Fylkir


Fylkir - 31.01.1958, Síða 4

Fylkir - 31.01.1958, Síða 4
r ORÐSENDING Sjálfstæðisflokkurinn vill að afloknum kosningum færa öllum þeim, sem á einhvern hátt stuðluðu að hinum glæsi- lega sigri hans, fyllstu þakkir fyrir vel unnin störf, bæði á kjördegi og fyrir. Ákveðið hefur verið að efna til íagnaðar í Samkomuhús- inu laugardaginn 8. febrúar n. k. Þangað eru velkomnir allir þeir, sem störfuðu við kosningarnar og aðrir velunnar- ar flokksins meðan húsrúm leyfir. Aðgöngumiðar verða afhentir í Samkomuhúsinu á fimmtudaginn kl. 4—7. Neðan f rá sjo. Afli og gœftir: Gæftir hafa verið stiiðar það sem af er þess- ari viku, og. alger landlega var hjá flestunr í gær. Aflinn hefur verið rnjög rýr, hjá flestum þetta 2—4 tonn af óslægðum fiski, og er það ekki mikil á- staða á þá línulengd, sem bát- arnir róa orðið með. Uppistað- an í aflanum hefur verið nær cingöngu ýsa. Þorskur sést varla og virðist alls ekki genginn. Ef þessi óvenjulega ýsugengd hefði ekki komið núna í þessum mán- uði, hefði verið ördeyða á mið- unum. Vinna: Mjög mikil atvinna Irefur verið í janúar og mun meiri venju. Er það fyrst til, að margur hefur verið við „stand- setningu“ á bátunum og svo það, að aflinn, sem fengizt hef- ur, er aðallega ýsa svo sem fyrr er sagt og er hún seinunnin til vinnslu í hraðfrystihúsunum, en þau ennþá mjög mannfá, þar sem frekar fátt af iandverka fólki er komið til vers. Skipakomur: Goðafoss var liér á þriðjudaginn, og tók hér frcðfisk og þurrfisk fyrir Suður- Ameríku. Tók skipið allan Jjann Ireðfisk, sem unninn hefur ver- ið á þessu ári fyrir Bandaríkja- markað, en það mun sem næst um 14 þús. kassar. Lagarfoss er væntanlegur í dag eða á rnorg- un, og á lrann að taka það sem til er af freðfiski framleiddum fyrir Svíþjóð og Holland, enn- fremur er Jökulfell væntanlegt og á að taka freðfisk og frosið refafóður, einnig fyrir Svíþjóð- armarkað. Byrjað er að pakka þurrfiski fyrir Suður-Ameríku, líklega sem næst 150. tonnum, á þetta magn að fara í danskt skip, sem verður væntanlega hér upp úr miðri næstu viku. Af fiski verk- uðum fyrir Suður-Ameríku- markað er jjá lítið eftir, varla meira en 130 tonn, en áætlað er, að J)au fai i seinnipart næsta mánaðar. Vtgerðin: Hftir því, sem hafnarvörðurinn, Bergst. Jónas- son tjáði mér og hann vissi bezt, verða gerðir út héðan 107 þil- farsbátar í vetur. Hefur aldrei verið svo stór floti gerður út héðan á vertíð. Af jæssum flota verða 75 bátar nreð línu og net, 2 með net eingöngu og 30 með handfæri. Af þessum flota munu um 60 bátar byrjaðir veiðar. Við þessa frásögn bætti Berg- steinn Jrví, að ef að venju léti, Jrá ætti flotinn eftir að- aukast, því að seinnipart vertíðar kæmu hingað fjöldi báta víðsvegar að af landinu og legðu hér upp áfla að ðmeira eða rninna leyti. Ekki er vitað með neinni vissu, hve margir opnir vélbátar (trill ur) verða gerðir héðan út í vet- ur, en ekki er ólíklegt, að þeir vcrði um 20. Má því áætla, að um 130 til 140 skip verði hér á vertíð í vetur. Afli handfœrabáta: F;í cinir handfærabátar eru byrjað- ir veiðar, en afli hefur verið rýr, enda hafa Jreir lítið getað reynt fyrir sér vegna ótíðar. Björgvin fékk jw góðan afla dag einn í fyrri viku. Glœsilegt