Fylkir - 11.04.1958, Page 1
.......
Mólgagn
Sjólfstæðis-
flokksins
Vestniamiaeyjum 11. apríl 1958 14. tölublað.
10. árgangur
Þrír merkir Islendingar látnir
Dr. theol. Magnús Jónsson
fyrrverancli prófessor og al-
þingismaður, lézt í Reykjavík 2.
apríl s. i. Magnús var Skagfirð-
ingur að ætt, sonur séra Jóns
Magnússonar að Hvammi í
Norðurárdal og konu lians Stein
unnar Þorsteinsdóttur.
Magnús fór til náms og lauk
stúdentsprófi í Reykjavík. sigidi
svo til Kaupmannaliafnar og
lauk þar prófi í forspjallsvísind
um, en embættisprófi í guðfræði
bér heima. Hann gerðist síðar
prestur vestur-íslenzka safnaðar-
ins í Norður-Dakota, en flutt-
ist heim aftur, er hann var kjör-
inn prestur á ísafirði árið 1915.
Tveim árum síðar tók hann við
dósentsembætti í guðfræði við
Háskóla íslands og síðar próless
orsembætti. Starlaði hann að
kennslu um 30 ára skeið.
Auk kennslustarfanna ritaði
Magnús mikið í blöð og tíma-
rit um margvísleg efni, var m.
a. ritstjóri Eimreiðarinnar, Ið-
unnar og Kirkjuritsins, og auk
J)css gaf liann út stjórnmálatíma
ritið Stefni, hið fyrsta sinnar
tegundar hér á landi. Magnús
var kjörinn heiðursdoktor í guð
l'ræði við háskólann í Tartu í
Eistlandi árið 1932.
Enn eru ótalin stjórnmála-
störf Magnúsar Jé>nssonar, sem
voru bæði mikil og fjölþætt.
Hann var Jringmaður Reykvík-
inga um aldarfjénðungsskeið og
gegndi á þeim tíma m. a. ráð-
herrastörfum í ráðuneyti Ólafs
Thors 1942, og auk þess voru
honum lalin margvísleg trúnað-
arstiirf af Alþingi.
Með Magnúsi Jónssyni er
horfin af sjónarsviðinu einn
hinn gáfaðasti og fjölhæfasti ís-
lendingur á þessari öld. Af
Jreirri stuttu upptalningu, sem
hér er gerð að ófan, má sjá, að
hann var afkastamaður mikill,
en auk þeirra starfa ritaði hann
margar bækur, má þar m. a.
nefna merkilegt rit um Hall-
grím Pétursson, doktorsritgerð
um Pál postula, Alþingishátíðin
og nú síðast eitt bindi í íslands-
sögu Menningarsjóðs, og annað
liggur eftir hann í handriti.
Þessa dagana stendur yfir í
Þjóðminjasafninu sýning á mál
verkum eftir Magnús Jónsson.
Var j)að tómstundaiðja hans að
leita út í náttúruna og festa á
léreft landslagsmyndir.
Magnús Jónsson var kvæntur
Benny Lárusdóttur frá Selárdal
í Arnarfirði, sem látin er fyrir
nokkrum mánuðum. Áttu þau
fjögur börn.
Útför Magnúsar Jónssonar
var gerð í gær.
Dr. Victor Urbancic,
hljómsveitarstj., lézt í Reykja
vík á föstudaginn langa, 54 ára
að aldri. Þótt ekki væri hann ís-
lendingur að ætt og uppruna,
var hann orðinn íslenzkur ríkis
borgari og hafði í liugum
mánna helgað sér íslendings
Slyifarir
Nokkru fyrir páska vildi Jrað
slys til, að maður nokkur, Olaf-
ur Bergvinsson, starfsmaður hjá
Tómasi M. Guðjónssyni féll of-
an af lofti og beið af því bana.
Ólafur hafði verið að störf-
um i veiðarfærageymslu, en
hleri, sem var yfir gati á loft-
inu, mun hafa bilað, Jtegar stig-
ið var út á hann. Við það féll
Ólafur ofan á steingólf og mun
hafa höfuðkúpubrotnað. Var
hann fluttur á sjúkrahús, en
þar andaðist hann, án þess að
komast til meðvitundar.
