2 F Y L K í R ,^8S3SSS«SSSSSSSSSSSSSS8SSS8SSðSSSS$88S88S8883SS};^;/S£SS«iSSSSSS8SSiS3S£S£SSS£SSSSSSSSSSS£SSS£SSS£SSSSSSSI t Karl Kristmanns stórkaupmaður Nokkur minningarorö. .*.iw**.%%* uurAtíiUtð Sunnudaginn 19. janúar s. 1. i barst sú fregn út um bæinn, að þá um nóttina hefði Karl Kristmanns beðið bana af slys- lörum. Bæjarbúa setti hljóða við þessi tíðindi, og þar sannaðist hið fornkveðna, að eitt fótmál skilur líf og dauða. Karl hafði þá um nóttina ætlað til Reykjavíkur með Esju, sem þá var hér á ferð, en til skips kom liann aldrei, því að á leiðinni féll hánn og beið af aldurtila. Kari Kristmanns var fæddur í Vestmannaeyjum 21. nóvember 1911, og var því rúmlega 46 ára, er liann lézt. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum í Stein- holti, þeim Kristmanni Þor- kelssyni, útgerðarmanni, og konu hans, Jónínu Einarsdótt- ur, sem bjuggu hér um langt skeið. RósKlega tvítugur að aldri fór Karl után til náms í verzlunarfræðum í Þý/.kalandi, og að þeirri vist lokinni hóf hann hér í bæ vefzlunarrekstur. Stofnaði hann umboðs- og lieild verzlún, en rak einnig smásölu, og lyrir uokkrum árum keypti hann Verzlun Ása 8c Sirrí. Karl hafði á hendi umboð fyrir fjölda fyrirtækja, svo sem Öl- gerðina Egil Skallagrímsson, ennfremur hafði liann umboð lyrir Almennar tryggingar h. f. og FÍugfélag íslands frá því er það hóf flugferðir hingað. MÁLGAGN SJ ÁLFSTÆÐ ISFI.O KKSINS ÚTGEFANDl: SJÁLFSTÆÐISFÉLAG VESTMANN AEYJ A RITSTJÓRI og ÁBYRGÐARM.; . EINAR H. EIRÍKSSON Sími: 308. — Pósthólf: íot. PrentsmiBjan EYRÚN h. f. Árið 1939, 26. nóvember, giftist Karl eftirlifandi konu sinni, Betsý G. Ágústsdóttur, Þórðarsonar, frá Aðalbóli. Eign uðust þau 5 börn, og eru þrjú þeirra innan við fermingu. Eina dóttur átti hann, áður en hann giftist. Karl Kristmanns tók mikinn þátt í félagsstörfum í bænum. Hvar sem hann gerðist liðsmað- ur, lagði hann sig allan fram, og þá þótti jafnan vel fyrir starfi séð, ef hann tók það að sér. Hann starfaði mikið í Ak- oges og Oddfellowreglunni. Karl Kristmanns var maður vinsæll og vinmargur, ekki að- eins hér í bæ, heldur náði það langt út fyrir endamörk þessa bæjar. Hann var jafnan léttur og kátur við hvern, sem hann átti skipti við, og Ijúfúr var Itann í viðmóti við alla. Gerði hann sér engan mannamun. Öll þau ár, sem liann rak verzl- un, hefur hann að sjálfsögðu átt viðskipti við fjölda manna, ineð ólíka skapgerð, en á jiví hef ég engan efa, að hann hefur getað lynt við jiá alla. Slíkt er aðal hvers góðs drengs. En hitt er víst, að hvergi hefur reynt jafn mikið á mannkosti hans, lipurð og lagni en einmitt í sambandi við flugið. Aðstæðui eru hér slíkar, að fátt er liklegra til ó- vinsælda en einmitt jrað að vera umboðsmaður flugfélags. Fátt þótti honum sárara en að geta ekki greitt götu þess fólks, sem eftir flugfari leitaði, þótt eng- inn mannlegur máttur megnaði að leysa Joann hnút, sem hverju sinni þurfti. Kom þá glöggt ljós, hversu lipur hann var öllum viðskiptum. Nú, þegar Karl Kristmanns er allur, á bezta aldri, einmitt er allt virtist leika í lyndi, er bærinn svipminni. Að honurn er sjónarsviptir. Hann var einn þéirrá rnanna, sem settu svip á bæinn, svo að