skip: ^ sunnu- daginn var kom hingað í höfn: ina hið nýja skip þeirra Hjálm holtsbræðra, Páls og Júlíusar Ingibergssona, Reynir VE 15. Er skip þetta 72 tonn að stærð með 320 hesta Völund-motor. Skip þetta er mjög glæsilegt og svo vcl búið öllum öryggis- og veiðitækjum, að vart verður betur á kosið. Er þá fyrst Decca- radar með 30 sjómílna sjónvídd, | Simrad-asdictæki, sjálfvirkt Ben | dix stýriáhald, sem mun alveg nýtt í fiskibátum. Svefilpláss er fyrir 13 menn. |xar af 5 í káetu. Skipið er byggt f Strandby Skibsværft A/S, Strandby, en þar liefur annar eigandinn, Júl- íus Ingibeigsson, dvalið síðan um miðjan september í haust, ásamt Þórarni Sigurðssyni, skipasmið, og hafa jteir unnið við og haft eftirlit með smíði bátsins. í samtali við mig lauk Júlíus lofsorði á alla fyrir- greiðslu hjá hinni dönsku skipa smíðastöð. Þá taldi hann það mikið happ fyrir Jrá bræður að hafa fengið jafn ágætan skipa- srnið og Þorarinn til aðstoðar um fyrirkomulag og annað Jrað, er að smíði bátsins latit. Fallegt handbragð er á öllu, fyrirkomu lag á dekki og neðan þilja mjög gott, og Reynir yfirleitt með glæsilegri skipum hér í höfn, og er að honum vissulega mik- ill og góður fengur fyrir byggð arlagið. Bj. Guðm. Karlmannaföt, frakkar, stakar buxur, skyrtur bindi, nærföt. Lércft, br. 80—180 cm. Verð frá kr. 7,30 m. Náttfataefni, mjög falleg poplin og með flónelsvetid. Verð 18 kr. nt. Barnafatnaður, fjölbreytt úrval. Kerrupokar, Regnkápur á börn, Prjónagarn, mikið úrval. Stoppugarn í kössurn. Skáböncl margir litir. Poplinkápur. Vinnufatnaður. r~----------------------n Bæjarfréttir. V________ _______> Landakirkja: Guðsþjónusta n. k. sunnulag kl. 2. Séra Halldór Kolbeins prédikar. K. F. U. M. og K.: Drengjafundur á mánudög- um kl. G fyrir drengi 6—9 ára, kl. 8 fyrir 10 ára og eldri. BarnaguðsJjjónusta á sunnu- daginn kl. 11. Á sama tíma í kirkjunni. Betel: Samkoma 11. k. sunnudag kl. 4-30. Aðventkirkjan. Biblíulestur í dag, föstud., kl. 8,30. Barnasamkoma á sunnud. kl. 2. Almenn samkoma á sunnu dag kl. 8,30. Lœknavaktir: Föstudagur 31. jan. E. G. Laugardagur 1, febr. Bj. Júl. Sunnudagur 2. febr. Bj. Júl. Mánudagur 3. febr. E. G. Þriðjudagur 4. febr. B. J. Miðvikudagur 5. febr. Bj. Júl. Fimmtudagur 6. febr. E. G. Jarðarför: Jarðarför Guðjóns Guðlaugs- sonar frá Gvendarhúsi fór fram á þriðjudaginn var. Minningarathöfn um Karl Kristmanns fór frarn í Landa- kirkju s. I. laugardag. Útför hans fór fram frá Kapellunni í Fossvogi á þriðjudaginn var. Innbrot: Fyrir skömmu var framið inn brot í afgreiðslu Flugfélags ís- lands h. f. hér í bæ. Eru þar jafnan geymdar nokkrar áfeng- isbirgðir, sem sendar eru á póst kröfu hingað. Var stolið þar allmiklu of áfengi. Málið er i rannsókn. Húsasmiður: Nýlega hefur Ástþór Runólfs son, Laufási, lokið sveinsprófi í húsasmíði. Nam hann iðnina hjá Guðmundi Böðvarssyni. Andlát: í gær önduðust hér frú Aðal- heiður Árnadóttir, Hvammi, og Baldvin Hallsson, verkamaður, Kirkjuvegi 26. Athugið orðsendingu frá Sjálfstæðis- flokknum efst á 4. síðu um fagnað laugardaginn 8. febr. Nánar sagt frá tilhögun i næsta blaði. Bsrnsvagn til sölu. Upplýsingar í síma 298.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.