Ólafur Bergvinsson átti heima
á Barkarstöðum í Fljótshlíð og
hafði um margra ára skeið unn
ið hjá Tómasi M. Guðjónssynþ
á vetrum. IJtför hans var gerð
í Reykjavík fyrir fáum dögunr.
rétt með starfi sínu hér. Hann
var fæddur í Austurríki, en
fluttist hingað til lands árið
1938, Dr. Urbancic var fjöl-
menntaður og gáfaður tónlistar
maður, sem vann mikið og gott
starf að eflingu ténrmennta og
meningar hér á landi. Gætti á-
hrifa hans að sjálfsögðu mest í
höfuðstaðnum, þar sem lrann
starfaði, en eigi að síður gætir
áhrifa hans langt út lyrir mörk
hen nar.
Útför hans var gerð að Krists
kirki'i í Rcykjavík í gærmorg-
un.
i
Ásgrímur Jónsson,
listmálari, andaðist í Reykja-
vík laugardaginn fyrir páska á
Þegar vora fer og sól hækkar
éi lofti, fara nrenn að hugsa til
hreyfings, hrista af sér slen og
ryk vetrarins og njóta yls og
lífrænna geisla sólarinnar. Ekk-
ert. mun manninum heilbrigð-
ara en útiveran og sem allra nán
ast líf við náttúruna á hinum
ýmsu árstínnnn. Hér í Eyjum
er varast um mikla vetrarhreyf-
ingu fólks að ræða, sem víðast
á sér stað á meginlandinu,
Jreírra, er inniveru stunda. Hér
er sjaldan snjór og mjög lítið
og ekkert skíðafæri, engin vötn
eða tjarnir að heitið geti, sem
bjé)ða upp á skautahlaup o. s.
frv. Innivinnufólk verður því að
kúra í sínum stól með gigt og
fölar kinnar og treysta á, að
einhverntíma komi vor og heftn
þá til hreyfings.
Það er þó sannast að segja,
að oft vill skipast svo, að Jægar
okkur gefst tækifæri til hreyf-
ingar undir beru lofti, sem ein
stakir menn eða félög stofna til.
hefur vetrarslenið. griþið okkur
svo fös.tum töktun, að yið höf-
um okkur helzt ekki upp í að
búast í smágönguferðir. Við
83. aldursári. Ásmundur var Ár-
nesingur að ætt og hóf ungur
listnám í Kaupmannahöfn. Sett
ist hann að hér heima að námi
loknu.
Með honum er horfinn af
sjónarsviðinu einn af mestu
listamönnum Jressa lands og að
mörgu leyti brautryðjandi. Sér-
staka athygli hafa vakið lands-
lagsmyndir hans, sem margar
eru stórfengiegar að fegurð og
listgildi. Naut Ásgrímur enda
mikils álits meðal landsmanna
og hafði mikil áhrif á málara-
list á Jressari öld.
Ríkisstjórnin mun í heiðurs-
skyni við liinn látna sjá um étt-
för hans.
förum þannig á mis við hress-
andi og mjög ánægjulegar úti-
stundir, sein kosta reyndar mjög
litla fyrirhöfn.
Þegar svo kunningjarnir
hittast og spjalla um gönguferð
ina, sem hafi verið mjög
skemmtileg, nagar maður sig í
handabökin fyrir lelina og heit
ir öllu góðu, er næsta tækifæri
býðst.
Einn af Jreim aðilum, er fara
slíkar ferðir og skiptdeggúr þær
er Ferðafélag Vestmannaeyja.
Hefur tnargur maðurinn notið
unaðslegra éitistunda undir for-
ystu [>ess og leiðsögn kunnugra
manna. Þó hafa allt of fáir not-
ið Jressara gullnu tækifæra. Þau
eru fyrst og fremst ætluð fyrir
meðlimi félagsins, en þeir
mættu gjarnan vera miklu
fleiri. Hins vegar stendur félag-
ið öllum opið, svo að það er
auðvelt að verða fyrirgreiðslu
Jress aðnjótandi og gerast nreð-
limur þess.
En það eru fleiri ferðalög en
innanhéraðs, sem félagið beitir
sér fyrir. Það skipuleggur einn-
Framhald á 2. síðu
Ferðaíélag Vestmannaeyja