óhjákvæmilegt var annað en að taka eftir hón- um ,hvar sem hann fór. En eng inn má sköpum renna. Og víst cr um jrað, að ekki einungis ást- vinir, heldur og bæjarbúar allir sakna nú vinar í stað. Þótt kynni mín af Karli Krist manns væru ekki sérlega löng, nægðu jrau þó til þess, að ég hefði einskis frekar óskað en mega njóta samvista við hann um langt skeið ennþá. En Javí ráða æðri máttarvöld, að svo verður ekki. En sú mynd, sem allir þeir, er kynntust honum, sarðv'eita með sjálfum sér, verð- ur aldrei lrá þeim tekin né held ur minningin um góðan dreng, ljúfan og kátan, sem hvers manns vanda vildi leysa. Ástvinum hans votta ég inni- lega samúð nu'na og bið að lok- um þeirrar bænar, er höfundur Sólarljóða bar Iram, að Drottinn minn gefi dánum ró, hinurn líkn, sem lifa. E. Kabarett - kvöld Leikfélags V estmannaey j a Bæjarbúar eiga von á góðri og fjölbreyttri kvöldskemmtun fyrstu dagana í febrúar, (líklega r,. febniar). Kvöldvakan verður með svipuðu sniði og sú sem l.eikfélagið kom upp með í des- ember s. I. Sýndur verður m. a. söngleikurinn „UPP TIL SELJA“, þó með þeim breyting um, að I.oftur Magnússon og Gunnar Sigurmundsson fara með hlutverk „Ásmundar‘“ og „Péturs“ í forföllum Gísla Stein grímssonar og Óla Andreasson- ar. Þá veiður og nýjum atriðum bætt inn í, og má fyrst og fremst minna á, að gestur kvöldvökunn ar verður einn eftirsóttasti skemmtikraftur Reykvíkinga í dag, tenorsöngvarinn GUÐ- MUNDUR GUÐJÓNSSON. - Það má með sanni segja, að Guðmundur lvafi komið heilli borg á óvart, er liann korn fyrst fram í Austurbæjar Bíói hjá „Syngjandi Páskum“ sl. vetur. Að vísu eftir fjögurra ára söng- nám. Þetta er í fyrsta sinn, scm Guðmundur syngur í Vest- mannaeyjúm, og verða þeir ef- laust margir, sem fýsir að sjá hann og heyra. Þá má ekki gleyma, að unga fólkið fær sinn skammt, (það verður ekki látið uppi hér). — Þcss skal getið, að kvöldvak- an verður aðeins eitt kvöld og verða jaá tvær sýningar, kl. 20,30 (8,30) og miðnætursýning kl. 23,00 (11). Gjaíir fil Landakirkju Um hátíðarnar bárust Landa kirkju góðar gjafir. Þau hjón- in Magnúsína og Hannes Hans- son, sem áður áttu heima hér, lengst af á Hvoli, sendu kirkj- unni eintak af Guðbrandar- biblíu, Ijósprentað, í forkunnar fögru bandi. Er bókin gefin tií minningar um fósturforeldra og börn þeirra, sem jarðsungin hafa i crið frá Landakirkju. Þau hjónin vout lengi búsett hér í bæ, en eiga nú heima í Reykja vík. Þá barst kirkjunni önnur gjöf, sálmabók, skrautárituð, til minningar um Ingunni Úlfars- dóttur, gefin af Ingibjörgu Tómasdóttur, Brekastíg 22. Blaðið hefur verið beðið að færa gefendunum alúðarþakkir. Orðsending til skipstjóra Það eru vinsamleg til- mæli til skipst jórnar- manna, að ef viðkomandi bátur er ekki kominn í höfn úr róðri fyrir kl. 19, þá tilkynni þeir Vest- manneyja-radio væntan- legan komutíma og hvar þeir séu staddir. Björgunarfélag Vestmannaeyja. ummmi verður á sunudaginn kl. 1,30 að Breiðabliki. l'aflfélag Vcstmannaeyja. Nýkomin búsáhöld Skaftpottar tvær stærðir, Pottar, fimm stærðir, Mjólkurbrúsar, fjórar stærðir, Vaskaföt og margt fleira. Verzlun Sigurðar Sveinssonar.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.